Morgunblaðið - 26.03.2022, Side 38

Morgunblaðið - 26.03.2022, Side 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MARS 2022 40 ÁRA Katrín er frá Einarsstöðum í Reykjadal, S-Þing., en býr á Akureyri. Hún er leikskólakennari með meistara- gráðu í sérkennslufræðum frá Háskól- anum á Akureyri. Katrín er sérkennslu- stjóri á leikskólanum Klöppum á Akureyri. „Áhugamál mín eru fjallgöngur, fræðslumál um sérkennslu og skólamál, ferðalög og handavinna.“ Katrín er í saumaklúbbunum Sveitapíum og Fabulous Five. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Katrínar er Valbjörn Ægir Vilhjálmsson, f. 1978, bygg- ingafræðingur og á fyrirtækið M2 hús. Synir þeirra eru Ævar Freyr, f. 2004, Anton Logi, f. 2006, og Valur Matthías, f. 2013. Foreldrar Katrínar eru Guðfinna Sverrisdóttir, f. 1956, grunnskóla- kennari, og Einir Viðar Björnsson, 1956, bílstjóri. Þau eru einnig ferðaþjónustubændur á Einarsstöðum. Katrín Elísa Einisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú verður að taka þig saman í and- litinu og fara vandlega í gegn um fjármálin. Í stað þess að ákveða að sætta sig bæði við gott og vont skaltu bæta þetta vonda. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er óþarfi að taka alla skapaða hluti bókstaflega því það kallar bara á álag og örvæntingu. Nú sérðu skýrt hvað það er sem ekki gengur upp í lífi þínu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt að taka frumkvæðið í þínar hendur í stað þess að láta reka fyrir athugasemdum annarra. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú mátt aldrei missa sjónar á tak- markinu, jafnvel ekki þótt einhver daga- munur sé á velgengni þinni. Leitaðu ráða hjá þér reyndari mönnum. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Náinn vinur reynist kaldrifjaðri en þú hefðir nokkurn tímann getað gert þér í hug- arlund. Hugsaðu áður en þú talar og vertu viss um að þú sért ekki að fara úr öskunni í eldinn. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er að færast meiri hraði í líf þitt. Við þér blasa nú ýmsir möguleikar og það skiptir sköpum hvernig þú heldur á málum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þig langar til þess að bregða út af van- anum í dag en vilt ekki gera mikið úr því. Ekki hugsa málin of mikið, nú er tími til að upplifa og nota önnur skynfæri. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Fólk tekur eftir því að þú legg- ur þig fram um að inna starf þitt vel af hendi. Þú ert fullur af krafti og iðar í skinn- inu eftir að koma öllu á biðlistanum í verk. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú hefur einhverjar hug- myndir varðandi eitthvað mikilvægt skaltu bera þær undir vini þína. Einhver þér eldri gefur þér góð ráð í dag. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það getur skipt sköpum að beita réttum aðferðum til þess að ná árangri. Ef þú leggur þig fram muntu ná takmarki þínu. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þér hættir til að taka sjálfan þig of hátíðlega. Hlustaðu á þína innri rödd sem segir að tími sé kominn til að slaka á. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þótt þér finnist þú hafa alla hluti á hreinu ertu samt ekki viss um hvaða skref þú átt að stíga næst. Innst inni veistu svör- in. í átta ár. Hann sat á Kirkjuþingi 2004-2008 og var í stjórn Skógrækt- arfélags Suður-Þingeyinga í sautján ár. Hann hefur setið í stjórn Harm- 2013, í stjórn Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, í stjórn Dvalarheimilis- ins Hvamms á Húsavík og hann var formaður sóknarnefndar Nessóknar D agur Jóhannesson fæddist 26. mars 1937 í Haga í Aðaldal og ólst þar upp. Hann tók við búi foreldra sinna í Haga 1953, aðeins sextán ára gamall. „Öll mín systkini voru farin að heim- an nema yngsti bróðir minn og það var enginn til að taka við, en faðir minn var orðinn heilsulaus. Þetta var ekki stórt bú, en einhver þurfti að hugsa um það. Ég þurfti meira að segja að flýta grunnskól- anum og tók fullnaðarpróf ári fyrr en venja var til þess að geta farið að sinna búskap. Þetta var lítið bú af því faðir minn var kennari. Við vorum með tvær kýr og þrjátíu kindur. Ég bætti svo auðvitað við en á þessum tíma voru menn að stækka búin ört. Árið 1956 byggði ég fjós fyrir 12 mjólkurkýr og ég var eiginlega aldr- ei með meira því jörðin er svo lítil. Hún ber ekki meira. Búskapurinn var líka bara hluti af mínu starfi. Svo var ég með um 60 kindur alveg til 2018 en ég hætti með kýrnar 2002. Ég er þó enn í garðrækt, er að rækta bæði kál og kartöflur en fæ aðstoð við það. Ég er orðinn það fullorðinn.“ Dagur var sparisjóðsstjóri í Spari- sjóði Aðaldæla 1972-1990, formaður Búnaðarfélags Aðaldæla 1978-1993 og oddviti Aðaldælahrepps 1978- 2002. „Þetta var 400 manna sveitar- félag og oddviti var þar sveitarstjóri um leið. Það var engin sérstök sveit- arstjórastaða. Þetta er orðið annað þjóðfélag en var enda eðlilegt að hlutirnir haldi áfram að þróast. Kúabúunum hefur fækkað og þau stækkað, en sauðfjárbúunum hefur ekki fækkað mikið. Það er gaman að nefna að í lok oddvitatímabilsins og eftir að ég hætti sem oddviti hafði ég umsjón með endurbyggingu Hraunsréttar sem er nú ein fallegasta og merkileg- asta rétt á landinu. Endurhleðslan var geysilegt verkefni og það var tekin sú ákvörðun að nýta hana áfram og endurhlaða í staðinn fyrir að leggja hana niður og hafa hana eingöngu sem þjóðminjar.“ Dagur hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum; hann sat í stjórn Sparisjóðs Suður-Þingeyinga 1990- onikkufélags Þingeyinga, stjórn Fé- lags eldri borgara í Þingeyjarsveit og í stjórn Rótarýklúbbs Húsavíkur. Þá hefur hann setið í ýmsum stjórn- Dagur Jóhannesson, bóndi og fyrrverandi oddviti í Haga í Aðaldal – 85 ára Ljósmynd/Atli Vigfússon Tók sextán ára við búskapnum Hraunsrétt Hólmgrímur Kjartansson, t.v., og Dagur við endurhleðsluna. Skógræktin í Haga Dagur með yngsta barnabarninu, Sölku Sif. Til hamingju með daginn Vestmannaeyjar Elmar Breki Óskars- son fæddist 28. ágúst 2021 kl. 8.50 í Reykjavík. Hann vó 3.940 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Erna Georgsdóttir og Óskar Snær Vignis- son. Nýr borgari SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 4. apríl Páskablað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 8. apríl Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrum gómsætumréttumásamtpáskaskreytingum, páskaeggjum, ferðalögumogfleira. Bóndinn Dagur sinnti búskap í Haga í 65 ár og er enn með garðrækt á bænum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.