Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 33
Félagsmál
þurfa á svona þjónustu að
halda. Breytingarnar gerast
hægt en uppbyggingin hefur
verið farsæl hingað til. Það er
ekki bruðlað með fé en við
verðum hins vegar að byggja
dýrt því við erum með það sem
nefnt er þungir einstaklingar.
Við höfum ýmsar hugmyndir
um samstarf Sjálfsbjargar og
Þroskahjálpar og þessi félög
hafa mörg verkefni að vinna.
Hvað úr verður ræðst af sam-
komulaginu," sagði Pálína
Snorradóttir.
Messíana Marsellíusdóttir, formaður
Sjálfsbjargar á ísafirði:
Vorblótið hafði góð
áhrif á hugarfarið
Á ísafirði var stofnað félag í
september 1958. Þar er nú
formaður Messíana Marsell-
íusdóttir og hefur verið það í
nokkuð mörg ár. Hún er
reyndar búin að starfa í
félaginu í aldarfjórðung.
“Félagið var öflugt fyrstu
árin undir forystu Ingibjargar
Magnúsdóttur formanns.
Snemma var ráðist í að kaupa
hús við Mjallargötu í samvinnu
við SIBS. Þar var framan af
rekin vinnustofa fyrir fatlaða,
sauma- og prjónastofa, en fyrir
uþb. 20 árum brann hún og öll
tæki eyðilögðust. Húsið var
endurbætt og síðan höfum við
rekið þar almenna verslun sem
jafnframt er umboð fyrir happ-
drætti SÍBS. Þar er líka að-
staða til félagsstarfs.
Það setur sitt mark á starf-
semina hversu algengt það er
að fólk flytji suður ef það er
fatlað eða eignast fötluð börn.
Þar fær það alla þjónustu sem
vantar hér. Það er því brýnt að
hér verði komið upp aukinni
þjónustu við fatlaða. Hér er
starfrækt vistheimilið Bræðra-
tunga en það er aðallega fyrir
þroskahefta. Á sjúkrahúsinu
er búið að koma upp endur-
hæfingarstöð sem er til mikilla
bóta.
En ferlimálin eru ekki í nógu
góðu lagi á ísafirði. Það eru til
dæmis engar skábrautir við
gangstéttir í bænum. Bæjar-
stjórn er hins vegar búin að
samþykkja að steypa ská-
brautir alls staðar í bænum og
það er mikill sigur. En það
vantar mikið á að aðgengi sé
gott. Til dæmis kemst enginn
fatlaður inn í Menntaskólann á
ísafirði. Það var ekkert hugsað
út í það þegar skólinn var
byggður. Sama gilti raunar um
grunnskólana, þar var ekkert
hugsað út í aðgengi fyrir fatl-
aða fyrr en Bræðratunga fór að
senda nemendur þangað.“
- Hvernig hafið þið fagnað
tímamótunum?
“Við héldum vorblót í sam-
vinnu við Öryrkjabandalagið
og Styrktarfélag vangefinna.
Það var vel sótt og ég er bjart-
sýnni eftir það en áður. Við
fengum gesti að sunnan sem
fluttu erindi og kynntu
málefnin og mér fannst það ná
eyrum fólks. Vorblótið hafði
jákvæð áhrif á hugarfar fólks
og það eru allir jákvæðir að
vinna fyrir okkur núna.“
- Ég sé að þú ert ekkifötluð,
hvað veldur áhuga þínum á
þessum málefnum?
“Ég byrjaði að vinna að
þessum málum fyrir dóttur
mína sem er fötluð. Auk þess
er systir mín fötluð svo ég er
alin upp við fötlun. Áhuginn
hefur alltaf blundað með mér
og nú er þetta orðið mitt hjart-
ans mál,“ sagði Messíana Mar-
sellíusdóttir.
SJÁLFSBJÖRG 31