Morgunblaðið - 07.02.2022, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 2022
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Margir þekkja leikarann og leik-
stjórann Friðrik Friðriksson sem
„Frikka í Tjarnarbíói“ en hann hefur
stýrt leikhúsinu síðan árið 2016. Nú
er hins vegar komið að tímamótum
þar sem staða framkvæmdastjóra
Tjarnarbíós hefur verið auglýst laus
til umsóknar og Friðrik rær á ný
mið. Hann tekur við hlutverki fram-
kvæmdastjóra nýrrar Sviðslista-
miðstöðvar Íslands.
Friðrik var gestur í Dagmálum,
frétta- og dægurmálaþætti Morgun-
blaðsins sem birtist á mbl.is, og
ræddi um árin í Tjarnarbíói og starf-
ið sem fram undan er.
Friðrik tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra í Tjarnarbíói tíma-
bundið þegar forverinn Guðmundur
Ingi Þorvaldsson fór í leyfi, en 12.
apríl, á sjálfan afmælisdag Friðriks,
hringir Guðmundur og segir upp
störfum og því má segja að Friðrik
hafi fengið starfið í afmælisgjöf.
Markmið Friðriks í stöðu fram-
kvæmdastjóra var frá upphafi að
auka gæði sviðsverka þar. „Það eru
tveir hópar sem eru hagsmunahópar
hússins, það eru áhorfendur og lista-
menn, og þessir tveir hópar haldast í
hendur. Áhorfendurnir koma ekki
nema það sé góð list í húsinu og
listamennirnir vilja sýna það sem
áhorfendur koma á,“ segir hann.
„Það fyrsta sem við gerðum var að
gera betur við listamenn til þess að
draga gæðalistamenn að húsinu og
geta þannig boðið upp á gæðasýn-
ingar í húsinu og það hefur tekist
ágætlega. Það er búin að vera mikil
eftirspurn eftir því að fá að komast
að í húsinu og við erum í þeirri stöðu,
því miður, að þurfa að hafna alls
konar umsóknum en náum þá að
velja gæðasýningar inn í húsið.“
Tjarnarbíó er gjarnan kallað
„heimili hinna sjálfstæðu sviðslista“
og gegnir mikilvægu hlutverki í leik-
húslandslaginu. Í Reykjavík er að
finna ríkisrekið leikhús, Þjóðleik-
húsið, og Borgarleikhúsið sem stutt
er af Reykjavíkurborg og svo er
Menningarfélag Akureyrar fyrir
norðan. „En svo er obbinn allur af
fólki sem hefur menntað sig og hefur
hugmyndir og drifkraft til þess að
koma sínum verkefnum á koppinn.
Það eru til styrkir til að styðja við
sjálfstætt starfandi atvinnulistafólk
og hlutverk Tjarnarbíós er að taka
við þessu fólki eins og hægt er til
þess að það geti látið drauma sína
rætast.“
Faraldurinn var „mikið áfall“
Tjarnarbíó er ekki aðeins heimili
hinnar sjálfstæðu senu heldur hefur
það líka verið annað heimili Friðriks
síðustu ár. „Þetta er bæði líf mitt og
yndi og starf svo þarna er ég öllum
stundum. Þarna er ég með fullt af
góðu fólki í kringum mig sem ég
kveð núna. Þetta hefur verið
skemmtilegur tími. Það er bara fínt
að ég stígi frá og gefi þetta í hend-
urnar á einhverjum öðrum sem flyt-
ur það eitthvað enn þá lengra og
gerir eitthvað meira.“
Spurður út í þær áskoranir sem
hafi mætt honum í starfi fram-
kvæmdastjóra Tjarnarbíós segir
Friðrik að Covid-faraldurinn hafi
verið stærsta áskorunin. „Það var
mikið áfall því að fram að þessu var
alveg línulegur vöxtur í áhorfenda-
fjölda og miðasölutekjum og öllum
svona helstu mælikvörðum. Öll línu-
ritin á blússandi uppleið. Svo kemur
þetta áfall vorið 2020 og það tók svo-
lítinn tíma að vinna úr því. Við þurft-
um að herða sultarólarnar, segja
upp fólki og skera niður eins og
hægt var en sem betur fer sá
Reykjavíkurborg aumur á okkur og
lagði til fjármagn. En leiðir ríkisins í
þessum málum hafa ekki skilað sér
til sjálfstætt starfandi listafólks. All-
ar þessar hlutabótaleiðir og tekju-
fallsstyrkir sem voru lagðir til náðu
ekki alveg til okkar.“
Auka veg og virðingu
Hin nýja Sviðslistamiðstöð Ís-
lands, sem Friðrik snýr sér nú að,
gegnir sambærilegu hlutverki og
miðstöðvar annarra listgreina hér á
landi, Kvikmyndamiðstöð Íslands,
Kynningarmiðstöð íslenskrar mynd-
listar, Miðstöð íslenskra bókmennta,
Hönnunarmiðstöð og Útón. Sviðs-
listirnar höfðu hingað til ekki átt
sinn fulltrúa á alþjóðavettvangi en
það verður að miklu leyti hlutverk
miðstöðvarinnar.
