Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Blaðsíða 50
Fræðslumál
Haldin hafa verið tvö nám-
skeið af hvorri gerð þ.e. for-
eldra forskólabarna (ca. 4-11
ára) og foreldra unglinga (ca.
frá 12 ára). Þau námskeið voru
haldin í nóvember 1987 og
apríl 1988, en Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra hefur
lánað Reykjadal í Mosfells-
sveit fyrir námskeiðin.
Þetta eru helgarnámskeið og
ekki er gert ráð fyrir barna-
gæslu eins og á fyrri námskeið-
um. Hámarksþátttaka foreldra
er 15 og er reiknað með því að
foreldrar sofi á staðnum. Einn-
ig er reiknað með 3-4 for-
eldrum utan af landi og er þeim
greiddur ferðakostnaður.
Þátttökugjaldi foreldra á
þessum námskeiðum er haldið
í lágmarki.
Auk þeirra hagsmunafélaga
fatlaðra sem standa að nám-
skeiðunum hefur Öryrkja-
bandalag íslands styrkt nám-
skeiðin fjárhagslega.
Fyrirlesarar eru fjórir á
hverju námskeiði um sig og eru
þeir þessir:
Börn á forskólaaldri:
Stefán Hreiðarsson, lœknir
Wilhelm Norðfjörð,
sálfrœðingur
María Björk Ingvadóttir,
félagsráðgjafi
Guðlaug Sveinbjarnardóttir,
foreldri.
Um unglingsárin:
Sveinn Már Gunnarsson,
læknir
Tryggvi Sigurðsson,
sálfrœðingur
Lára Björnsdóttir,
félagsráðgjafi
Ásta B. Þorsteinsdóttir,
foreldri
Námskeiðin skiptast á um að
vera fyrirlestrar og hópvinna
foreldra.
Reynslan af þessum nám-
skeiðum hefur verið mjög
jákvæð og nú hefur verið
ákveðið að halda tvö námskeið
í Reykjadal í Mosfellssveit, eitt
af hvorri gerð í september og
október 1988.
Fyrir foreldra unglinga:
24.-25. septemb'er 1988
Fyrir foreldra barna á forskóla-
aldri:
29.-30. október 1988.
Þess skal getið að þátttaka
foreldra utan af landi hefur
verið mjög góð. Nú er um að
gera að grípa tækifærið og láta
skrá sig á námskeiðin. Það er
gert milli kl. 17.30 og 19.30, í
síma 91-32961 hjá Kristínu
Jónsdóttur þroskaþjálfa, sem
jafnframt gefur allar nánari
upplýsingar um fyrirkomulag
námskeiðanna.
Námskeið fyrir foreldra/aðstandendur fatlaðra barna
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra Landssamtökin Þroskahjálp
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Styrktarfélag vangefinna
Eftirtalin námskeið eru íboði:
I. Fyrir foreldra unglinga
Sveinn Már Gunnorsson, lceknir
Tryggvi Sigurðsson, sálfrœðingur
Láro Björnsdóttir, félagsráðgjafi
Ásta B. Porsteinsdóttir, foreidri
Námskeiðið verður helgina 24.-25. september 1988
II. Fyrir forskólaaldur og fyrstu skólaárin
Stefán Hreiðarsson, lceknir
Wilhelm Norðfjörð, sálfrceðingur
María B. Ingvadóttir, félagsráðgjafi
Guðlaug Sveinbjarnardóttir, foreldri
Námskeiðið verður helgina 29.-30. október 1988
Námskeiðsstaður er
REYKJADALUR í MOSFELLSSVEIT
Þetfa eru helgarnámskeið cetluð 15 foreldrum eða ein-
staklingum,- Námskeiðsgjald er kr. 1.500; innifalið í því er
fceði, gisting og námskeiðsgögn.
Ferðakostnaður er greiddur fyrir fólk utan af landi.
Mceting er kl. 8.45 á laugardegi.
ATH! Allar nánari upplýsingar gefur Kristín Jónsdóttir, þroska-
þjálfi sem einnig tekur við innritunum í síma 91-32961 milli kl.
17.30 og 19.30.
48 SJÁLFSBJÖRG