Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 43
Ferlimál
og stundum verður þeim á að fá
sér einu glasi of mikið eins og
okkur. Hinir menningarlega
sinnuðu í þeirra hópi stunda
leikhús eða hljómleika eins og
við. Þeir elda daglega mat
heima hjá sér og þurfa að þvo
af sér, þeir> sem stunda vilja
heilsurækt, fara með reglulegu
millibili í gufubaðstofu, þeir,
sem íþróttalega eru þenkjandi,
í líkamsrækt, og þeir sem
hvíldar og hressingar eru þurfi,
ferðast með konu, barn og
hund í sumarfrí, á hótel, í
sumarbústað eða á tjaldstæði.
Yngri kynslóðin leitar á
diskótek, og einhverjir þeirra
lenda meira að segja í fíkni-
efnaneyslu, alveg eins og við.
Alla langar þá til að lifa, elska,
vinna og eiga sér heimili.
Það, hvort þetta er þeim
kleift, fer að verulegu leyti eftir
því, hvernig byggingarlegu
umhverfi þeirra er háttað. Þar
birtist aftur á móti hugsunar-
háttur arkitekta, byggingar-
aðila og hlutaðeigandi stjórn-
valda.
Þetta varð arkitekt nokkrum
skyndilega ljóst, er hann leitaði
ráða hjá ráðgjafarstöðinni
(ráðgjafarstöð Svisslendinga
fyrir hönnun bygginga fyrir
fatlaða), þegar hann vann við
hönnun sumardvalarhótels í
Ticino-héraði.
Með opnum huga og tölu-
verðri fagþekkingu á hindrun-
arlausri hönnun mannvirkja
hafði hann í hóteli sínu hannað
rökrétt 4 hótelherbergi fyrir
fatlaða, sem auðvelt var að
komast til á jafnsléttu frá jarð-
halla utandyra. Svaladyrnar
voru án þröskulda, baðher-
bergin einkar rúmgóð, með
salernisskálarnar hannaðar í
réttu horni fyrir hjólastólanot-
endur. Ekki hafði heldur
gleymst að hugsa fyrir hand-
festu handa hreyfihömluðum
né óaðfinnanlega hönnuðum
sturtuklefa, sem aka mátti
hjólastól inn í. Sem sagt, öllu
var fyrir komið eins og best
varð á kosið, nema hvað arki-
tektinum hafði yfirsést í einu,
og einmitt það sýndi, hversu
rangar hugmyndir við höfum
um líf fatlaðra:
Arkitektinn hafði hannað öll
fjögur herbergin sem eins
manns herbergi. í viðtali við
ráðgjafana í ráðgjafarstöðinni
var svo eins og augu hans lykj-
ust upp. Menn skyldu varla
trúa því: Fatlaðir eiga sér
stundum vin eða vinkonu eða
meira að segja maka. Þá vantar
sem sagt hjónaherbergi. Nú
rúmaðist hins vegar hvorki
hjónarúm né tvö eins manns
rúm í þessum fjórum herbergj-
um, vegna þess að arkitektinn
hafði teiknað þau alltof lítil. Á
hinn bóginn höfðu baðher-
bergin orðið of stór hj á honum,
þannig að aka mátti hjóla-
stólum um þau í valstakti. Það
var auðvelt að stækka her-
bergin á kostnað snyrtiher-
bergjanna.
Svo flýgur hver
sem hann er
fiðraður
Það verður að teljast grundvall-
aratriði að umhverfið sé skipu-
lagt með þarfir allra þegna þjóð-
félagsins í huga. Helstu stefnu-
mið Sjálfsbjargar í ferlimálum
eru því eftirfarandi:
• Tryggt verði í löggjöf lands-
ins að allar nýbyggingar verði
aðgengilegar öllum.
• Unnið verði að því á skipu-
legan hátt að gera allar eldri
byggingar aðgengilegar
öllum.
• Unnið verði skipulega að
breytingu gatnakerfis og úti-
vistarsvæða bæjar- og sveit-
arfélaga og þau gerð öllum
aðgengileg.
• Unnið verði að því að ná fram
breytingum á almennings-
vögnum og öðrum sam-
göngutækjum, hótelum og
ferðamiðstöðum til að auð-
velda fötluðum ferðalög.
• Komið verði upp ferðaþjón-
ustu fyrir fatiaöa í öllum sveit-
arfélögum landsins. Jafn-
framt verðri tryggt að þjón-
usta leigubifreiðastöðva sé
fyrir alla, þar á meðal fatlaða í
hjólastólum.
• Fötluðum verði bættur sá
umfram kostnaður er óhjá-
kvæmilega fylgir ferðalögum
þeirra, hvort heldur er innan
eða utanlands.
Helstu stefnumið Sjálfs-
bjargar í farartækjamálum eru
eftirfarandi:
• Tryggja verður að fötluðum
sé gert kleift að eignast og
reka eigin bifreið án tillits til
efnahags.
• Tryggt verði í lögum að
styrkir Tryggingastofnunar
ríkisins til bifreiðakaupa
hækki í samræmi við verð-
hækkanir bifreiða.
• Styrkir Tryggingastofnunar
ríkisins til bifreiðakaupa
þeirra er þurfa sérinnréttaðar
bifreiðar séu ávallt það háir
að viðkomandi einstaklingur
greiði ekki meira en sem
nemur tveimur þriðju af verði
bifreiðar í meðal verðflokki.
Úr stefnuskrá
Sjálfsbjargar
SJÁLFSBJÖRG 41