Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 M eðal afmæl- isbarna vik- unnar er Jo- hann Sebastian Bach (f. 1685). Halda mátti upp á fæðing- ardag meistarans 21. mars sl. ellegar bíða fram í næstu viku, 31. mars, allt eftir því hvernig reiknað er. Sam- kvæmt júlíanska tímatalinu er afmælisdagurinn liðinn en eftir hinu gregoríska, hinum „nýja stíl“, eru enn nokkrir dagar í afmælið. Slíkt yfirburðatónskáld og andlegur risi gæti vissulega vel átt skilið tvöfalt afmæl- ishald, ef ekki 11 daga hátíð ár hvert. Fleiri mætti nefna; Árni Magnússon handrita- safnari (f. 1663) fæddist 13. nóvember, eftir hinum „gamla stíl“ sem tíðkaðist er hann kom í heiminn, en afmælisdagur hans væri 23. nóvember eftir gregoríska tímatalinu sem hér var tekið upp árið 1700. Tilraunir hafa verið gerðar til að komast að því hvort tónlistariðkun og tónlistarhlustun stækki heilabú fólks einhvern veginn. Vísbendingar munu hafa fundist í þá veru en þá helst í sambandi við beina iðkun fremur en ein- göngu hlustun. En hvort sem tónlistin stækkar heil- ann í okkur eða ekki þá er hitt ótvírætt að íslensk tón- listarumfjöllun, tónlistar- námsefni, tónlistargagnrýni og tónlistarsaga á íslensku stækkar og styrkir íslenska tungu. Staða málsins styrkist eftir því sem það er notað á fleiri sviðum lífs og listar. Orðið tónskáld er snilldarhugtak enda hafa íslenskir málnotendur kunnað því svo vel að það er almennt miklu meira notað en kompónisti. Hið ævagamla orð hljóðfæri samsvarar orðum á borð við verkfæri og eld- færi. Sögnin að tónsetja er auðskilin; tónskáldið tónsetti ljóð Ingibjargar. Þá eru lýsingarorðin ómstríður og ómblíður lýsandi um viss tónbil eða tóna. Tónlistarmálið geymir ýmis dæmi þess hvernig laga má erlend heiti að beygingum og framburði í íslensku. Þannig eru sónöturnar með glæsi- legu u-hljóðvarpi eins og jöturnar, og víólur og tríólur beygjast eins og graftarbólur og aparólur. Mörg heiti í tónlist eiga sér þó fáar hliðstæður í upprunalegum norrænum orðaforða hvað varðar beygingu og hljóð- skipan, t.a.m. líbrettó, öðru nafni óper(ett)utexti. Ýmis erlend heiti um hraða eða áferð eru jafnan notuð lítt eða ekki breytt en sem vonlegt er skila hugtökin sér þó best til ungra iðkenda þegar reynt er að snara þeim á íslensku, t.d. vivace – líflegt, cantabile – syngjandi, andante – með gönguhraða. En allur er þessi orðaforði hluti af heildarvef sem teygir á íslenskunni og tengir hana um leið að hluta til við alþjóðlegt tónlistar- tungutak. Meginatriðið er að fjallað er um tónlist í íslenskum textum og í sam- skiptum íslenskumælandi fólks á móðurmáli þess; minna máli skiptir þótt sum orðanna beri ótvíræð merki síns erlenda uppruna. Hver einasta sérgrein sem sinnt er á íslensku máli breikkar notkunarsvið tungunnar og styrkir grundvöll hennar sem þjóðtungu sem stendur undir nafni: Tunga sem nota má og notuð er á öllum sviðum samfélagsins. Slá þú hjartans hörpustrengi Ari Páll Kristinsson ari.pall.kristinsson- @arnastofnun.is Tungutak Johann Sebastian Bach Afmælisbarn vikunnar, f. 21./31. mars 1685. S é litið tvö ár til baka og til óttans sem sótti að mörgum vegna frétta af heimsfaraldrinum og óvissu um framtíðina vegna heilbrigðismála, af- komu þjóðarbúsins og heimilanna ætti brúnin að léttast við fréttir sem berast núna. Það er til marks um þáttaskil að föstudaginn 1. apríl ætla íslensk stjórnvöld að hætta að niðurgreiða hraðpróf vegna Covid-19. Undanfarna mánuði hafa þessi próf lok- að eða opnað okkur dyr að eðlilegum samskiptum. Heild- arkostnaður ríkisins af sýnatöku vegna heimsfaraldurs- ins frá því hann hófst nemur samtals 11,4 milljörðum króna. Þetta er aðeins ein af háum útgjaldatölum ríkis- sjóðs þegar litið er til faraldursins. Enn á ný skal ítrekuð tillaga um að samin verði rann- sóknarskýrsla um hvernig við var brugðist af hálfu opin- berra aðila vegna faraldursins. Hér er um slíkt áfall fyrir samfélag okkar að ræða að um það gildir sama og bankahrunið, þótt ólíku sé saman að jafna, að málið verður að gera upp á óhlutdrægan hátt svo að af því megi læra. