Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 26.03.2022, Page 29

Morgunblaðið - 26.03.2022, Page 29
MESSUR 29Á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Jóhanna Gísladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Helga Vilborg Sigur- jónsdóttir flytur stutta kynningu á starfi kristni- boðssambandsins víðs vegar um heiminn í messukaffinu í Safnaðarheimilinu. Sunnu- dagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Hólmfríður Hermannsdóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Léttmessa sunnudag kl. 11. Prestarnir Petrína Mjöll og Þór þjóna fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir almennan söng. Org- anisti er Hrafnkell Karlsson, Már Gunnarsson tónlistarmaður syngur og talar til okkar. Val- björn Snær Lillendahl og Ingunn Björk Jóns- dóttir djákni sjá um sunnudagaskólann í safn- aðarheimili kirkjunnar. Fundur með foreldrum fermingarbarna vorsins eftir guðsþjónustuna. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 13. Boðunardagur Maríu haldinn. Þorgils Hlyn- ur Þorbergsson cand. theol. prédikar. Séra Sig- urður Jónsson þjónar fyrir altari. Sunnudaga- skólinn verður á sínum stað. Kór Áskirkju syngur, orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi eftir messu. Guðsþjónusta á hjúkr- unarheimilinu Skjóli kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organ- isti er Bjartur Logi Guðnason. Almennur söng- ur. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina ásamt sönghópi. Prestur er Arnór Bjarki Blomster- berg. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Sigrún Ósk, Pétur og Þórarinn. BREIÐHOLTSKIRKJA | Alþjóðlegi söfnuður- inn: Guðsþjónusta á farsí kl. 14. Prestur er Soroush Hojatti. Tómasarmessa kl. 20. Áslaug og Matthías sjá um tónlistina ásamt Karlakór KFUM. Kveðjumessa sr. Gísla Jónassonar pró- fasts. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Danni, Sóley, sr. Þorvaldur og Jónas Þórir. Guðsþjónusta kl. 13 á fjórða sunnudegi í föstu. Sr. Þorvaldur Víðisson þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Sálmar eftir séra Hallgrím Pétursson og fleiri verða á dagskrá. Biðjum fyrir friði í Úkraínu. Félagar úr Kamm- erkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónas- ar Þóris. Miðvikudagar í Bústaðakirkju: Eldriborgara- starf kl. 13.30-16. DIGRANESKIRKJA | Fjölskyldumessa sunnu- dag kl. 11. Sr. Helga Kolbeinsdóttir. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Hjallakirkja ABBA-messa kl. 17. Sr. Karen Lind Ólafsdóttir og sr. Sunna Dóra Möller. Gítar: Friðrik Karls- son. Píanó: Matthías V. Baldursson. Söngur: Áslaug Helga, Katrín Hildur og Kristjana Þórey. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Séra Elínborg Sturludóttir, Kári Þormar og Dómkór- inn. Eftir messu verður súpa til styrktar flótta- fólki frá Úkraínu. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 10.30. Gospelsamkoma kl. 20. Gestur okkar verður sr. Benjamín Hrafn Böðvarsson í Aust- fjarðaprestakalli, sem prédikar og leiðir einnig lofgjörð ásamt gospelhóp Egilsstaðakirkju, undir stjórn Tryggva Hermannssonar við flyg- ilinn. Sóknarprestur þjónar. Við biðjum fyrir friði og fólki á flótta og í lokin verður vöfflusala og frjáls framlög til styrktar mannúðarstarfi í Úkra- ínu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Samstöðu- guðsþjónusta til stuðnings Úkraínu kl. 11. Tek- in verða samskot til stuðnings neyðarsöfun Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir Úkraínu. Sérstakir gestir Diddú, Lay Low og Alexandra Chernyshova ásamt Grími Helgasyni klarinettu- leikara. Kór Fella- og Hólakirkju syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og Kristín Ólafs- dóttir fræðslufulltrúi Hjálparstarfsins segir frá stuðningi Hjálparstarfsins í Úkraínu. