Morgunblaðið - 26.03.2022, Page 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Höfn í Hornafirði
Árleg Menningarhátíð sveitar-
félagsins var haldin 11. mars sl. í
Nýheimum. Það ríkir alltaf nokkur
eftirvænting vegna hennar en tilefni
hátíðarinnar er að afhenda styrki og
aðrar viðurkenningar til frjálsra fé-
lagasamtaka, stofnana og einstakl-
inga sem sinna fjölbreyttum menn-
ingarverkefnum og félagslífi. Á
hátíðinni er ungu tónlistarfólki jafn-
framt gefið tækifæri til að koma
fram.
- - -
Menningarverðlaunin vekja
oft mesta athygli en þau féllu að
þessu sinni Hönnu Dís Whitehead í
skaut fyrir framlag hennar til lista
og hönnunar. Verk Hönnu Dísar
hafa vakið verðskuldaða eftirtekt og
er hún eftirsóttur hönnuður víðs
vegar um heiminn. Hún hefur haldið
sýningar í heimabyggð, Reykjavík
og víða erlendis.
Hanna Dís hefur m.a. skipulagt
listasmiðjur fyrir börn á Hornafirði
og á sl. ári var hún valin til að hanna
vörur fyrir Listasafn Reykjavíkur
og Ásmundarsafn. Vörulína Hönnu
Dísar, Dialog, sem framleidd er á
Hornafirði, var meðal þeirra verka
sem valin voru í auglýsingaherferð
Eyjólfs Pálssonar í Epal til að
kynna fjölbreytileika íslenskrar
hönnunar svo fátt eitt sé nefnt.
- - -
Umhverfisverðlaunin þykja
sömuleiðis áhugaverð og heiður að
hljóta. Verðlaunin skiptast í þrjá
flokka. Í flokki einstaklinga hlutu
viðurkenningu Hulda Laxdal
Hauksdóttir og Páll Róbert Matt-
híasson fyrir snyrtilega lóð og sjálf-
bæra hugsun. Á heimili þeirra Hafn-
arbraut 41 er allur lífrænn
úrgangur nýttur, annaðhvort sem
fóður fyrir hænurnar eða til moltu-
gerðar. Hæsnaskíturinn er svo nýtt-
ur í beðin og grænmeti ræktað þar á
sjálfbæran hátt.
Í flokki fyrirtækja hlutu viður-
kenningu Sigurlaug Gissurardóttir
og Jón Kristinn Jónsson, eigendur
gistiheimilisins Brunnhóls, fyrir öt-
ult starf að umhverfismálum og
snyrtilegt umhverfi fyrirtækisins
þar sem umhverfisvitund hefur ver-
ið í hávegum höfð í áratugi. Þau
hafa hlotið umhverfisvottun Vakans,
voru frumkvöðlar í notkun tveggja
þrepa fráveitu og hafa flokkað allt
sorp í um 30 ár. Sömuleiðis hafa þau
unnið ötullega að bættu aðgengi að
hinni miklu náttúrufegurð svæð-
isins.
Í flokki lögbýla hlaut Ragnar
Pétursson í Þorgeirsstöðum viður-
kenningu fyrir snyrtilega umgengni
og frumlega innsetningu. Nálægt
heimreiðinni að bænum hefur hann
fest á klöpp einfaldan rauðan stól af
stærri gerðinni sem hefur orðið vin-
sæll áningastaður ferðafólks. Fólk
staldrar þar við til að taka myndir af
sér á stólnum með tignarlegt
Brunnhornið (Vestrahorn) í bak-
grunni. Þá hefur Ragnar verið til
fyrirmyndar í tengslum við rétt al-
mennings til útivistar en við veg-
slóðann inn í Þorgeirsstaðardal er
skilti sem á stendur „Not private
road“ eða „Ekki einkavegur“.
- - -
Leikfélag Hornafjarðar fagnar
60 ára afmæli með leiksýningunni
„Hvert örstutt spor“ sem er byggt á
Silfurtúngli nóbelsskáldsins. Höf-
undur og leikstjóri er Stefán Sturla.
Hefð er fyrir því að leikfélagið og
lista- og menningarsvið Framhalds-
skólans í Austur-Skaftafellssýslu
(FAS) vinni saman að uppsetningu
leikverka og reynslan af því sam-
starfi er góð. Sýningin hefur fengið
sérstaklega góðar viðtökur og er öll-
um sem að henni koma, eldri sem
yngri, til sóma.
- - -
Rannsóknasetur Háskóla Ís-
lands á Hornafirði fagnar 20 ára af-
mæli um þessar mundir. Af því til-
efni var ársfundur rannsóknasetra
haldinn á Höfn 23.-24. mars. Fyrri
daginn var boðað til veglegs afmæl-
ismálþings í Nýheimum þar sem
starfsmenn nokkurra rannsókna-
setra kynntu rannsóknarverkefni
sín. Ýmsir gestir komu til þess að
taka þátt í fundinum, m.a. Jón Atli
Benediktsson rektor og Áslaug
Arna Sigurðardóttir ráðherra sem
fluttu ávörp. Starfsemi rannsókna-
setranna á landsbyggðinni mælist
vel fyrir hjá heimafólki.