„Hlutverk þessara miðstöðva er
að stórum hluta að kynna sínar list-
greinar erlendis þannig að stóra
verkefnið verður að auka færni
sviðslistafólks, hvar svo sem það
starfar, í að kynna verkefni sín fyrir
erlendum gestum og auka veg og
virðingu íslenskra sviðslista á er-
lendri grundu. Það er stundum svo-
lítið sorglegt að það er verið að veita
tugi milljóna inn í sviðslistaverk sem
eiga sér takmarkaðan áhorfendahóp
hérna innan lands en eiga sér miklu
stærri hópa erlendis.“ Miðstöðin
mun til dæmis hjálpa íslensku sviðs-
listafólki að komast í tengsl við
sviðslistahátíðir um allan heim.
„Fyrsta verkefnið er bara að
segja „halló, hér erum við“, kynna
miðstöðina og hlutverk hennar er-
lendis. Það eru náttúrulega til sam-
bærilegar miðstöðvar annars staðar
á Norðurlöndum og víðar og hægt að
setja sig í samband við þær svo við
séum ekki að finna upp hjólið.“
Enn sem komið er er Sviðslista-
miðstöð lítil stofnun. „Ég er gang-
andi Sviðslistamiðstöð, það verður
svoleiðis alla vega fyrst um sinn.
Okkur er annt um að fara vel með
fjármuni þannig að við séum ekki að
hlaða á okkur fólki og skuldbind-
ingum alveg strax, en ég vona að
þegar fram líða stundir verði þetta
öflug skrifstofa og að ég hafi kannski
einhvern til að tala við inni á skrif-
stofunni.“ Friðrik segist helst munu
sakna alls fólksins sem hann hefur
umgengist á degi hverjum í Tjarnar-
bíói.
Friðrik nefnir að leikhúslífið hér á
landi sé nokkuð einstakt. „Að meðal-
tali sækir hvert einasta mannsbarn
leikhús einu sinni á ári. Það eru tölur
sem þú færð hvergi annars staðar í
heiminum. Leikhúsaðsókn á Íslandi,
og þá er ég að tala um sviðslistir í
það heila, á sér engan líka neins
staðar í heiminum. Þetta er eitthvað
í kjarnanum, að vera Íslendingur
eða búa hér á þessu landi, það eru
allir sammála um að sækja í leikhús-
inu og gera þetta að hluta af tilver-
unni.“ Því er um að gera að reyna að
hjálpa einhverju af því góða lista-
fólki sem hér er að finna að koma
sínum verkum út fyrir landsteinana.
Morgunblaðið/Hallur
Sviðslistirnar „Að meðaltali sækir hvert einasta mannsbarn leikhús einu sinni á ári. Það eru tölur sem þú færð
hvergi annars staðar í heiminum,“ segir Friðrik Friðriksson, gestur Dagmála, um leikhúslífið á Íslandi.
Sviðslistirnar eru „líf mitt og yndi“
- Friðrik Friðriksson tekur við starfi framkvæmdastjóra nýrrar Sviðslistamiðstöðvar - Kveður
Tjarnarbíó sem hefur verið hans annað heimili síðustu sex ár - Leikhúslífið á Íslandi einstakt