Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 30
Nautnaseggir og lífskúnstn
erar hafa líklega rekið augun
í þættina Veisluna sem sýndir
hafa verið á RÚV undanfarin
sunnudagskvöld. Gunnar Karl
Gíslason Michelinstjörnu
kokkur er annar leiðsögu
mannanna og segir þá félaga
alls staðar hafa fengið höfð
inglegar móttökur.
bjork@frettabladid.is
Þriðji þáttur Veislunnar fer
í loftið annað kvöld en
í þáttunum f lakka þeir
Gunnar Karl og Dóri DNA
landshorna á milli og hitta
áhugavert fólk til skrafs og matar
gerðar. Á leið sinni á hvern stað
safna þeir kunnáttu og hráefni til
veisluhalda sem Gunnar Karl mat
reiðir í lok hvers þáttar með dyggri
aðstoð heimamanna og oftar en
ekki fá áhorfendur einnig að njóta
tónlistar úr þeirri heimabyggð.
Í þættinum á morgun fara félag
arnir um Suðurland, fá sér kaffi í
Hveragerði með Elísabetu Jökuls,
henda í pitsu á Ölverki og útbúa
smurbrauð með Jakobi og Guð
mundi á Matkránni. Komið er við í
Skálholti og Selfossi og ekið áfram
út í Traustholtshólma og staðar
haldari sóttur heim.
Sex vikur í tívolí fram undan
Segja má að Gunnar Karl hafi komið
íslenskri matarmenningu á kortið á
heimsvísu í gegnum eldamennsku
sína, enda fyrsti Íslendingurinn til
að fá Michelinstjörnu á stað sínum,
Dilli. Í sumar mun staðurinn færa
sig tímabundið um set og verður
opinn í Tívolíinu í Kaupmannahöfn
í sex vikur.
„Það er húsnæði inni í tívolí
garðinum sem kallað er Kínverski
turninn. Þar er mikið um popup
veitingastaði yfir sumartímann og
við munum skipta sumrinu með
dönskum og spænskum stöðum. Ég
ætla bara að loka Dilli á Íslandi og
við förum öll til Danmerkur þar sem
við munum vonandi eiga yndislegar
sex vikur í tívolí. Við tökum með
okkur ógrynni af íslensku hráefni
og kynnum vel land og þjóð.“
Gamlar hefðir að hverfa
Aðspurður segir Gunnar vinnuna
við þættina hafa verið kærkomna
síðasta sumar þegar veitinga
rekstur var í hægagangi vegna sam
komutakmarkana.
„Við fengum svo ótrúlega gott
veður allan tímann. Ég skrifaði mat
reiðslubókina North fyrir nokkrum
árum og hún er svolítið kveikjan að
þessum þáttum. Í bókinni fjalla ég
um Dillið og birti uppskriftir, en
númer eitt, tvö og þrjú er hún ferða
lag um landið að hitta framleiðend
ur sem ég hef verið að versla við og
heyra þeirra sögu. Við fórum gjör
samlega um allt við gerð bókarinnar
og heimsóttum sömu staði mikið í
þáttunum. Við skoðuðum íslenskar
hefðir og hvernig mikið af því sem
við tökum sem sjálfsögðum hlut er
að deyja út. Eins og til að mynda að
þurrka harðfisk í hjöllum á veturna,
búa til saltfisk samkvæmt gömlu
hefðunum og taðreyking. Margt af
þessu er hægt og rólega að hverfa.
Þess vegna gerði ég þessa bók. Allt
sem við erum að gera á Dillinu hefur
að gera með íslenskt hráefni, hefðir
og sögu.“
Gunnar segir þeim félögum alls
staðar hafa verið tekið höfðinglega.
„Heimsóknirnar voru líklega sérlega
kærkomnar á Covidtímum. Það var
líka yndislegt fyrir mig og Dóra að
rækta vinskapinn í rólegheitum,“
segir Gunnar að lokum, en það dylst
engum sem horfir á þættina að þeir
skemmtu sér vel. ■
Veisluhöld um allt landHvað sem
því líður er
fram
undan eitt
stærsta
sjónvarps-
kvöld
sögunnar
og mikið
mæðir á
starfsfólki
RÚV að allt
gangi
smurt fyrir
sig.
■ Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Sjálfstæðis-
flokkurinn
hefur
glatað
trausti
kjósenda í
Reykjavík.
BJORK@FRETTABLADID.IS
Við mælum með
Kosningarnar í dag eru mikilvægar
vegna þess að í sveitarstjórnarkosn
ingum kjósum við um nærumhverfi
okkar og ýmsa grunnþjónustu.
Í kosningabaráttunni hefur það
helst borið til tíðinda að Sjálfstæðis
flokkurinn, sem í áratugi bar höfuð
og herðar yfir aðra flokka í Reykja
vík, hefur ekki náð vopnum sínum.
Hann virðist hafa glatað trausti
kjósenda í höfuðborginni.