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. GLERÁRKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Við fáum heimsókn frá hópnum sem heldur ut- an um verkefnið Garðurinn hans Gústa. Eftir guðsþjónustuna verður vöfflukaffi þar sem hægt verður að setja frjáls framlög í bauk sem renna óskipt til verkefnisins. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Árni Heiðar Karlsson. Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, Ásta Jóhanna Harðar- dóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. Selmessa er í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Fluttur fiðlukonsert í a-moll eftir J.S. Bach. Flytjendur: Embla Karen Egilsdóttir, Kolbrún Eva Briem og Steinunn Dís Sævarsdóttir úr Suzukitónlistar- skólanum í Reykjavík. Organisti er Ásta Har- aldsdóttir. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng. Messuliðir með lagi Þorvaldar Halldórssonar. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messu- hópi. Opnun sýningar Selmuhópsins í forsal kirkjunnar. Kaffi og konfekt. Kyrrðarstund þriðjudag kl. 12. Núvitund fimmtudag kl. 18.15, einnig á netinu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs- þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson og þjónar og prédikar fyrir alt- ari. Tónlistarflutningur í umsjá Hrannar Helga- dóttur organista og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Ástu Guðmundsdóttur og félaga. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Friðarmessa kl. 11. Ræðumaður: Bjarni Gíslason, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson þjónar. Guðmundur Sigurðsson og félagar úr Barbörukórnum flytja tónlist frá Úkraínu. Fermingarbörn selja vöfflur til styrktar flóttamönnum frá Úkraínu. Sunnu- dagaskóli í safnaðarheimili kl. 11. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur er Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Kórinn Cantoque en- semble syngur. Organisti er Steinar Logi Helga- son. Umsjón barnastarfs: Kristný Rós Gúst- afsdóttir og Þuríður Helga Ingadóttir. Ensk messa kl. 14. Prestur er Bjarni Þór Bjarnason. Organisti er Kári Þormar. HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 á boðunardegi Maríu. Kór Ísaksskóla syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur við undir- leik Bjarkar Sigurðardóttur. Organisti er Guðný Einarsdóttir og prestur er Helga Soffía Kon- ráðsdóttir. Kirkjugestir eru hvattir til að koma með dúkkur sínar og bangsa í guðsþjónustuna. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Hinn 27. mars verður Abbamessa kl. 17 í umsjón sr. Sunnu Dóru Möller og sr. Karenar L. Ólafsdóttur. Matt- hías V. Baldursson sér um tónlistina ásamt Ás- laugu Helgu, Katrínu Hildi, Kristjönu og Friðriki Karlssyni sem er á gítar. Fjölskyldumessa 27. mars kl. 11 í umsjón sr. Helgu Kolbeinsdóttur. HJÚKRUNARHEIMILIÐ SKJÓL | Guðsþjón- usta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 14.15. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- komur á sunnudögum. Almenn samkoma kl. 11. Samkoma fyrir enskumælandi kl. 14 (Engl- ish speaking service). Samkoma fyrir spænskumælandi kl. 16 (reunión en español). ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam- koma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 13. Ólaf- ur H. Knútsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudag kl. 11. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari. Arnór og kór Keflavík- urkirkju færa okkur tónlist og söng. Helga og Grybos sjá um sunnudagaskólann. KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng. Undirleikari er Árni Heiðar Karls- son. