Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Allar nánari upplýsingar á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Verð 29.900 á mann í tvíbýli* *aukagjald fyrir einbýli kr. 11.000 VORFAGNAÐUR Ferðaskrifstofu eldri borgara Hótel Grímsborgum 15. maí Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is eða í símum 783-9300/01 Njótið gistingar á 5* hóteli í fallegri náttúru, snæðið góðan mat, hittið skemmtilegt fólk og dansið fram eftir kvöldi. Mikil stemning meðal eldri borgara þar sem maður er manns gaman. Ferðakynning, söngur, dans og gleði á björtu vorkvöldi. Innifalið í verði: Skemmtun, matur, gisting og morgunverður. Veislustjóri: Gísli Jafetsson. Deilt var um fyrirkomulag á sölu ríkisins á 22,5% hlut í Íslandsbanka í umræðum sem þingmennirnir Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki, og Kristrún Frostadóttir, Samfylkingu, áttu við Pál Magnússon í Dag- málum, sem sýnd eru á mbl.is í dag. Gengi bréfa í sölunni var 117, en hafði verið 122 daginn áður en fag- fjárfestar fengu að kaupa í bank- anum. Hefur salan mætt talsverðri gagnrýni í vikunni. Kristrún, sem er oddviti Samfylk- ingarinnar í Reykjavík suður, segist setja spurningarmerki við hvaða fjárfestar hafi keypt á þessu verði, þótt upplýsingar um þá liggi ekki al- veg fyrir. Forsendan fyrir slíku út- boðsferli sé sú að fá aðila sem taki stóran hlut og séu með því að taka markaðsáhættu. Eðlilegur framgangsmáti Óli Björn, sem er þingflokks- formaður sjálfstæðismanna, er ekki sama sinnis. Um ástæðuna fyrir því að þessi afsláttur á verðinu hafi ver- ið gefinn á varningi sem var umfram eftirspurn segir hann í þættinum: „Þegar talað er um vöru umfram eftirspurn þá er það auðvitað í sam- hengi við það verð sem var í boði, þannig að þetta er ekki alveg svona einfalt. Þetta er auðvitað eðlilegur framgangsmáti á viðskiptum af þessu tagi, þegar menn eru að bjóða út stóran hlut. Þetta er töluvert lægri afsláttur heldur en viðgengst til dæmis í öðrum löndum.“ Um það hvort staðið hafi verið rétt að sölunni, og hvort þessi af- sláttur sé eðlilegur, segir Kristrún að henni þyki fullkomlega eðlilegt að fólk velti þessu fyrir sér. „Það auðvitað situr í fólki salan síðasta sumar. Auðvitað er hægt að vera vitur eftir á og tala um að fólk hafi ekki þekkt stöðuna, en stað- reyndin er hins vegar sú að það munaði umtalsverðu á því gengi sem var selt á og því sem síðar kom, það er hækkun markaðsverðs. Og ég held að það sé svolítið það sem ein- kennir viðbrögð fólks við sölunni núna.“ Páll Magnússon nefnir til sög- unnar samtal sem hann átti við einn sérfræðing innan lífeyrissjóðakerf- isins, sem hafi sagt, að að minnsta kosti einn lífeyrissjóður hafi gert til- boð í bréfin á markaðsgengi og viljað kaupa fyrir um 12 milljarða. Þessu tilboði hafi verið hafnað og þessum aðila verið seld bréf fyrir um 3 millj- arða á genginu 117. Þegar Óli Björn var spurður út í þetta, hvort þetta teldust eðlilegir viðskiptahættir, taldi hann það ekki sanngjarnt að hann svaraði fyrir þetta. „Allt ferlið hefur verið með þeim hætti að ég get ekki annað heldur en glaðst og sagt að vel hafi tekist til. Það getur vel verið að einhverjir hnökrar hafi einhvers staðar verið, en í heildina er þetta vel heppnuð að- gerð,“ segir Óli Björn m.a. í Dag- málum. Fyrrum forseti gagnrýndur Í þættinum eru fleiri mál til um- ræðu, m.a. ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, fv. forseta Íslands, sem hann lét falla í Silfrinu sl. sunnudag um Pútín og átökin í Úkraínu. „Mér fannst þetta dapurlegt. Mér finnst það dapurlegt að það sé við- horf hér hjá áhrifamanni í íslenskri pólitík til áratuga að það sé hægt að finna einhverja skýringu á því að of- beldisfull stjórnvöld virði að vettugi sjálfstæði og fullveldi ríkis með því að gera innrás, að það kunni að vera einhvers staðar annarra skýringa að leita en hjá viðkomandi hrottum,“ segir Óli Björn. Kristrún tekur ekki svo djúpt í ár- inni. „Mig grunar það að tilgangur skilaboðanna hafi kannski verið sá að við þurfum auðvitað að hugsa til framtíðar hvernig við eigum við Rússland,“ segir Kristrún m.a. um ummæli Ólafs Ragnars. Skiptar skoðanir um bankasölu - Þingmenn takast á um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka í nýjum Dagmálaþætti Páls Magnússonar - Kristrún Frostadóttir setur spurningarmerki við hvaða fjárfestar hafi keypt hlut ríkisins á afslætti Morgunblaðið/Hallur Már Dagmál Kristrún Frostadóttir og Óli Björn Kárason í viðtali hjá Páli Magnússyni, sem sýnt er á mbl.is í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.