Morgunblaðið - 26.03.2022, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 26.03.2022, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 ✝ Egill Óli Helgason fæddist 3. apríl 1996. Hann lést 11. mars 2022. Hann var sonur Helga Svein- björnssonar, f. 30.1. 1949, og Hólmfríðar Bjarg- ar Ólafsdóttur, f. 10.4. 1954, d. 4.9. 2002. Hann átti tvö hálfsystkini, en þau eru þau Gunnur Ösp Jónsdóttir, f. 3.10. 1980, og Ívar Örn Helga- son, f. 15.12. 1977. Alsystir hans heit- ir Rannveig Góa Helgadóttir, f. 22.6. 1998. Sambýliskona hans og unnusta heitir Anna Mjöll Aðalsteinsdóttir Clausen, f. 13.12. 1997, og áttu þau von á sínu fyrsta barni í maí 2022. Útför hans fer fram í dag, 26. mars 2022, kl. 14 í Skál- holtskirkju. „Dáinn, horfinn“ – harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En eg veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. Hvað væri annars guðleg gjöf, geimur heims og lífið þjóða, hvað væri sigur sonarins góða? Illur draumur, opin gröf. Elsku Egill Óli, þessi orð Jón- asar Hallgrímssonar koma í hug- ann við skyndilegt og ótímabært fráfall þitt. Það er erfitt að bægja frá hugsunum um hvað manni finnst það óréttlátt og ósanngjarnt þegar ungur maður eins og þú ert tekinn á brott frá okkur, frá unn- ustu og ófæddu barni, fjölskyldu og vinum. Maður finnur til van- máttar síns og verður reiður en eins og þú sagðir svo oft: „Öll reiði er réttlát reiði svo lengi sem hún yfirtekur mann ekki.“ Þú varst svo mikill rokkari Eg- ill minn og svo mikill klettur. Stór og mikill klettur sem stóð með henni Önnu okkar í gegnum súrt og sætt. Það verður aldrei nóg þakkað fyrir það. Þú varst ekki beint árennilegur þegar Anna kom með þig í heimsókn, stór og mikill, en við nánari kynni kom í ljós hvaða mann þú hafðir að geyma. Hjá þér var glasið nánast alltaf hálffullt, jákvæður og auð- mjúkur varstu en líka staðfastur og trúr sjálfum þér. Þú spilaðir úr þeim spilum sem þér voru gefin og gerðir það á sem bestan hátt fyrir þig og þína. „Maður verður að muna að taka litlu sigrunum“ voru orðin þín. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Vinahópurinn þinn var sterkur og þú kletturinn sem hélt honum saman. Það var skemmtilegt þeg- ar hann kom saman í Birkigrund- inni til að spila. Hópurinn sund- urleitur en einhvern veginn samhentur og undir styrkri stjórn þinni við spilið. Um vini þína er eftir þér haft: „Ég vil skapa öruggt umhverfi fyrir vini mína svo ég geti komið þeim úr skelinni, fá þau til að virka í umhverfinu.“ Vin sínum skal maður vinur vera, þeim og þess vin. En óvinar síns skyli engi maður vinar vinur vera. (Úr Hávamálum) Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við þig Egill Óli, óskum þér velfarnaðar á veiðilendum ei- lífðarinnar. Gullkornin þín lifa með okkur áfram og við munum gera okkar besta til að búa Önnu og litla kút öruggt skjól í framtíð- inni. Hér er eitt gullkorn að lok- um: „Ég vinn í því að gera daginn betri, því ef dagurinn er slæmur þá er alltaf hægt að gera hann betri.“ Blessuð sé minning þín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Elsku Anna Mjöll og litli kútur, fjölskylda og vinir, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Asa Clausen og Aðalsteinn Bragason. Góðir vinir og samferðamenn eru ekki auðfundnir en sannar- lega eru þau sem fengu þann heiður að vera í þinni návist gæfu- rík og heppin að hafa kynnst þér. Hvort sem sú stund hafi verið lítið andartak eða stór og dýrmætur hluti af lífi manns erum við þér sannarlega þakklát fyrir það Eg- ill minn. Ég minnist þess að hafa kynnst þér á réttum tíma og þú varst mikilvægur hluti af æsku minni. Þú hélst áfram að vera góður vin- ur og drengur góður að leita til þegar maður þurfti á ýmsum ráð- um að halda, eða til að hittast og eiga góðar stundir saman í alls konar uppátækjum. Þú hafðir gengið í gegnum margt áður fyrr en þú náðir yf- irnáttúrulegum