Morgunblaðið - 26.03.2022, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Bókaforlög fengu tæpar 374 millj-
ónir króna í endurgreiðslur frá ís-
lenska ríkinu á síðasta ári. Greiðsl-
urnar eru inntar af hendi í samræmi
við lög sem sett voru til að styðja
tímabundið við íslenska bókaútgáfu.
Fyrsta heila starfsár nýs sjóðs sem
settur var á fót vegna þessa var árið
2020 og það ár voru greiddar út 398
milljónir króna.
Á síðasta ári voru afgreiddar 732
umsóknir um endurgreiðslu og
heildarkostnaður við þær sem tald-
ist endurgreiðsluhæfur var rúmar
1.495 milljónir króna. Endur-
greiðslan nemur fjórðungi kostn-
aðar, alls 374 milljónir króna. Rétt
er að hafa í huga að margar þeirra
bóka sem fengu endurgreiðslu í
fyrra voru gefnar út árið 2020 enda
hafa útgefendur níu mánuði frá út-
gáfudegi til að sækja um.
Þegar rýnt er í þá kostnaðarliði
sem fylgja bókaútgáfunni og ríkið
greiðir fyrir má sjá að prentun veg-
ur þyngst, eða 28,1% kostnaðarins.
Þar á eftir koma höfundarlaun,
20,2%, þá auglýsingar, 12,9%, rit-
stjórn, 9,8%, hönnun, 8,6%, og þýð-
ingar 7,1%.
Níu milljónir í ástarsögur
Sem fyrr er Forlagið langstærsti
útgefandinn. Það tekur til sín 91
milljón af heildarsummunni fyrir
109 verk. Það er talsvert minna en
árið áður þegar Forlagið fékk 116
milljónir fyrir 134 verk. Bjartur/
Veröld er næststærsta forlagið og
sótti sér 37 milljónir fyrir 29 titla.
Árið áður fékk Bjartur/Veröld 42
milljónir fyrir 41 verk. Storytel skip-
ar sér í þriðja sætið og fékk 29 millj-
ónir fyrir framleiðslu hljóðbóka.
Skammt undan eru Sögur sem fengu
tæpar 28 milljónir.
Endurgreiddur kostnaður hleyp-
ur á nokkrum hundruðum þúsunda
við flestar prentaðar bækur. Fjórar
af vinsælustu skáldsögum ársins
2020 skera sig þó úr en þær eru eftir
fjóra af þekktustu rithöfundum
landsins; Arnald Indriðason, Ólaf
Jóhann Ólafsson, Yrsu Sigurðar-
dóttur og Ragnar Jónasson.
Greiðslur vegna þeirra eru á bilinu
3,8-7,4 milljónir króna. Nokkra at-
hygli vekur að fjórar þáttaraðir af
Sönnum íslenskum sakamálum, sem
framleiddar voru fyrir Storytel,
fengu háar greiðslur í fyrra, alls 5,9
milljónir króna. Þá fékk Ásútgáfan
9,3 milljónir króna fyrir 24 bækur.
Sú útgáfa er kunn fyrir Rauðu ser-
íuna svokölluðu og þeir titlar sem
fengu endurgreiðslu í fyrra voru Ást
og afbrot 1-4, Ást og óvissa 1-4, Ást
og undirferli 1-4, Ástarsögur 1-4,
Sjúkrahússögur 1-4 og Örlagasögur
1-4.
Bókaforlögin fengu alls
374 milljónir frá ríkinu
- Forlagið langstærsti útgefandinn - Bók Arnaldar dýrust
Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku
Endurgreiðsla kostnaðar árið 2021
Endurgreiðsla kostnaðar einstakra bóka árið 2021
Heimild:
Rannís
Útgefandi Endurgreiðsla,m.kr.
Forlagið 91,2
Bjartur/Veröld 37,4
Storytel 29,3
Sögur 27,8
Útgefandi Endurgreiðsla,m.kr.
Edda 15,7
Bókafélagið 13,3
Benedikt 12,3
Salka 10,4
Bókabeitan 10,3
Ugla 9,3
Ásútgáfan 9,3
Sæmundur 9,1
Angústúra 7,5
Hið íslenska bókmenntafél. 7,3
Óðinsauga 7,1
Drápa 5,7
Fullt tungl 5,5
Hólar 5,4
Aðrir útgefendur 60,0
Alls
374
m.kr.
7,4milljónir kr. 5,5milljónir kr. 4,7milljónir kr. 3,8milljónir kr.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kosið verður um sameiningu á
tveimur svæðum í dag. Annars veg-
ar ganga íbúar Langanesbyggðar og
Svalbarðshrepps á Norðausturlandi
til atkvæða um tillögu að samein-
ingu sveitarfélaganna. Hins vegar
kjósa íbúar Stykkishólmsbæjar og
Helgafellssveitar á Snæfellsnesi um
sameiningu.
Verði af sameiningu Stykkishólms
og Helgafellssveitar verður til tæp-
lega 1.300 manna sveitarfélag.
Sveitarfélögin liggja saman og ann-
ast Stykkishólmsbær stóran hluta af
þjónustu við íbúa Helgafellssveitar
með samningum sveitarfélaganna.
