Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 12
Sýnir ofan í litunar- pottana og fræðir Regnbogi Litfagurt er það, bandið jurtalitaða frá Hespu hennar Guðrúnar. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Á hugi minn fyrir jurtalitun vaknaði þegar ég var að skrifa meistararitgerð um grasnytjar, um það hvern- ig við nýttum gróðurinn í gamla daga. Þá fann ég heimildir um að hér á landi var gróður nýttur til litunar og í framhaldi af því byrjaði ég að lita band með jurtum,“ segir Guðrún Bjarnadóttir náttúrufræðingur og eigandi jurtalitunarvinnustofunnar Hespuhússins í Ölfusi, en hún ætlar að vera með fyrirlestur um litatímabil Íslandssögunnar hjá Heimilisiðnað- arfélaginu nk. miðvikudag. „Íslendingar hafa notað jurtaliti frá landnámi en lítið er um heimildir alveg í upphafi, því ritöldin byrjar ekki fyrr en á tólftu öld. Karlarnir skrifa söguna og þeir voru ekki upp- teknir af því að skrá eitthvað um jurt- ir og litun og fyrir vikið er ég að geta í eyður, til dæmis með því að kynna mér hvað var verið að gera og nota annars staðar á Norðurlöndum á svipuðum tíma og hvaða sömu teg- undir jurta vaxa hér. Við getum kall- að það rökstutt gisk. Þegar kemur fram á fimmtándu og sextándu öld höfum við okkar eigin heimildir. Í Ís- lendingasögunum er talað um litgrös og brúngrös, en litgras er þá litunar- jafni en brúngras er skóf. Þar er talað um litklæði, en rannsóknir hafa sýnt að í þeim eru erlendir litir. Litklæði er því regnhlífarhugtak um erlenda sterka liti. Íslendingasögurnar fjalla um yfirstéttina svo það voru ríku karl- arnir sem klæddust litklæðum. Þeir fóru til útlanda þar sem þeir keyptu fötin sín litríku og flögguðu þeim þeg- ar heim var komið. Þannig settu þeir sig yfir almúgann, en litklæði voru tákn fyrir stöðu, völd og ríkidæmi. Litklæði voru skilaboð um að viðkom- andi hefði ferðast út fyrir landstein- ana. Yfirstéttarkarlar riðu um héruð og vildu láta fara mikið fyrir sér í þessum litklæðum. Ef þeir hefðu farið um í sauðalitum hefði enginn tekið eft- ir þeim og þeir hefðu ekki verið ógn- andi. Yfirvaldið málar sig þessum sterku litum og mig grunar að á þess- um tíma hafi almúginn klæðst flíkum í mjög einföldum jurtalitum eða hrein- lega sauðalitunum. Ólíklegt er að al- múgafólk hafi gefið sér tíma til að lita mikið eða spanderað dýrmætum eldi- viði í slíkt pjátur.“ Skipaferðir skiptu miklu máli Guðrún segir að nokkur hundruð árum eftir landnám höfum við færst úr litskrúðugum klæðum. „Þegar við fórum undir Noregs- konung í lok þrettándu aldar var þjóð- in orðin nokkuð buguð og við fórum inn í nokkur hundruð ár af því sem al- mennt er talað um sem tímabil litleys- is. Þetta kemur til af því að við kunn- um ekki lengur að smíða skip og vorum því hætt að fara til útlanda til að kaupa fötin okkar. Við notumst við það sem er hér heima úr okkar ein- földu náttúru og förum að ganga mik- ið í svörtu, þau klæði voru lituð úr sortulyngi. Svartklædd þjóð leit út fyrir að vera alltaf á leið í jarðarför, eða buguð af sorg, sem við kannski vorum því þetta voru frekar ömurleg- ir tímar. Kannski var þjóðin þunglynd og það endurspeglaðist í svörtum lit klæðanna. Við erum í dökkum miðöld- um í fatalitum alveg fram á upplýs- ingaöld, en í mínum huga hefst hún á átjándu öld. Þá förum við að flytja inn erlendar jurtir til að poppa upp okkar litaflóru í klæðum, sem og erlend íblöndunarefni til að hjálpa okkur við litunina. Einnig koma út íslensk fræðslurit um það hvernig við getum nýtt náttúruna til litunar. Þarna á miðri átjándu öld verða klæðin okkar litskrúðug aftur og margt hefur áhrif á þessa þróun; veðurfar, staða þjóðar, samgöngur og fleira. Skipaferðir skipta miklu máli, sem og andlegt ástand þjóðar,“ segir Guðrún og bætir við að við notumst við jurtalitun allar götur frá miðri átjándu öld og alveg þar til snemma á tuttugustu öld, en þá koma gervilitir til sögunnar. „Þá fara jurtalitirnir frekar hratt úr tísku.