Morgunblaðið - 26.03.2022, Síða 48
Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
frumflytja nýtt verk eftir Báru Grímsdóttur á tónleikum
sem fara fram í Langholtskirkju kl. 17 í dag, 26. mars.
Verkið nefnist The Time is Now og er við kvæði eftir
Chris Foster. Háskólakórinn pantaði það hjá Báru í til-
efni af 50 ára afmæli kórsins. Þá leikur Auður Edda Er-
lendsdóttir klarinettukonsert eftir finnska tónskáldið
Bernhard Crusell og loks verður flutt svíta nr. 2 úr Pétri
Gaut eftir Edvard Grieg. Stjórnandi á tónleikunum er
Gunnsteinn Ólafsson.
Háskólakórinn frumflytur verk Báru
Grímsdóttur á 50 ára afmælinu
LAUGARDAGUR 26. MARS 85. DAGUR ÁRSINS 2022
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.330 kr.
Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Handboltamarkvörðurinn Daníel Freyr Andrésson er á
leið til Danmerkur í annað sinn en hann hefur yfirgefið
Guif í Svíþjóð og samið við Lemvig. Daníel kveðst vera
reynslunni ríkari eftir að hafa áður leikið í Danmörku
snemma á ferlinum en þá hafi hann hreinlega lent á
vegg eftir að hafa farið úr íslensku úrvalsdeildinni yfir í
þá dönsku. »41
Daníel lenti á vegg í Danmörku
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Danska körfuboltaliðið Bakken
Bears, sigursælasta íþróttaliðið í
Árósum og besta lið Danmerkur í
körfubolta, tekur á móti ítalska lið-
inu Unahotels Reggio Emilia
(Reggiana) í undanúrslitum Evr-
ópubikarkeppni FIBA á miðviku-
dag og gera heimamenn sér vonir
um að leika til úrslita í keppninni í
fyrsta sinn. „Það er stór áfangi að
vera í undanúrslitum í þriðja sinn
og það yrði mikill sigur
fyrir danskan og skandin-
avískan körfubolta að
komast í úrslit,“ segir
Sveinn Pálmar Einars-
son, liðstjóri Bakken
Bears.
Sveinn lék körfubolta
hjá Val í Reykjavík til 18 ára aldurs
og þjálfaði yngri flokka áður en
hann flutti til Danmerkur fyrir 15
árum. „Ég ætlaði að læra ljós-
myndun og lauk grunnnáminu en
eftir að ég kynntist sambýliskonu
minni hérna byrjaði ég að starfa
við lagerstjórnun og hef verið í
henni undanfarin 14 ár, en vann hjá
Samskip áður en ég flutti út.“
Parið býr í Árósum og þar hefur
Sveinn verið þjálfari og stjórnar-
maður annarra körfuboltafélaga í
ríflega áratug. Áður en yfirstand-
andi keppnistímabil hófst í ágúst í
fyrra var starf liðstjóra hjá Bakken
Bears auglýst laust til umsóknar,
hann sótti um og var ráðinn.
„Reynslan kom sér vel,“ segir hann
og vísar til starfa innan sem utan
vallar.
Sigursælt lið
Bakken Bears var stofnað 1953,
hét þá Aarhus Basketball For-
ening, ABF, og varð fyrst
Danmerkurmeistari tímabilið
1957-1958. Frá tímabilinu
1996-1997 hefur liðið
orðið 18 sinnum
Danmerkurmeistari og
þar af óslitið frá 2016. Þá
hefur liðið 13 sinnum orðið
bikarmeistari, síðast 2021. „Þegar
ég byrjaði að vinna hérna fékk ég á
tilfinninguna að ég væri kominn til
fyrirtækis frekar en íþróttaliðs,“
segir Sveinn um umgjörðina, sem
sé ólík öllu sem hann eigi að venj-
ast. Hann bætir við að hann vinni
með fimm öðrum á skrifstofunni
auk þess sem þrír lærlingar séu
þeim til aðstoðar. Tveir af þremur
þjálfurum séu í fullu starfi sem
slíkir og ekkert sé til sparað til að
ná sem bestum árangri.
Deildarkeppninni er nýlokið og
varð Bakken Bears meistari án
þess að tapa leik. Liðið stendur
best að vígi í sex liða úrslitakeppn-
inni, en augu allra beinast að und-
anúrslitum Evrópubikarkeppn-
innar. „Við höfum skoðað ítalska
liðið mjög vel og teljum okkur eiga
raunhæfa möguleika á að komast
áfram,“ segir Sveinn, en sex er-
lendir leikmenn, þar af þrír Banda-
ríkjamenn, leika með danska liðinu.
Bakken Bears komst fyrst í und-
anúrslit í keppninni tímabilið 2017-
2018 og tryggði sér þar aftur þátt-
tökurétt fyrir um tveimur árum.
Sveinn rifjar upp að liðið hafi náð
sætinu í Minsk í Hvíta-Rússlandi
og eftir leik hafi hópurinn horft á
sjónvarpsútsendingu þar sem for-
sætisráðherra Danmerkur hafi til-
kynnt að Danmörku væri lokað
vegna kórónuveirufaraldursins. „Í
kjölfarið millilenti liðið í Riga í
Lettlandi og hitti þar fyrir Bahce-
sehir College frá Tyrklandi, sem
hafði tryggt sér sæti á móti Bakken
Bears í undanúrslitum kvöldið
áður. Væntanlegir mótherjar hitt-
ust samt ekki aftur, því keppninni
var aflýst vegna faraldursins.“
Ljósmynd/Sara Tved Hansen
Á bekknum Frá vinstri: Jens Sanggaard Knudsen sjúkraþjálfari, Sveinn Pálmar Einarsson og Michel Diouf.
Af lagernum í liðstjórnina
- Sveinn Pálmar liðstjóri besta körfuboltaliðs Danmerkur