Morgunblaðið - 26.03.2022, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 6. M A R S 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 72. tölublað . 110. árgangur .
Vinsæli fjórhjóladrifni rafbíllinn
Audi e-tron 50 Pro-line Verð frá 9.690.000 kr.
Stillanleg loftpúðafjöðrun, íslenskt leiðsögukerfi og fjarhitun.
Búnaður bifreiða til sölu getur verið ólíkur þeirri sem sýnd er á mynd.
Laugavegi 172, 105 Rvk. www.hekla.is/audisalur
Eigum nokkra lausa til afhendingar strax
ÚKRAÍNSKAR
FJÖLSKYLDUR
GETA NOTIÐ SÍN
LEIKA MEÐ
FÆREYSKU
OG ÍSLENSKU
BARNASÝNINGIN ÞOKA 42FJÖLSKYLDUMIÐSTÖÐ 4
_ Framleiðslugeta verksmiðju
Steinullar hf. á Sauðárkróki gæti
verið aukin, en hún hefur átt í erf-
iðleikum með að anna mikilli eft-
irspurn að undanförnu.
Stefán Logi Haraldsson fram-
kvæmdastjóri segir að þó sé ekki
ljóst hvernig það verði gert. „Hér
er fyrir hendi mikilvæg þekking og
meginhráefni eru á svæðinu. Sam-
legðaráhrifin verða væntanlega
meiri með því að auka framleiðsl-
una þar sem menn hafa náð góðum
tökum á tækninni,“ segir hann í
samtali við Morgunblaðið.
Bendir hann á að á tímum farald-
ursins virðist hafa verið uppsveifla
í byggingariðnaði hér á landi, bæði
í nýbyggingum og viðhaldsverk-
efnum.
„Töluvert virðist vera fram und-
an og margt sem bendir til að menn
ætli að herða sig í byggingum á
íbúðarhúsnæði og bæta í.“ »16
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Verksmiðja Uppsveifla hefur verið í iðn-
aðinum að undanförnu, segir Stefán Logi.
Mikið sóst eftir
steinull að norðan
Vorverkin eru víða hafin, þar á meðal við höfn-
ina á Húsavík, þar sem verið var að mála þennan
fallega trébát þegar Morgunblaðsmenn bar að
garði.
Þau eru þó fleiri vorverkin og þar á meðal eru
kosningar til sveitarstjórna, sem fram fara hinn
14. maí. Blaðamenn Morgunblaðsins eru á kosn-
ingaferðalagi milli helstu sveitarfélaga vítt og
breitt um landið og á Húsavík tóku þeir sveitar-
stjórnarmenn í Norðurþingi tali fyrir kosninga-
hlaðvarp Dagmála, sem birt er í dag og sagt er
frá í blaðinu. »14-15
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Vorverkin við
höfnina á Húsavík
Skúli Halldórsson
Logi Sigurðarson
Stjórnvöld í Kreml hafa gefið í skyn
að mögulega kunni þau að draga úr
yfirlýstum markmiðum innrásar
sinnar í Úkraínu. Þar með gætu þau
dregið herlið á brott frá borgum í
vesturhluta landsins.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
skipaði fyrir um innrásina aðfaranótt
24. febrúar og sagði það um leið gert
til að tortíma her Úkraínu og steypa
úkraínska forsetanum Volodimír Sel-
enskí af stóli.
Sergei Rúdskoí, háttsettur rúss-
neskur hershöfðingi, lýsti því yfir í
gær á sjónvörpuðum fundi æðstu yf-
irmanna hersins, að herinn myndi nú
einbeita sér að „algjörri frelsun“
Donbas-héraðanna í austurhluta
landsins.
Samstaða á skýrum forsendum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra kveðst hafa fundið fyrir mjög
mikilli samstöðu á leiðtogafundi ríkja
Atlantshafsbandalagsins, sem hald-
inn var í Brussel á fimmtudag.
„Hún byggir á mjög skýrum for-
sendum, það er þessi kjarnagrein
bandalagsins um að árás á eitt ríki
feli það í sér að hin ríkin grípi til
varna fyrir það ríki. Þetta er auðvitað
búið að margárétta undanfarnar vik-
ur, enda alveg ljóst að ríkin sem
liggja næst átökunum eru áhyggju-
full,“ segir Katrín í samtali við Morg-
unblaðið.
Spurð hvort rædd hafi verið við-
brögð við mögulegri efnavopnaárás
kveður hún já við en tekur fram að
trúnaður ríki um allt sem fram fór.
„Það sem er mikilvægt í þessu er
að við stöndum fast á því að við, Atl-
antshafsbandalagið, erum ekki að
fara inn í þessi átök,“ segir Katrín.
„En eins og kemur fram í yfirlýsing-
unni eftir fundinn, varðandi beitingu
efnavopna, þá segir bandalagið að
þarna sé í raun og veru lína sem ekki
megi fara yfir.“
Afleiðingarnar fyrir óbreytta borg-
ara séu henni ofarlega í huga. „Við er-
um með milljónir á flótta og þarna við
borðið sitja ríki sem eru að taka á
móti miklum fjölda fólks, milljónum
Úkraínumanna,“ segir Katrín.
„Við sjáum þessar hörmungar sem
fylgja og þegar við horfum lengra
fram í tímann þá vitum við það að
efnahagslegar afleiðingar geta orðið
verulega neikvæðar. Þarna er stór
hluti af hveitiframleiðslu heimsins og
þetta getur haft skæð áhrif á hungur í
heiminum.“
Rússar gætu skipt um stefnu
- Herinn einbeiti sér að austurhluta landsins - Efnavopn eru lína sem ekki má fara yfir, segir Katrín
MStríð í Evrópu »4, 23 og 24
AFP
Leiðtogi Katrín Jakobsdóttir.