Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 20

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 20
Hjálpartæki “Það hefur verið talað um það og er enn á umræðustigi. Þessi húsakynni skapa okkur aðstöðu til að gera ýmislegt sem við gátum ekki áður. Til dæmis höfum við of lítið getað sinnt þjónustu við það fólk sem annast sjúklinga sem þurfa á okkur að halda. Við höfum of lítið getað sinnt því að kynna þessu fólki starfsemi okkar og það sem við höfum upp á að Fyrir sex árum var iðjuþjálfi ráðinn til starfa við Hjálpar- tækjabankann. Sú sem gegnir þessu starfi núna er Jóhanna Ingólfsdóttir og tókum við hana tali á vinnu- stað sínum. bjóða. Nú getum við fengið þetta fólk í heimsókn og sinnt því hér. Við höfum reynt eftir megni að sinna kynningarstarfi. I því skyni höfum við farið út á land enda þjónum við öllu landinu. Þær ferðir hafa mælst vel fyrir og við ætlum að halda þeim áfram þótt þær séu dýrar,“ sagði Björgúlfur. Hjálpartækjabankinn er sjálf- “Ég hef verið hér í tæpt ár og veiti fólki ráðgjöf um val á tækjum. Oft er það svo að fólk veit ekki hvaða tæki það þarf. Ég fer heim til fólks sé þess óskað, kanna aðstæður þess og líkamsástand og geri síðan til- lögur um tækjaval og bendi stætt fyrirtæki sem áðurnefnd félagasamtök eiga í jöfnum hlutföllum. Hann nýtur engra styrkja og starfsemin stendur undir sér sjálf. Bankinn leigir bæði og selur tæki og í mörgum tilvikum greiðir Trygginga- stofnun tæki sem keypt eru, ýmist að fullu eða hluta. Þeir sem leigja tæki bera hins vegar sjálfir kostnaðinn. - ÞH jafnvel á einhver atriði sem breyta þyrfti í íbúð viðkom- andi. Beiðni um þessa þjón- ustu getur komið frá læknum, heimilishjúkrun, aðstandend- um eða sjúklingum sjálfum. Fólk spyr mikið hvað sé til af tækjum og ég læt það prófa þau því sum tæki henta einum en ekki öðrum. Ef tækin eru ekki til hjá okkur reyni ég að finna þau annars staðar.“ - Er mikil þörf fyrir þessa þjónustu? “Já, tvímælalaust. Það hefur verið nóg að gera. Auk þess að veita upplýsingar get ég lagt læknisfræðilegt mat á ástand sjúklinga og séð fram í tímann hvernig það er líklegt til að þróast. Ég hef farið nokkrar ferðir út á land með sýningar á hjálp- artækjum, ýmist að beiðni Sjálfsbjargarfélaga eða heilsu- gæslustöðva. Þá reyni ég að fara með sitt lítið af hverju og sýna sem breiðast úrval. Hingað til hefur ekki verið mikið um að ég sé beðin að koma út á land og líta á sjúkl- inga en á þessum sýningar- ferðum hef ég hins vegar verið beðin að athuga aðstæður hér og þar. Ég tel því að það sé þörf fyrir útibú á landsbyggðinni. Loks má nefna að ég hef farið með tæki og kynnt þau á sjúkrahúsunum.“ Jóhanna Ingólfsdsóttir Iðjuþjálfi leiðbeinir viðskiptavinum Hjálpartækjabankans. Mikilþörf fyrir ráðgjöf Rœtt uið Jóhönnu Jngólfsdóttur iðjuþjálfara í Hjálpartœkjabankanum 18 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.