árangri í að standa af þér storminn sem dundi á þér eins og vanur skipstjóri úti á stórsjó. Þínu skipi stýrðir þú þína eigin stefnu og þú fórst með já- kvæðni og skopskyn að vopni þína vegleið. Styrkur þinn á sér engan samanburð og set ég þig á háan stall sem merki um þrautseigju og styrkleika. Væntumþykja og umhyggja eru líka orð sem lýsa þér vel og mikill dýravinur. Ég dáðist oft að kunnáttu þinni og þekkingu á dýralífi og þeirri umhyggju sem þú sýndir dýrum lofts, láðs og lagar í dýragarðinum í Slakka. Nói á örkinni hefði tvímælalaust farið í samkeppni við þig og þú hefðir sannarlega haft vinning- inn. Foreldrar þínir ólu þig vel upp með að útgeislun móðurlegs eðlis og föðurlegrar ímyndar væri miðlað til annarra, bæði manna og dýra. Þú hreinlega geislaðir af góðum kostum og dyggðum. Því það er víst rétt að ef maður hefur verið harkalega beygður eða brotinn en hefur samt hugrekki til að vera einlægur og kær til annarra lifandi vera, þá ertu hörkutól með hjarta engils. „Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gest- ur var ég og þér hýstuð mig. Klökkur ég var og þér biðuð með opinn faðminn til huggunar og öxl til að gráta á.“ Ég mun sakna þess Egill minn að geta leitað til þín þegar ég er hryggur og í sorg því þú varst alltaf tilbúinn til að hlusta og hugga þá sem til þín leituðu. Þitt hlutverk var dýr- mætt og víst er þá komið að okkur að vera þeir sem hafa opinn faðm og öxl til að gráta á. Því ég veit að þú leitaðir líka til okkar á lífsleið- inni þegar þú varst í sorg. Það er sönn óendurgoldin ást og mikil- vægur lærdómur sem verður miðlað áfram, því ég veit að hugg- un er ekki langt undan. Vegferðin hefur verið skraut- leg og gott veganesti út í lífið. Mikill söknuður mun ríkja en ei skal gleyma að lifa í þökk og gleði fyrir hvern þann dag sem okkur er gefinn sem dýrmæta gjöf, eins og þú sýndir okkur. Hafðu hátt á himnum, þú þarna háværi, orðheppni, bros- mildi, yndislegi og lífsglaði kump- áni. Gefðu styrk þinn til þeirra sem þess þurfa og hönd á bak þeirra sem á stuðningi þurfa að halda. Ég finn fyrir hendi þinni á öxl minni, því þú munt vera okkur nær um aldur og ævi. Þegar ég lít upp sé ég þitt fallega, hlýja bros sem veitir ró í hjörtum okkar. Farðu í friði blessaður vinur minn og göfugmenni. Blessi þig að eilífu Egill minn. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar. Þinn Sjafnar Björgvinsson. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur villst af leið. Ó, faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf, uns allt það pund, sem Guð mér gaf, ég gef sem bróðurarf. (M. Joch.) Þessi gömlu vers lýsa betur en flest annað sem ég hef lesið lífs- viðhorfi Egils Óla. Það var bjartur og fallegur dagur þegar hann kom fyrst til okkar í Rauðaskóg. Sólskindag- arnir okkar saman áttu eftir að verða margir, fyrst þar upp frá og seinna hér í Reykholti. Það kom eins og af sjálfu sér að hann kallaði okkur afa og ömmu, einkabrandarinn okkar var að amma kallaði hann enn unga litla eftir að hann var orðinn meira en höfðinu hærri en hún. Það eru forréttindi að kynnast svo góðum dreng, sem hugsaði um það hvað hann gæti gert fyrir aðra en ekki hvað aðrir gætu gert fyrir hann. Minningarnar eru svo margar; Egill Óli að bera lítinn félaga á há- hesti svo stubburinn gæti séð gos- mökk sem húsin skyggðu á. Eða að rétta barni hjálpar- hönd, sem var í vandræðum vegna hálkunnar á skólalóðinni. Það væri of langt mál að telja allt upp sem í hugann kemur. Of talaði hann um að sig lang- aði að læra til þess að verða stuðningsfulltrúi fyrir ungmenni sem erfitt ættu. Þótt draumurinn um nám rættist ekki var hann samt alltaf að styðja aðra. Hann kom eins og ljósgeisli til að sýna okkur raunverulega feg- urð lífsins og svo sannarlega gaf hann yngri félögum bróðurarf, auðæfi sem hvorki mölur né ryð fá eytt. Hugur okkar er hjá Önnu og ófædda barninu þeirra, megi góð- ur Guð styðja þau. Við sendum fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hólmfríður, Sigurður og fjölskylda. Egill Óli Helgason Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, lést mánudaginn 7. