Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Qupperneq 32
Félagsmál
er greiddur af hinu opinbera.
Nú er hins vegar verið að
endurskoða meðferðargjöldin
á endurhæfingarstöðinni og þá
ætti hallinn að minnka þar.
Varðandi AKO-plast erum
við bjartsýn. Við vitum að við
erum að leggja út í samkeppni
við rótgróin fyrirtæki fyrir
sunnan en teljum að ef okkur
tekst að ná heimamarkaðnum
þá muni dæmið ganga upp. í
AKO-plasti fá 8 manns vinnu, i
Bjargi starfa 20 manns en alls
starfa 40-50 manns á vegum
félagsins, þó ekki allir í fullu
starfi.“
- Ætlið þið að minnast tíma-
mótanna á einhvern hátt?
“Tímamótin eru reyndar
tvöföld því Bjarg á 20 ára
afmæli á árinu. Við ætlum að
gefa út veglegt afmælisrit á
afmælisdaginn, sem er 8. októ-
ber, þar sem rifjuð verður upp
saga félagsins ofl. Svo hefur
líka verið rætt um að halda
veislu en það er allt óráðið
enn,“ sagði Snæbjörn Pórðar-
son.
Pálína Snorradóttir, formaður
Sjálfsbjargar í Árnessýslu:
Ekki bruðlað en
þurfum að byggja dýrt
í Árnessýslu var stofnað
Sjálfsbjargarfélag sumarið
1958 og þótt félagssvæðið
taki til allrar þessarar stóru
sýslu þá hefur formaðurinn
af einhverjum ástæðum
ávallt verið búsettur í Hvera-
gerði. Fyrsti formaður var
Valgerður Hauksdóttir,
síðan gegndi Þórður
Jóhannsson embættinu í 23
ár en síðustu þrjú árin hefur
Pálína Snorradóttir vermt
stól formanns en hún hefur
starfað í félaginu frá 1965.
“Félagssvæði okkar er mjög
dreift og því er erfitt að ná
saman fundum. Við getum þó
komið upplýsingum til félaga
og skipuleggjum stundum sam-
eiginlegar ferðir til Reykjavík-
ur, í leikhús, heimsókn í Sjálfs-
bjargarhúsið oþh.“
Pálína er formaður Svæðis-
stjórnar um málefni fatlaðra á
Suðurlandi en starfar sem sér-
kennslufulltrúi. Af orðum
hennar að dæma virðist
málefnum fatlaðra nokkuð vel
komið á Suðurlandi þótt
félagið sé ekki mjög virkt.
“Svæðisstjórn hefur unnið
vel. Við stofnun hennar var til
barnaheimili fyrir fötluð börn
sem foreldrar þeirra ráku.
Þetta er meðferðarheimili fyrir
fötluð börn upp að f8 ára aldri
jafnframt því að vera vistun.
Heimilið vinnur í tengslum við
skólana á Selfossi því börnin
sem þar eru vistuð ganga í skól-
ana.
Auk þess búa sex einstakl-
ingar í sambýli og vinna á
vernduðum vinnustað þar sem
þeir vefa mottur og búa til
Íeirmuni. Pá erum við að opna
fyrsta sambýlið sem við
byggjum sjálf með aðgengi
fatlaðra í huga. Eitt Lottóhús
er í byggingu en í því verða
leiguíbúðir fyrir fatlaða, 2
hjónaíbúðir og 4 einstaklings-
íbúðir.
Við eigum okkur draum um
að byggja hús þar sem dagvist-
un, þjálfun og vinnustaður væri
undir einu þaki. Við vitum þó
ekki hvenær hann rætist.
Þetta er allt rekið af svæðis-
stjórn. Auk þess rekur svo-
nefnd Steiner-hreyfing heimili
í Skaftholti fyrir 6-8 vistmenn
af Reykjavíkursvæðinu sem
ekki passa inn í kerfið. Svæðis-
stjórn hefur rekstrarleyfið en
starfsfólkið sér um reksturinn.
Það fær laun sem ganga beint í
reksturinn en hver starfsmaður
fær það sem hann þarf sér til
viðurværis. Þetta hefur gengið
mjög vel.
Þetta starf kemur Sjálfsbjörg
til góða því fólk sér að það er
verið að vinna og að æ fleiri
30 SJÁLFSBJÖRG