Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.03.2022, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.03.2022, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 Brekkustígur 3, 245 Sandgerði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja herb. efri hæð og ris með sérinngangi við Brekkustíg í Sandgerði með sérinngangi Eignarlóð. Ath. skoðar skipti á ódýrari eign. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali s. 899 0555 Bjarni Fannar Bjarnason Aðstoðamaður fasteignasala s. 773 0397 Verð 31.000.000 Stærð 141,4 m2 G ens una sumus. Við erum ein fjölskylda. Þessi ein- kennisorð Alþjóðaskák- sambandsins, FIDE, blöstu við á stórum borða í Laugar- dalshöllinni fyrir 50 árum þegar Fischer og Spasskí háðu sitt fræga einvígi. En þessi orð eiga ekki við í dag og vandséð hver aðkoma Rússa verður í sumar þegar haldið verður upp á hálfrar aldar afmæli einvígis- ins. Sem betur fer eru þeir til meðal fremstu skákmeistara Rússa sem lýst hafa opinberlega yfir andúð sinni á innrásinni í Úkraínu. Má þar nefna Jan Nepomniachtchi, Peter Svidler, Alexander Grischuk og Alexöndru Kosteniuk. En Sergei Karjakin, fæddur og uppalinn Úkra- ínu og tók út sinn skákþroska þar, en gerðist rússneskur þegn árið 2009, var á dögunum dæmdur í sex mánaða keppnisbann af siðanefnd FIDE fyrir ömurleg ummæli og stuðning við innrás Rússa. Því hefur verið haldið fram að Pútín, sem er þekktur skák- áhugamaður og gamall KGB-agent, hafi aldrei sætt sig við endalok Sov- étríkjanna og að í huga hans hafi raunverulegt uppgjör aldrei farið fram. Mín kynslóð ólst upp við magnaðan rússneskan skákkúltúr og að tefla í einhverju lýðveldi Sov- étríkjanna var besta leiðin til að auka styrk sinn; á einu ári, 1988-’89, tefldi ég á þremur alþjóðlegum mót- um eystra: í Jerevan, Sotsjí og Moskvu. Það var líka stór stund að mæta Sovétmönnum á ólympíu- mótum og það gerðum við fjórum sinnum á tímabilinu 1980-1990. Ís- lendingar tefldu við Sovétmenn í síð- ustu viðureign stórveldisins á ól- ympíumótinu í Novi Sad í gömlu Júgóslavíu haustið 1990. Þegar horft er yfir farinn veg þá blasir við að Rússar og Úkraínu- menn áttu flesta skákmennina í lið- um Sovétríkjanna sem unnu öll ól- ympíumót utan eitt á tímabilinu 1952-1990. Efim Geller kom frá hafnarborginni Odessa en hinir eru flestir frá Lviv og grennd: Leonid Stein, Oleg Romanishin, Alexander Beljavskí og Vasilí Ivantsjúk. Hvernig má það gerast að Rússar ráðist með slíkri heift á gamla bræðraþjóð sína? „Fasismi er lygi sem er borin fram af ruddum,“ sagði Ernest Hemingway í ræðu fyrir 85 árum („… facism is a lie told by bul- lies“). Rússneski sendiherrann sem kom fram hjá RÚV um daginn hefði alveg mátt sleppa þeirri lygaþvælu að athæfi Rússa sé eitthvað annað en morðárás. Íslendingar eru betur upplýstir en svo að nokkur trúi slíku. Það er ekki verið að loka á sam- félagsmiðlana hér né heldur raun- verulegar fréttir. En kannski var þessi maður ekki frjáls orða sinna. Látum fremsta skákmann Úkra- ínu fyrr og síðar eiga síðasta orðið: ÓL í Istanbúl 2012: Vasilí Ivantsjúk (Úkraína) – Wang Hao (Kína) Nimzo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. Rf3 b6 7. a3 Bxc3+ 8. bxc3 c6 9. cxd5 cxd5 10. De2 Rc6 11. 0-0 Ra5 12. a4 He8 13. Re5 Re4 14. f3 Rd6 15. Ba3 Bb7 16. Bxd6 Dxd6 17. f4 g6 18. Dg4 Rc4 19. Dg3 Dc7 20. Bxc4 dxc4 21. f5! Þetta gegnumbrot ræður úrslit- um. 21. … f6 22. fxg6 fxe5 23. Hf7 Dc6 24. gxh7+“ Snilldarlega leikið. 24. … Kxf7 25. Hf1+ Ke7 26. h8(D)! Og annar frábær leikur þó að 28. Dg7+hefði líka unnið. 