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyr- ir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn í safnaðarheimilinu Borg- um á sama tíma. Kyrrðar- og íhugunarstund í kirkju miðvikudag kl. 17.30. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir og sr. Bolli Pétur Bollason þjóna. Organisti er Magnús Ragnarsson og Fílharmónían syngur. Sara tek- ur á móti börnunum í sunnudagaskólann og boðið er upp á léttan hádegisverð að lokinni messu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Elísa- bet Þórðardóttir organisti og Kór Laugarnes- kirkju annast tónlistarflutning. Sr. Jón Ragn- arsson þjónar og prédikar. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan. Kaffi og samvera á eftir. LÁGAFELLSKIRKJA | Fermingarathafnir verða sunnudag 27. mars kl. 10.30 og 13.30. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Birkir Blær Ingólfsson leikur á saxófón. Sr. Arndís Linn og Ragnheiður Jónsdóttir leiða helgihald. Bíó og popp. Sunnudagaskóli kl. 13 í safnaðarheim- ilinu Þverholti 3, 2. hæð. Aðgangseyrir: 1 steinn. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli, sem að þessu sinni verður inni í kirkju kl. 11. Messa kl. 20. Félagar úr kór Lindakirkju leiða lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Háskólakórnum syngja. Organisti er Gunnsteinn Ólafsson. Söngur, sögur, gleði og gaman í sunnudagskólanum. Umsjón Hilda Sigurðardóttir, Hrafnhildur Guð- mundsdóttir og Ari Agnarsson. Eftir guðsþjón- ustu verða lok sýningar Hallgríms Helgasonar, Það þarf að kenna fólki að deyja. Fjallað verður um verkin í prédikun og listamaðurinn flytur ávarp að messu lokinni. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Sunnudaginn 27. mars kl. 14 verður fermingarguðsþjónusta. Pétur þjónar fyrir altari, Óháði kórinn leiðir messusöng og mun frumflytja lög eftir Foreign- er og Blur í útsetningu Kristjáns Hrannars kór- stjóra. Barnastarf. Petra verður messugutti og Ólafur skráveifa. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borg- þórsson prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Ný sjálfsmynd kristni á Íslandi á 21. öld. Sr. Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri talar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stef- ánsson er organisti. Félagar úr Kammerkórn- um syngja. Kaffiveitingar að athöfn lokinni í safnaðarheimilinu. Stund fyrir eldri bæjarbúa þriðjudag kl. 14. Hjördís Geirs syngur og Þórey Dögg segir frá sumardvöl á Löngumýri. Kaffi og tertur. Kyrrðarstund miðvikudag kl. 12. VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í Urriða- holti kl. 10 og í safnaðarheimilinu kl. 11. Guðsþjónusta með þátttöku fermingarbarna kl. 11. Sr. Henning Emil Magnússon þjónar. Íhugunarguðsþjónusta kl. 20. Sr. Henning Emil Magnússon, sr. Hjalti Jón Sverrisson og Bylgja Dís Gunnarsdóttir leiða stundina. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organ- ista og sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðs- prestur þjónar fyrir altari. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon NeskirkjaV íðast hvar er mikill ein- hugur með úkraínsku þjóðinni sem þola má yfirgang stórveldisins sem hún deilir landa- mærum með. Þessi einhugur hefur ekki aðeins sprottið fram vegna þess að þarna á úkraínska þjóðin við ofurefli að etja og í slíkri stöðu finna allir til með hinum minni máttar. Vilja leggja honum lið. En úkra- ínska fólkið hefur sýnt ótrúlega seiglu, fórnarlund og bjart- sýni, andspænis her- sveitum óvinarins. Þessi viðbrögð hafa fangað heimsathygli og vakið fólk til vit- undar um hve styrkur samstöðu og tilfinn- ingar um réttlæti get- ur skipt sköpum. Fimm brauð, tveir fiskar Hvað getum við gert? Íslenska þjóð- kirkjan hefur Hjálp- arstarf kirkjunnar á sínum snærum og það hefur hrundið af stað neyðarsöfnun fyrir Úkraínu. Þar er unnið