Listi f lokksins í Reykjavík þykir
óspennandi, auk þess sem fram
bjóðendur sjálfstæðismanna eru
ósamstiga í stærstu málum.
Frambjóðendur f lok k sins í
höfuðborginni hafa eitthvað reynt
að kenna óvinsældum formanns
f lokksins og klúðrinu við útboð
Íslandsbanka um mikið fylgistap.
Sú skýring stenst ekki skoðun. Í
Hafnarfirði, þar sem gamall krata
höfðingi sækir hart að f lokknum,
virðist Sjálfstæðisflokkurinn ætla
að halda sínu frá því í kosningunum
2018.
Skýringa á fylgistapi sjálfstæðis
manna í Reykjavík er því að leita hjá
frambjóðendum sjálfum, sundur
lyndi þeirra og fráhrindandi niður
rifsmálf lutningi sem f lokkurinn
hefur stundað á þessu kjörtímabili.
Hvort sem Sjálfstæðisflokkurinn
verður í 2025 prósentum eða nær
30 prósentum verður hann áfram í
minnihluta í borgarstjórn Reykja
víkur, einangraður og vinafár.
Einungis Miðflokkurinn virðist
ginnkeyptur fyrir samstarfi við
Stund sannleikans gæti orðið sár
Sjálfstæðisflokkinn og hann virðist
ekki ætla að fá mann kjörinn.
Jafnvel Framsókn, sem nú hirðir
óánægjufylgi frá Sjálfstæðisflokkn
um, lýsir ekki vilja til samstarfs. Er
þó oddviti Framsóknar rótgróinn
sjálfstæðismaður úr Kópavogi – eins
hjákátlegt og það nú er. En jafnvel
hann hefur varað við klofningi sjálf
stæðismanna í Reykjavík og efast
um að þeir séu stjórntækir.
Fátt bendir til að neitt breytist hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. ■
Matreiðslu-
meistarinn
Gunnar Karl
brennur fyrir
íslensku hráefni.
MYNDIR/LILJA JÓNS
Gunnar og
Dóri DNA eru
leiðsögumenn
þáttarins og
félagar frá fornu
fari.
Í lok hvers þáttar af Veislu matreiðir
Gunnar úr hráefni hvers staðar.
Bodega
Fjölmargir vínunnendur hafa sakn
að vínbarsins Bodega á Óðinstorgi
en barinn hefur nú verið opnaður að
nýju. Á Bodega geta viðskiptavinir
gætt sér á gæðavíni og smáréttum
í rólegu en skemmtilegu andrúms
lofti. Staðurinn er sérlega vel hann
aður og útisvæðið er einstaklega
huggulegt. Að sitja úti undir markísu
með vínglas eða kokteil á torginu
kallar fram sannkallaða útlanda
stemningu. Þá er bæði skynsamlegt
og skemmtilegt að nýta sér happy
hour frá klukkan 1619. Voga-ídýfu
Kjarni Íslendinga í Eurovision og
kosningapartíum hlýtur að vera
gamla góða Vogaídýfan. Hvort
sem er með snakki, niðurskornu
grænmeti eða sem sósa er Voga
ídýfan ómissandi. Þá hefur einn
ig heyrst að ídýfan sé það besta til
að nota utan á brauðtertu þar sem
hún gulni ekki. Ídýfan er til í fjórum
bragðtegundum. Þessi klassíska
með kryddblöndu, þessi græna með
papriku, þessi fjólubláa með lauk og
sú appelsínugula með sweet chilli. ■
Líklegt er að þjóðarpúlsinn nái ákveðn
um hæðum í kvöld enda ber upp á sama
dag það tvennt sem einna helst getur
bæði sameinað og sundrað þjóðinni:
Kosningar og Eurovision.
Víst er alla vega að flestir hafa skoðun á hvoru
tveggja, hvort sem þeir eru áfjáðir í að viðra
hana eður ei. Hvað sem því líður er fram undan
eitt stærsta sjónvarpskvöld sögunnar og mikið
mæðir á starfsfólki RÚV að allt gangi smurt fyrir
sig. Þjóðin er að horfa.
Klukkan 19.00 hefst lokakeppni Eurovision
og ætla má að þjóðin sitji límd við skjáinn til að
ganga 10 þegar kosningasjónvarpið tekur við.
Systur stíga á svið sem 18. atriði og er spáð 18.
sæti. Svo líklega getum við setið róleg yfir stiga
gjöfinni og útsendingunni allri enda hafa okkar
fulltrúar sýnt og sannað að þau kunna þetta.
Skoðanakönnunum um sveitarstjórnarkosn
ingar ber ekki saman um hverjir muni fá völdin
í borgarstjórn. Samkvæmt þeim heldur meiri
hlutinn annað hvort naumlega eða er fallinn.
Ætla má því að kosningavakan sem hefst á RÚV
klukkan 21.50 verði þess virði að vaka yfir.
Það er því ekkert annað að gera en að kaupa
nóg af snakki og ídýfu. ■
Lukkutalan átján
28 Helgin 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 14. maí 2022 LAUGARDAGUR