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti ríkisstjórninni föstudag- inn 18. mars niðurstöður lífs- kjararannsóknar Hagstofunnar fyrir árin 2019-2021 sem sýna að heimilin telja gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki. Hlutfall heimila sem eiga erfitt með að láta enda ná saman hefur aldrei verið lægra og aldrei hafa færri talið byrði húsnæðiskostn- aðar þungan. Hlutfall heimila sem segjast búa við efnislegan skort er nálægt sögulegu lágmarki og aldrei hafa færri heimili sagst eiga í erf- iðleikum með að mæta óvæntum útgjöldum. Hlutfall heimila í vanskilum hefur heldur aldrei verið lægra en árið 2021 þegar vanskilahlutfall þeirra var 0,9% í lok árs- ins. Um 22% heimila bjuggu í leiguhúsnæði árið 2021 og hefur hlutfallið ekki verið lægra síðan 2009. Fjárhagsleg byrði heimila á leigumarkaði er erfiðari en þeirra sem búa í eigin húsnæði. Þannig telja 19% heimila á leigu- markaði byrði húsnæðiskostnaðar þunga. Hlutfallið hef- ur verið stöðugt undanfarin ár. Sambærilegt hlutfall fyr- ir heimili í eigin húsnæði er 10% og hefur þeim fækkað stöðugt frá því mælingar hófust. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hélt áfram að aukast á síðasta ári þrátt fyrir vaxandi verðbólgu en hann jókst um 1,1% á mann árið 2021 – en vöxturinn var 2,2% árið 2020. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur hækkað um þriðjung frá árinu 2013. Hagstofan áætlar að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist um 7,5% árið 2021. Ráðstöfunartekjur á mann jukust um 5,6%. Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um um 1,1%. Fáir hefðu líklega trúað því fyrir tveimur árum að töl- ur af þessu tagi birtust um hag heimila og einstaklinga í lok heimsfaraldursins hér á landi. Á tveggja ára fresti tekur norræna rannsóknarstofn- unin Nordregio púlsinn á efnahagsmálum, vinnumark- aðnum og íbúaþróun í öllum norrænum sveitarfélögum og landshlutum. Í ár er í skýrslu Nordregio, „State of the Nordic Region“, fjallað um heimsfaraldurinn, „áhrif hans kortlögð og settir fram ýmsir mælikvarðar sem sýna hversu þrautseigt norræna samfélagslíkanið er þegar á reynir,“ segir á vefsíðu norrænu ráðherranefnd- arinnar miðvikudaginn 23. mars, degi Norðurlandaráðs. Þar kemur fram að vegna styrkleika fjármálakerfa Norðurlanda við upphaf faraldursins hafi verið hægt að verja fé í bætur vegna vinnutaps, skattaívilnanir og stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki. Meðaltekjur heimila lækkuðu ekki, þökk sé fjárfestingum í vinnu- markaðsúrræðum. Þessar ráðstafanir hafi mildað fé- lagsleg áhrif heimsfaraldursins. Á heildina litið var efnahagsleg niðursveifla á Norð- urlöndum í samræmi við með- altalið á alþjóðavísu en mun minni en í Evrópusambandinu. Verg landsframleiðsla dróst saman um 3% á Norðurlöndum miðað við 5,9% í ESB. Sökum þess hve Íslendingar eru háðir ferðaþjónustu voru áhrifin mest hér árið 2020, þar sem verg landsframleiðsla dróst saman um 7,1%. Sambærileg tala í Dan- mörku var 2,1% en 0,7% í Noregi. Samanlagt