“ Norðmenn vilja fjólublátt Guðrún segir að breytt hugsun í heiminum ráði mestu um að jurtalitir eru aftur komnir í tísku nú á tuttug- ustu og fyrstu öld. „Núna er áhersla á að vernda umhverfið og vera nýtnari, nýta nátt- úruna af virðingu og fara varlega. Forðast gerviefni sem Guð má vita hvernig eru búin til í verksmiðjum, fjöldaframleidd við aðstæður sem erf- itt er að vita hverjar eru, bæði efni og aðbúnaður fólks. Á Íslandi held ég að bankahrunið 2008 hafi haft afgerandi áhrif á auknar vinsældir jurtalitunar, því þá fórum við að prjóna aftur. Við duttum inn í „slow“-hreyfinguna og við lærðum að meta betur handverkið. Hjá mér fylltist allt af fólki á jurtalitunarnámskeiðum. Hér á Ís- landi var þetta mikil hugarfarsbreyt- ing; að gera sjálfur, og sem betur hef- ur hann viðhaldist áhuginn á að nýta náttúruna af virðingu. Þetta fór enn hærra í covid-tíð, þegar fólk sat heima og prjónaði. Íslenskt prjónafólk er núna tilbúið til að borga meira fyrir vandað band í sinn prjónaskap, band sem er jurtalitað, handspunnið og handlitað.“ Fyrirtæki Guðrúnar, Hespu- húsið, verður tíu ára á þessu ári en á þeim áratug hefur hún komist að því að ólíkar þjóðir kjósa ólíka liti. „Þjóðverjar og flestir Norður- landabúar vilja milda haustliti og jarð- liti, en Norðmenn kaupa nær ein- göngu blátt og fjólublátt. Íslendingar eru mikið fyrir sterka liti, rautt, blátt, bleikt og grænt,“ segir Guðrún og bætir við að vinnustofan hennar gangi út á að sýna ofan í litunarpottana og fræða, auk þess að selja afurðina, jurtalitað band. „Erfitt er að hafa lifibrauð af handverki einu, svo ég er líka með hliðarvörur sem fræða um náttúruna, spilastokk sem heitir Flóruspilið, jurtalitapúsluspil og bókina Grasnytj- ar á Íslandi, þjóðtrú og saga,“ segir Guðrún sem er afar ánægð með að allt sé að glæðast eftir covid-innilokun. „Ég opnaði nýju stóru vinnustof- una mína nánast á þeim degi sem cov- id skall á. Fyrsta árið var því verulega þungt hjá mér, en síðastliðið ár var mjög gott. Ég er spennt fyrir komandi sumri og gaman að geta aftur haldið fyrirlestra með fólk fyrir framan mig. Ég hef verið að halda zoomfyrirlestra, en nálægð við fólk er svo miklu meira gefandi.“ Fyrirlestur Guðrúnar verður í Heimilisiðnaðarskólanum Nethyl 2e, Rvk., nk. miðvikudag, 6. apríl, kl. 20. „Yfirstéttarkarlar í Íslendingasögunum riðu um héruð og vildu láta fara mikið fyrir sér í litklæðum,“ segir Guðrún Bjarnadóttir sem þekkir vel litatímabilin í sögu okkar Frónbúa. Hún stundar jurtalitun og býður fólki til sín að fræðast. Jurtalitun Guðrún á kafi í pottunum að sýna fólki og fræða um litun. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Forgangssvið 2022 eru: Efla samstarf fræðsluaðila í þróun stafrænnar hæfni í kennslu, óháð búsetu. Gerð er krafa um samstarf minnst þriggja fræðsluaðila. Gerð og þróun rafrænna námsgagna, með áherslu á talað mál og menningu, í íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Sérstök áhersla á neðri þrep evrópska tungumálarammans (A1, A2, B1). Hæfnigreiningar og starfaprófíllar í samstarfi atvinnulífs og fræðsluaðila eða Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Við mat á umsóknum er m.a. litið til þess hvernig þær falla að markmiðum 2. greinar laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu, faglega þekkingu og reynslu umsækjanda af að vinna verkefni sem sótt er um styrk til. Að auki þurfa umsóknir að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera vandaðar og skýrt fram settar. Skýr tenging við markhóp laga um framhaldsfræðslu. Mæti sýnilegri þörf fyrir úrræði í framhaldsfræðslu. Hafi skýr skilgreind markmið og skilgreinda verkefnastjórn. Hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun. Skili hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Verkefnin skulu vera opin öllum fræðsluaðilum, mega ekki gera kröfu um umtalsverðan eða íþyngjandi kostnað, eða flókna sérfræðiþekkingu fyrir þá sem nýta sér afurðina. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað, lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og nánari upplýsingar um vinnuferli og viðmið vegna styrkumsóknar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is Umsóknarfrestur er frá 28. mars og til 1. maí. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði til nýsköpunar- og þróunarverkefna. Styrkir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.