Breytingin verður því ekki mikil. Þó
verður sett á fót dreifbýlisráð sem
fastanefnd sameinaðs sveitarfélags í
þeim tilgangi að draga úr áhyggjum
íbúa í dreifbýli af að missa áhrif á
verkefni í nærsamfélaginu. Dreif-
býlisráð á að annast sérverkefni sem
snúa að íbúum þess hluta sveitar-
félagsins.
Kjörfundir verða í dag klukkan 10
til 18. Kosið er í Grunnskóla Stykk-
ishólms og félagsheimilinu Skildi.
Í Langanesbyggð eru tveir þétt-
býliskjarnar, Þórshöfn og Bakka-
fjörður, auk dreifbýlis. Verði sam-
eining samþykkt bætist við dreifbýli
í Svalbarðshreppi og íbúar verða
600.
Jarðirnar í sérsjóð
Langanesbyggð annast rekstur
stórra málaflokka fyrir Svalbarðs-
hrepp svo ekki er von á miklum
breytingum hjá íbúum. Laxveiði-
jarðir sem Svalbarðshreppur á voru
viðkvæmt atriði í upphafi samein-
ingarviðræðna. Var það mál leyst
með því að allar jarðir í eigu beggja
sveitarfélaganna, níu talsins, verða
lagðar í sérstakan sjóð á vegum
sveitarfélagsins, jarðasjóð, ef af
sameiningu verður. Markmiðið er að
tryggja að veiðiréttur í laxveiði-
ánum og nýting jarðeigna verði
áfram í höndum íbúa á starfssvæði
sjóðsins. Tekjurnar á að nýta til
styrkingar byggðum og atvinnu-
tækifærum.
Kjörfundur verður frá klukkan 10
til 18 í dag. Kjörstaðir eru í félags-
heimilinu Þórsveri á Þórshöfn, í
skrifstofu skólans á Bakkafirði og í
Svalbarðsskóla.
Séraðgerðir í
þágu dreifbýlis
- Kosið um einingu á tveimur svæðum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Helgafell Kirkjustaðurinn Helgafell verður innan nýja sveitarfélagsins.
EL PLANTIO GOLF RESORT
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
SÉRTILBOÐ Á GOLFFERÐ
Komdu með í skemmtilega ferð með Úrval Útsýn
og Golfbúðinni Hafnarfirði til Alicante þann 31.
mars til 7. apríl n.k. á El Plantio á frábæru verði.
Þessi vikuferð í sól og sumaryl verður með
skemmtilegu sniði. Það verður m.a. boðið upp
á tvö golfmót með glæsilegum verðlaunum frá
Úrval Útsýn og Golfbúðinni.
Fararstjóri ferðarinnar er hann Magnús Margeirs,
en hann mun halda vel utan um hópinn á meðan
á ferðinni stendur.
INNIFALIÐ Í VERÐI:
ÞÁTTTAKA Í GOLFMÓTUM ÚÚ OG GOLFBÚÐARINNAR
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
VAL UM MORGUNVERÐ EÐA HÁLFT FÆÐI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
GOLF 31. MARS - 07. APRÍL
VERÐDÆMI FRÁ 226.500 KR.
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA
GOLFMÓTMEÐ GLÆSILEGUMVINNINGUM FRÁÚRVAL ÚTSÝN OGGOLFBÚÐINNI
ÖRFÁ
SÆTI LAUS
Slakað hefur verið á sóttvarna-
reglum innan Landspítala og segir
formaður farsóttanefndar að miðað
við fækkun innlagna og fjölda í eft-
irliti göngudeildar sé faraldurinn á
hægri niðurleið. Enn eru tvær lyk-
ildeildir spítalans þó undirlagðar af
Covid-sjúklingum og staðan á Land-
spítala áfram erfið, m.a. vegna
skorts á hjúkrunarfræðingum.
Heimsóknareglur hafa verið rýmk-
aðar og deildum spítalans er heimilt
að hætta hólfa- og hópaskiptingu
ásamt fleiru.
„Okkur hefur sýnst það á komum í
göngudeildina annars vegar og inn-
lögnum hins vegar að þetta sé svona
heldur að síga niður mjög hægt,“
segir Hildur Helgadóttir, formaður
farsóttanefndar Landspítala.
Hún segir að tilslakanirnar þýði
ekki að Landspítali telji faraldurinn
liðinn undir lok, enda er spítalinn
enn á neyðarstigi. Fremur sé slakað
á vegna þess hve margir hafa nú
þegar smitast.
„Það hefur ekki jafn mikið upp á
sig að vera með strangar heimsókn-
artakmarkanir, setja fólk í sóttkví,
prófa það þegar það kemur yfir
landamærin og þetta allt saman.
Þessar reglur eru svolítið gengnar
sér til húðar,“ segir Hildur.
60 sjúklingar með Covid-19 liggja
á Landspítala í dag. Stór hluti þessa
hóps er mjög veikur af undirliggj-
andi sjúkdómum og bætir Covid-19
því gráu ofan á svart.
Þunga stöðu á spítalanum má því
enn skýra með fjölda sjúklinga með
Covid-19 en einnig með veikindum
starfsfólks og langvarandi álagi á
það.
„Fólkið okkar er orðið svo lang-
þreytt, það er orðin veruleg áskorun
að manna hvern einasta dag,“ segir
Hildur. ragnhildur@mbl.is
Faraldurinn á
hægri niðurleið
- Áskorun að manna hvern einasta dag
Ljósmynd/Landspítali
Veira Starfsfólk Landspítalans er
langþreytt sökum mikils álags.