virði allra efnahagslegra stuðningsráðstaf- ana í Danmörku nam 32,7% af vergri landsframleiðslu (VLF). Þar á eftir kom Svíþjóð með 16,1% af VLF. Finn- ar, Íslendingar og Norðmenn fjárfestu sem nemur 12- 14% af VLF. Nú bendir allt til þess að ferðaþjónustan nái sér á flug hér að nýju. Samtök atvinnulífsins (SA) birtu í vikunni úttekt sem sýnir nauðsyn þess að hér sé enn gert stór- átak til að bregðast við þörfinni fyrir erlent starfsfólk til að tryggja hagvöxt. Samtökin telja að á næstu fjórum árum, árin 2022- 2025, fjölgi innlendu fólki á vinnualdri um 3.000 en störf- um fjölgi að minnsta kosti um 15.000. Þörf fyrir innflutn- ing erlends starfsfólks verði mikil, það er minnst 12.000. Langflestir þeirra þurfi að hafa háskólamenntun eða aðra sérmenntun sem styrki atvinnulífið. SA telja að 80% þeirra hefji störf í einkageiranum og 20% hjá opin- bera geiranum. Rúmur helmingur verði háskólamennt- aður, þriðjungur með framhaldsskólamenntun og einn af hverjum átta með grunnskólamenntun eingöngu. Um þessar mundir er mikill viðbúnaður hér vegna komu flóttafólks frá Úkraínu. Þar reynir á seiglu þjóð- félagsins og hæfni til úrlausnar vegna miskunnarleysis tilefnislauss stríðs. Allir eru boðnir og búnir til að rétta hjálparhönd á hættustund. Hitt er síðan að líta til lengri tíma og ná betri sátt en nú ríkir um skipan útlendinga- mála þar sem ekki vaknar grunur um að skipulega sé reynt að misnota félagslega kerfið. Heimilin koma vel frá faraldrinum Fáir hefðu líklega trúað því fyrir tveimur árum að tölur af þessu tagi birtust um hag heimila og einstaklinga í lok heimsfaraldursins hér á landi. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Þegar Úkraínumenn lýstu yfir sjálfstæði árið 1991 voru þeir að feta í fótspor margra annarra Evr- ópuþjóða. Norðmenn höfðu sagt skil- ið við Svía árið 1905, af því að þeir voru og vildu vera Norðmenn, ekki Svíar. Finnar höfðu sagt skilið við Rússa árið 1917, af því að þeir voru og vildu vera Finnar, ekki Rússar. Íslendingar höfðu stofnað eigið ríki árið 1918, af því að þeir voru og vildu vera Íslendingar, ekki Danir. En hvað er þjóð? Algengasta svarið er, að það sé hópur, sem tali sömu tungu. En það er ekki rétt. Bretar og Bandaríkjamenn tala sömu tungu, en eru tvær þjóðir. Svisslendingar eru ein þjóð, en þar eru töluð fjögur mál. Önnur skilgreining er eðlilegri. Þjóð er heild manna, sem vegna sam- kenndar og fyrir rás viðburða vill stofna saman og halda uppi eigin ríki. Það er viljinn til að vera þjóð, sem ræður úrslitum. Franski rithöf- undurinn Ernest Renan orðaði þessa hugmynd vel á nítjándu öld, þegar hann sagði, að þjóðerni væri dagleg allsherjaratkvæðagreiðsla. Hann var talsmaður þjóðlegrar frjálshyggju, en hún bætir úr þeim galla á hinni annars ágætu hugmynd um frjálsan, alþjóðlegan markað, þar sem menn skiptast á vöru og þjónustu öllum í hag, að þar er ekki gert ráð fyrir neinni sögu, neinni samkennd, neinu sjálfi. Menn þurfa ekki aðeins að hafa. Þeir þurfa líka að vera. Menn eru ekki aðeins neytendur, heldur líka synir eða dætur, eig- inmenn eða eiginkonur, feður eða mæður. Jafnframt eiga þeir dýr- mætt sálufélag við samlanda sína, við Íslendingar við þær þrjátíu og fimm kynslóðir, sem byggt hafa þetta land á undan okkur, Úkra- ínumenn við ótal forfeður sína og for- mæður. Baráttan í Úkraínu þessa dagana er um sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Sjálfsákvörðunar- réttur þjóða - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 2.090 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.