- - -
Þórbergssetur á Hala í Suður-
sveit heldur upp á afmælisdag
skáldsins á hverju ári með veglegri
og fjölbreyttri dagskrá. Á morgun,
sunnudag, verður dagskrá þar sem
gestir á hátíðinni eru Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur sem
rifjar upp minningar úr barnæsku
frá kynnum sínum af Þórbergi
Þórðarsyni og skreytir þær með
skáldlegu ívafi eins og honum er
einum lagið. Með honum í för eru fé-
lagar hans frá hinum fornu Spöðum.
Einnig kemur í heimsókn Sól-
veig Pálsdóttir rithöfundur og
barnabarn Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta. Hún kynnir bók sína Kletta-
borgina þar sem segir frá dvöl henn-
ar í Hraunkoti í Lóni á sjöunda ára-
tug síðustu aldar.
Ljósmynd/Bryndís Bjarnason
Hátíðleg athöfn Fjölmargir fengu afhentar viðurkenningar, verðlaun og styrki á árlegri menningarhátíð sveitarfélagsins í Nýheimum á dögunum.
Fengu afhent verðlaun og styrki
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Vegagerðin hefur auglýst fyrsta út-
boðið sem tengist fyrirhuguðum
stokkum á þjóðvegum í Reykjavík.
Óskað er eftir tilboði í mat á um-
hverfisáhrifum og forhönnun
Reykjanesbrautar milli Vestur-
landsvegar og Holtavegar.
Um er að ræða hönnun vegstokks
í núverandi vegstæði Sæbrautar
(Reykjanesbrautar), um 850 metra
að lengd, frá Vesturlandsvegi og
fram yfir Kleppsmýrarveg. Fyrir
gatnamótin við Holtaveg verður að-
lögun vegar og stokks lokið að nú-
verandi vegi. Aðlaga þarf rampa á
mislægum gatnamótum Sæbrautar
og Miklubrautar þegar Sæbrautin
er lækkuð. Stokkurinn færi undir
gatnamót Kleppsmýrarvegar og
Skeiðarvogs og yrðu ný gatnamót
þar ofan á norðurhluta stokks með
römpum að og frá Sæbraut til norð-
urs og suðurs.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli
hæfnismats og verðs og ber bjóð-
anda að leggja fram tilboð sitt í
tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um
hæfni bjóðanda og verðtilboð, segir
á vef Vegagerðarinnar. Tilboðum
skal skilað rafrænt þriðjudaginn 26.
apríl nk. sisi@mbl.is
Bjóða út hönnun á stokki
- Um 850 metra vegstokkur verður á stæði Sæbrautar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sæbraut Stokkurinn mun liggja frá Vesturlandsvegi og verður 850 metrar.
2022
Sjálfstæðisflokkurinn er með próf-
kjör í dag í tveimur sveitarfélögum
vegna komandi sveitarstjórnar-
kosninga; í Vestmannaeyjum og á
Akureyri. Kosning utan kjörfundar
hefur verið í gangi á báðum stöðum
í vikunni.
Í Eyjum eru 15 manns í framboði
og kosið er um átta efstu sætin.
Kosið verður í dag í Ásgarði frá kl.
10-18. Tveir gefa kost á sér í fyrsta
sætið, þau Hildur Sólveig Sigurðar-
dóttir og Eyþór Harðarson.
Á Akureyri er kosið í Brekku-
skóla frá kl. 10-18. Sex eru í fram-
boði en kosið verður um fjögur
efstu sæti listans. Einn gefur kost á
sér í 1. sæti eingöngu, Heimir Örn
Árnason. Ketill Sigurður Jóelsson
býður sig í 1.-2. sæti og Þórhallur
Jónsson bæjarfulltrúi í 1.-3. sæti.
Prófkjör á Akureyri
og í Eyjum í dag
Sigurður Torfi
Sigurðsson ráðu-
nautur leiðir
lista Vinstri-
grænna sem
samþykktur var
á félagsfundi VG
í Árborg í fyrra-
kvöld. Svandís
Svavarsdóttir
matvæla-
ráðherra var sér-
stakur gestur fundarins og ræddi
stöðu stjórnmálanna við fundar-
gesti. Í öðru sæti listans er Guð-
björg Grímsdóttir framhaldsskóla-
kennari og Jón Özur Snorrason í
þriðja. Formaður Vinstri-grænna í
Árborg, Sædís Ósk Harðardóttir, er
í fjórða sæti listans.
Sigurður Torfi leiðir
VG í Árborg
Sigurður Torfi
Sigurðsson
Framboðslisti
Bæjarlistans í
Hafnarfirði hef-
ur verið sam-
þykktur. Í efsta
sæti er Sigurður
P. Sigmundsson
hagfræðingur.
Annað sæti skip-
ar Hulda Sólveig
Jóhannsdóttir
íþróttafræðingur
og það þriðja Árni Þór Finnsson,
gönguleiðsögumaður og lögfræð-
ingur. Sæti fjögur til átta skipa
Guðlaug Svala Steinunnar Krist-
jánsdóttir, Arnbjörn Ólafsson,
Klara Guðrún Guðmundsdóttir, Jón
Gunnar Ragnarsson og Ingibjörg
Gróa Gunnarsdóttir. Lilja Eygerð-
ur Kristjánsdóttir og Einar P. Guð-
mundsson reka lestina í níunda og
tíunda sæti listans.
Framboð Bæjarlist-
ans í Hafnarfirði
Sigurður P.
Sigmundsson