Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 66
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2022.
Sækja skal um á www.mognum.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is.
Eftirfylgni og umsjón með skipulags- og byggingarmálum og mannvirkjagerð.
Söfnun og miðlun gagna í skipulags- og byggingamálum.
Þátttaka í stefnumótun í málaflokki skipulags- og byggingarmála og annast framkvæmd
þeirra mála.
Umsjón með landbúnaðarmálum, lóðum, lendum og dýrahaldi.
Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking og reynsla á sviði skipulags- og byggingamála er kostur.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu eða sambærilegu er kostur.
Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti.
Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni.
Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
Rík þjónustulund og framúrskarandi jákvæðni.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Skipulagshæfni og nákvæmni.
Helstu verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Dalvíkurbyggð er blómlegt sveitarfélag við Eyjafjörð með öflugu atvinnu- og menningarlífi.
Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með metnaðarfullum grunn-, leik-, og
tónlistarskólum. Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns
útivistar er framúrskarandi. Nánari upplýsingar má finna á www.dalvikurbyggd.is
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum aðila í 100% starf verkefnastjóra á tæknideild
Framkvæmdasviðs. Framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni þar sem reynir á hugmyndaauðgi
og útsjónarsemi auk þess mun viðkomandi taka virkan þátt í mótun starfsins.
Næsti yfirmaður verkefnastjóra er sviðsstjóri Framkvæmdasviðs.
VERKEFNASTJÓRI/TÆKNIFULLTRÚI
Laus störf við leikskólann Mánaland, Vík í Mýrdal
Leikskólinn Mánaland auglýsir lausar stöður fyrir næsta skólaár.
Leikskólinn er tveggja deilda 30 barna leikskóli fyrir börn á aldri-
num 1-6 ára. Mánaland vinnur eftir gildum heilsueflandi leikskóla.
Við leggjum áherslu á holla og góða næringu auk góðrar almen-
nrar lýðheilsu. Við vinnum með Vináttuverkefnið Blæ á báðum
deildum leikskólans. Leikskólinn okkar er í sífelldri þróun og
leitum við því að starfsfólki sem er tilbúið til að ganga í liðið okkar
og þróa starfið enn frekar. Við hugsum stórt og erum að undirbúa
byggingu nýs, þriggja deilda, 60 barna leikskóla sem við áætlum
að flytja inn í á næsta ári.
Við leitum að starfsfólki í eftirtalin störf:
• Deildarstjórar
• Leikskólakennarar
• Leikskólakennarar með stuðning
• Sérkennslustjóri/Sérkennari
• Þroskaþjálfi
• Leiðbeinendur
Við leitum að starfsmönnum sem hafa:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti.
• Reynslu af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
• Lipurð og sveigjanleika í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegan metnað.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Við bjóðum upp á:
• Tækifæri til símenntunar.
• Þátttöku í þróun leikskólastarfsins.
• Að verða hluti af fersku, áhugasömu og faglegu vinnuumhverfi
sem er í stöðugri þróun.
• Húsnæðishlunnindi.
• Aðstoð við að útvega húsnæði.
• Flutningsstyrk.
• Umfram allt skemmtilegan vinnustað.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarféla-
ga og KÍ v/Félags leikskólakennara. Leiðbeinendur falla undir
kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og Foss.
Starfshlutfall: Eftir samkomulagi.
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn
leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun.
Umsóknarfrestur er til 31. 5. 2022.
Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti
hafið störf ekki síðar en 10.08. 2022.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
https://manaland.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Bergný Ösp Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 487 – 1241 og tölvupósti á manaland@manaland.is.
Einstakt tækifæri fyrir
metnaðarfulla kennara!
Flóaskóli auglýsir eftir kennurum til starfa skólaárið 2022 - 2023.
Skólinn er staðsettur á Villingaholti í Flóahreppi, sem er í um
20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru 118
nemendur í 1. – 10. bekk og rúmlega 30 starfsmenn.
Við Flóaskóla starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks
sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi
vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir
nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla leggjum við
áherslu á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu og öfluga
stoðþjónustu. Við erum heilsueflandi grunnskóli og vinnum
samkvæmt hugmyndafræði „Uppeldi til ábyrgðar“ og vinnum
markvisst með samskipti og líðan nemenda. Auk þess er skó-
linn þátttakandi í Grænfánaverkefninu.
Við leitum að umsjónarkennurum á yngsta, mið og elsta stig.
Auk þess er um að ræða kennara í textíl, tónmennt, ensku,
upplýsinga- og tæknimennt.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Grunnskólakennari, uppeldismenntun eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi, leyfisbréf til kennslu
• Skipulögð vinnubrögð og hæfni í samskiptum
• Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi
• Góð íslenskukunnátta og færni í upplýsinga- og tæknimennt
• Þekking á „Uppeldi til ábyrgðar“ er æskileg
• Áhugi á þróunarstarfi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir, skólastjóri
í síma 771-8342.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2022, ráðið verður í
störfin frá 1. ágúst 2022. Umsókn með upplýsingum um menntun
og starfsreynslu sendist á netfangið: gunnlaug@floaskoli.is.
Flataskóli
• Umsjónarkennari
• Starfsmenn á frístundaheimili
Hofsstaðaskóli
• Náms- og starfsráðgjafi
Leikskólinn Akrar
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Bæjarból
• Aðstoðarleikskólastjóri
Krókamýri – heimili fatlaðs fólks
• Sumarstöf
Fjölskyldusvið
• Stuðningur við ungan mann
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
24 ATVINNUBLAÐIÐ 14. maí 2022 LAUGARDAGUR