26. … Hxh8 27. Dg7+ Kd6 28. dxe5+ – og svartur gafst upp, því mát blasir við, t.d. 28. … Kd5 29. Hd1+ Ke4 30. Hd4+ Kxe3 32. Dg5+ Ke2 33. Dd2 mát. Einkunnarorð FIDE eiga ekki lengur við Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Helgi Árnason. Þrjár efstu Þessar urðu efstar á vel sóttu stúlknamóti sem fram fór í sam- komusal Siglingaklúbbsins Ýmis, f.v.: Guðrún Fanney Briem, Freyja Birkis- dóttir sem varð efst og Iðunn Helgadóttir. Ásgeir Pétursson fæddist 21. mars 1922 í Reykjavík og ólst upp á Hólavöllum við Suðurgötu. Foreldrar hans voru hjónin Pét- ur Magnússon, f. 1888, d. 1949, bankastjóri og ráðherra, og Þór- unn Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 1895, d. 1966, húsmóðir. Ásgeir var formaður Heim- dallar 1950-52 og formaður Sam- bands ungra sjálfstæðismanna 1955-57. Árin 1951-61 starfaði hann í forsætisráðuneytinu og sem aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar menntamála- ráðherra 1953-56. Hann var sýslumaður Borgarfjarðarsýslu 1961-79 og bæjarfógeti í Kópa- vogi 1979-92. Ásgeir var formaður Náttúru- verndarráðs Íslands 1956-60 og stjórnarformaður Sementsverk- smiðju ríkisins lengst af 1959-89. Hann beitti sér m.a. fyrir stofnun Tónlistarfélags Borgarfjarðar og stuðlaði mjög að uppbyggingu Reykholts. Hann var varaþing- maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1964-72. Hann var formaður orðunefndar 1996-2001. Árið 2006 gaf Ásgeir út endurminn- ingar sínar, Haustliti. Eiginkona Ásgeirs var Sigrún Hannesdóttir, f. 1923, d. 2006, húsmóðir. Börn þeirra eru fjög- ur. Ásgeir lést 24. júní 2019. Merkir Íslendingar Ásgeir Pétursson Nú er hamrað á því að ekki sé svig- rúm til kjarabóta handa almennum launþegum, sem horfa stóreygir á sjálftökuliðið hirða öll þau laun, bónusa og kauprétti sem hugurinn girnist. Þetta ástand hefur farið síversnandi, eftir því sem fákeppnin hefur vaxið. Að stjórnmála- og emb- ættismenn miði laun sín við laun fákeppnisforstjóranna er „ban- eitrað“, því þar með vantar allt mótvægi og eftirlit. Leitað lausnar Hugmynd mín, til að stöðva „höfrungahlaup“ stjórnendanna, er eftirfarandi: Lögbundið verði að ráðningarferli í störf for- stjóra allra félaga og stofnana sem fara með almannafé, s.s. op- inberra hlutafélaga, lífeyris- sjóða, banka, almenningshluta- félaga og félaga sem hafa verið úrskurðuð markaðsráðandi, verði í tveimur þrepum: Fyrst yrði auglýst eftir umsækjendum og þeir hæfu valdir úr. Svo yrði hinum hæfu gefinn kostur á að endurnýja umsóknina, en nú með bindandi tilboði um þau mánaðarlaun sem viðkomandi býðst til að leysa starfið af hendi á, án nokkurra auka- greiðslna. Um yrði að ræða eft- irlitsskylt „lokað útboð“, svo skylt væri að taka því boði sem yrði hagstæðast og birta opin- berlega. Með þessari aðferð mundi forstjórinn njóta „sam- keppnishæfra“ kjara, sem er það orð sem notað er til að réttlæta launakröfur sjálftökufólksins. Binda mætti launin eftir þetta við launavísitölu, en ekki mætti greiða umfram það. Vilji menn hækka launin meira skuli starfið auglýst laust og allt ráðningar- ferlið endurtekið. Almannafé Réttlætingin væri sú að öll fé- lög sem fara með almannafé, sem eru ekki bara ríkisfyrirtæki, því skráð félög á markaði gera það t.d. líka og öll félög sem starfa utan virks samkeppn- ismarkaðar, skuli halda launakostnaði yfirmanna niðri eins og öðrum kostnaði. Forstjórarnir mundu verða tregir til að veita aðstoðar- mönnum sínum hærri laun en þeir njóta sjálfir. Eðlilegt er að byrja á ríkisrekstrinum og halda svo áfram í ljósi reynslunnar. Menn mundu andæfa með því að vitna í EES-reglur, en það er einmitt vegna þess að á þessari eyju, fjarri stórum, virkum mörk- uðum, duga samkeppnisreglur EES ekki til að hindra sjálftöku arðs og launa! Svo mundu menn vitna til eignarréttar hluthafanna, sem útiloki að réttur þeirra til að ráða meðferð fjár síns verði skertur. Því er til að svara að réttur eins má ekki ganga út yfir rétt annarra. Sjálftaka forréttindafólks Stóri vandinn í samfélaginu er orðinn sá að fákeppni er orðin allsráðandi. Eigendur og stjórn- endur þessara fyrirtækja taka sér allan þann arð, öll þau laun og bónusa, sem hugurinn girnist. Við vitum að mannshugurinn girnist peninga, hann fær sig aldrei full- saddan af þeim. Kostnaðinum er velt beint út í verðlagið, heimilin borga lúxus hinna fáu. Þetta er nefnt „eignatilfærsla“. Menn raka saman fé sem aðrir hafa skapað, samkvæmt aðferðinni „margt smátt gerir eitt stórt“. Stjórn- málaflokkar ættu að taka þessi mál á dagskrá núna. Eftir Ragnar Önundarson Ragnar Önundarson » Stóri vandinn í samfélaginu er orðinn sá að fákeppni er orðin allsráðandi. Höfundur er fyrrverandi stjórnandi fákeppnisfélaga. Vitskert veröld?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.