faglega í söfn- unarmálum og ein- valalið heldur utan um hana. Í fjölmörgum kirkjum um allt land eru hafðar um hönd svokallaðar stuðn- ingsmessur, friðarmessur og sam- stöðumessur. Þar er beðið fyrir Úkraínu og safnað. Allir leggjast á eitt. Fermingarbörn baka til dæm- is vöfflur í einni kirkjunni og selja til stuðnings úkraínsku þjóðinni sem er nú í herkví. Allar þessar messur eru vel sóttar og skipu- lagðar með miklum sóma. Hver leggur sitt fram þótt lítið sé. „Hér er piltur sem er með fimm byggbrauð og tvo fiska en hvað er það handa svo mörgum?“ var spurt eitt sinn þar sem þúsundir voru saman komnar og skorti mat. Meistarinn frá Nasaret leysti úr þeim málum. Ekkert var of lítið til að koma að notum. Á sama hátt er ekkert of lítið sem safnast í kirkjum landsins til handa Úkra- ínu. Allt skiptir máli þegar hug- urinn og væntumþykjan renna saman í eitt stórt hjarta. Og meira en það: Vel verður að hugsa um það sem safnast svo ekkert fari til spillis. Ábyrgð þeirra sem hrinda af stað söfnunum er mikil. Það er ekki aðeins keppikefli að standa vel að verki heldur og fara vel með það sem safnast. Mörgum var brugðið þegar rússneski bjarnarhrammurinn sló til Úkraínu með þeim orðum að hún hefði aldrei verið til. Það er ekki til meiri grimmd og mann- hatur en að segja við manneskju að hún hafi aldrei verið til. Hún er ekki einu sinni hlutgerð heldur tekin úr lífheild þjóða sem ein- staklingur. Með slíkum orðum er engu hlíft og mannslíf einskis met- in. Stríð beinist að fólki. Því dýr- mætasta sem hver þjóð á – lífgjöf skaparans. Á fjórðu milljón hafa lagt á flótta frá Úkraínu og millj- ónir eru lokaðar af á stríðshrjáðum svæð- um. Aldrei skortir stríðin Svo heyrist réttilega sagt að enginn hafi verið skorturinn á stríðshörmungum á fréttaskjáum lands- manna – og landinn misuppnæmur fyrir þeim. Átök eru mis- langt frá okkur og sums staðar eru þau orðin svo langvinn og þjakandi að þau líða hjá án þess að fólk veiti þeim athygli – það er enginn endir. Oft er sagt að stór- veldin bruggi launráð sín með átökum hér og þar í veröldinni – tefli þar fram ýmsum dát- um; öll eru þau með flekkaðar hendur þeg- ar kemur að fórnar- lömbum stríðsátaka. En allt í einu fannst Evrópubúum eitt land með fána himins og gullinna akra vera sér nær en önnur lönd. Kannski ein- mitt vegna hins einbeitta og ein- læga vilja úkraínsks almennings til að standa vörð um sjálfstæði lands síns og vestræn gildi sem hafa ver- ið að skjóta rótum þar. Það snart taugar fólks og því hafa svo margir stigið fram með sín fimm bygg- brauð og tvo fiska án allra úrtölu- orða um hvort það komi að nokkru gagni handa svo mörgum. Úkra- ínska þjóðin talar beint til fólks í persónu hins skelegga forseta þeirra og án allra vífilengja: „Þetta er að gerast fyrir augum ykkar og við biðjum um hjálp – og frið!“ Við erum krafin um að taka afstöðu. Hver vill ekki leggja eitthvað í hönd hins þjáða sem biður um hjálp? Og frið. Sú bæn brennur heitast á fólki þegar það horfist í augu við dráp á saklausum borg- urum, börnum, fulltíða fólki og gamalmennum. Bæn um að hjálp- arhraðar hendur færi úkraínsku þjóðinni líf og frið. Hvert og eitt okkar getur lagt sinn skerf af mörkum svo það megi ganga eftir. Ekkert er of lítið. Kirkjan til fólksins Ljósmynd/Colourbox, #6715 Úkraína „Allt í einu fannst Evrópubúum eitt land með fána himins og gullinna akra vera sér nær en önnur lönd.“ Ekkert er of lítið Hreinn S. Hákonarson Höfundur er prestur á sam- skiptasviði biskupsstofu. hreinn@biskup.is Sr. Hreinn S. Hákonarson Oft er sagt að stórveldin bruggi launráð sín með átök- um hér og þar í veröldinni – tefli þar fram ýmsum dátum – öll eru þau með flekkaðar hendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.