Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 29

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 29
Félagsmál Heyrðu, Valey, finnst þér ekki tímabært að við förum að stofna félag fatlaðra? Ég var sammála því og við ræddum við fleiri, bæði fatlaða og aðstandendur þeirra, og boð- uðum þá á fund. Það voru nokkuð margir fatlaðir á Siglufirði um þessar mundir því nokkrum árum áður hafði gengið lömunar- veikifaraldur. Á undirbúnings- fundinum mættu 20-30 manns og þar var ákveðið að boða stofnfund nýs félags 9. júní. Á stofnfundinum urðu nokkrar umræður um nafn og komu ýmsar tillögur fram. Þegar nafnið Sjálfsbjörg kom fram voru allir á einu máli um að það væri best. Þegar kom að for- mannskjöri varð ég fyrir val- inu.“ - Hvernig var ástandið í málefnum fatlaðra á þessum árum? “Þau voru í algerum ólestri, jafnt tryggingamál sem atvinnu- og félagsmál fatlaðra. Þeir lokuðu sig inni og voru haldnir minnimáttarkennd. Fatlaðir voru fákunnandi um réttindi sín og vissu oft ekki um rétt sinn til almannatrygginga. Börn fengu örorkumat við 16 ára aldur en foreldrar þeirra nutu einskis stuðnings fram að því. Ég fékk lömunarveikina þegar ég var barn og þegar ég komst á vinnualdur var gengið með mig milli atvinnurekenda en ég fékk hvergi vinnu. Ég hafði þá enga menntun og smám saman missti ég móðinn og hætti að þora að sækja um vinnu. Á endanum varð það úr að ég tók kennarapróf en barnakennsla þótti vera það eina sem fötluð manneskja gat gert. Nú ríkja allt önnur viðhorf og ég vona að félagið eigi sinn þátt í því. Við höfum beitt okkur gegn því að félagar séu beittir órétti og nú hafa fatlaðir að öðru jöfnu forgang að vinnu hjá ríki og sveitarfélögum. Atvinnurekendur á Siglufirði hafa tekið fötluðum sérlega vel og má þar nefna Þormóð ramma, bæjarfélagið og fleiri fyrirtæki. Málin standa orðið það vel að í okkar félagsskap ríkir félagsleg deyfð. Mér finnst td. yndislegt að sjá hvernig blöndunin á sér stað í skólunum. Sjálfri líkaði mér alltaf best í skóla enda varð ég aldrei fyrir aðkasti þar vegna fötlunar minnar.“ - Hvernig standa ferlimálin hjá ykkur á Siglufirði? “Þau standa ekki vel, raunar er ástandið í þeim fyrir neðan allar hellur. Þar þarf að gera stórátak. Það er mikið af eldri húsum í bænum og það hefur sáralítið verið gert til að laga aðgengi í þeim. Fyrir all- mörgum árum var byggt ráð- Eftir að hafa stofnað fyrsta félagið á Siglufirði fóru Sig- ursveinn og fleiri á stúfana og vöktu fatlaða í öðrum byggðarlögum til dáða. Reykvíkingar voru fljótastir að taka við sér og aðeins 18 dögum eftir stofnfundinn á hús í bænum og við börðumst fyrir því að fá lyftu í það. Þegar það fékkst loks samþykkt voru teiknaðar 3 tröppur upp í lyftu- húsið. Lyftan er ókomin enn og þrátt fyrir bréfaskriftir til bæjarstjórnar hefur ekkert gerst í málinu. Okkur finnst þetta hús vera fyrir alla siglfirð- inga og að vísu hefur sumt verið lagfært þar. í fyrra var standsettur salur á 2. hæð húss- ins og þá var aðgengið bætt, salernum breytt og handrið löguð. Báðir skólarnir í bænum eru hins vegar ótækir. í tilefni af 70 ára afmæli bæjarins í vor var samþykkt að stækka grunn- skólann og ég vona að ég fái einhverju ráðið þar enda er ég á heimavelli, kennari við skólann.“ - Hefur félagið gert eitthvað til að minnast afmœlisins? “Já, við færðum bænum 30 trjáplöntur fyrir veittan stuðn- ing og gróðursettum þær á afmælisdegi félagsins.“ Siglufirði var haldinn stofn- fundur Reykjavíkurfélags- ins. “Það var brýn ástæða fyrir stofnun félagsins,“ segir Trausti Sigurlaugsson, núver- andi formaður félagsins. Trausti Sigurlaugsson, formaður Sjálfsbjargar í Reykjavík: Fötluðum vel tekið í þessu þjóðfélagi SJÁLFSBJÖRG 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.