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Magnús Guðfinnsson Inga Dóra Halldórsdóttir Sigurður Jón Guðfinnsson Halla Elísabet Guðmundsd. Guðni Guðfinnsson Sondy Haldursdottir Johansen Jens Guðfinnsson Erla Rúna Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR AXELSSON fornbóka- og listmunasali, lést laugardaginn 12. mars á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður Ólafía Guðmundsd. Guðmundur Stefánsson Guðrún Lára Guðmundsd. Gunnar Már Antonsson Lárus Sigurbjörn Guðmunds. Ágústa Katrín Guðmundsd. barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR MAGNÚS ÓLAFSSON, Norðurvör 2, Grindavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð þriðjudaginn 22. mars. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 30. mars klukkan 13. Garðar Ólafsson Lilja Garðarsdóttir Ólafur Helgi Ólafsson Guri Grønbech Fredriksen Arnar Ólafsson Eyrún Björk Eyjólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, ÞÓREY RAGNHEIÐUR VÍDALÍN ÞÓRÐARDÓTTIR frá Borg í Arnarfirði, lést á Skógarbæ 15. mars. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju 30. mars klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Guðlaugur Már Valgeirsson Ásdís Erla Bjarnhéðinsdóttir Guðríður Eygló Valgeirsd. Guðmundur Pétursson Sunna S. Söbeck Arnardóttir Þórður Gunnarsson barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn Faðir minn, tengdafaðir, afi okkar og bróðir, SIGURÐUR JÓSEF BJÖRNSSON frá Hólum í Hjaltadal, er látinn Ari Björn Sigurðsson Rebekka Stefánsdóttir Ynja Mist Aradóttir, Óðinn Arason, Urður Aradóttir Ragnar Björnsson, Björn Friðrik Björnsson Gunnhildur Björnsdóttir Elskulegur föðurbróðir okkar, SNÆBJÖRN GÍSLASON frá Litla-Lambhaga, Skilmannahreppi, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 22. mars. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 1. apríl klukkan 13. Hrefna Sigurðardóttir Ármann Sigurðsson Sigurjón Sigurðsson Þóra Gísladóttir Gísli Gíslason Björgvin Ómar Gíslason Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, stjúpsonur og bróðir, DR. ARNAR MÁR BÚASON, nýdoktor við hagfræðideild HÍ, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítala í Kópavogi miðvikudaginn 16. mars. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 29. mars klukkan 13. Camila Pía Canales O. Viktor Örn Arnarsson Búi Kristjánsson Sif Sigfúsdóttir Haukur Þór Búason Birgir Hrafn Búason Kristín Mjöll Bjarnad. Johnsen Telma Sif Búadóttir Hildur Björk Búadóttir og fjölskyldur okkar Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTINN PÁLL EINARSSON, Tjarnartúni 7, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 22. mars. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. apríl klukkan 13. Þökkum starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri innilega fyrir kærleiksríka umönnun og stuðning. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Sóley Guðmundsdóttir Halldór Sveinn Kristinsson Guðrún Karítas Bjarnadóttir Kristinn Freyr Kristinsson Sigríður Ósk Kristinsdóttir Björgvin N. Ásgeirsson Davíð Már Kristinsson og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, SIGRÍÐUR GUÐRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR, Hlíðargötu 29, Sandgerði, lést á Hrafnistu Hlévangi mánudaginn 14. mars. Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju fimmtudaginn 31. mars klukkan 15. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/sigridurgudrun Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat Guðni Magnús Sigurðsson Sigurður Guðnason Margrét Sanders Rósa Margrét Guðnadóttir Haraldur Grétarsson Erlendsína M. Sigurjónsd. barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.