Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 62
Fagstjóri ráðgjafar
Innri endurskoðun og ráðgjöf
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar auglýsir eftir fagstjóra ráðgjafar.
Verkefni fagstjóra er að vakta og fylgjast með eðli kvartana borgarbúa til einstakra fag- og kjarnasviða og eftir atvikum bregð-
ast við með frumkvæðisathugunum. Einnig að veita borgarbúum sem leita til IER ráðgjöf, greiða götu þeirra og leiðbeina þeim
í samskiptum sínum við borgina, m.a. um leiðir þeirra til að leita réttar síns telji þeir að á sér hafi verið brotið. Fagstjóri ber
ábyrgð á starfi fagsviðs ráðgjafar og tryggir faglega yfirsýn og fagleg gæði í ráðgjafarverkefnum. Fagstjóri tryggir teymisvirkni
og verkefnaskil, veitir hvatningu og endurgjöf innan teymisins og kemur fram fyrir hönd Innri endurskoðunar og ráðgjafar í
verkefnisteymum, á fundum stjórnenda og stjórnar og í samskiptum út á við.
Fagsvið ráðgjafar starfar á grundvelli 3. kafla samþykktar IER sem hljóðar svo:
Ráðgjöf umboðsmanns borgarbúa
Verkefni Innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar, skv. e lið 1. mgr. 2. gr., er að veita borgarbúum ráðgjöf, greiða
götu þeirra, sætta sjónarmið og leiðbeina þeim í samskiptum sínum við borgina, m.a. um leiðir þeirra til að leita réttar síns
telji þeir að á sér hafi verið brotið. Verkefni samkvæmt þessari grein ná ekki til:
a. efnislegrar umfjöllunar um einstakar pólitískar ákvarðanir.
b. efnislegrar umfjöllunar um starfsmannastefnu.
c. erindisrekstrar fyrir einstaklinga eða fyrirtæki.
d. efnislegrar umfjöllunar um mál sem eru til meðferðar hjá öðrum starfseiningum borgarinnar eða hjá öðrum stjórnvöldum,
s.s. hjá sjálfstæðum úrskurðarnefndum, eða hjá Umboðsmanni Alþingis, dómstólum o.s.frv.
Þau verkefni Innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar sem falla undir d lið 1. mgr. 2. gr. felast í því að vakta og
fylgjast með eðli kvartana borgarbúa til einstakra fag- og kjarnasviða yfir veittri þjónustu og eftir atvikum bregðast við með
frumkvæðisathugunum. Vöktun þessi skal þjóna því markmiði að efla samvinnu innan stjórnsýslunnar um meðferð kvörtunar-
mála, ná fram skilvirkni og koma í veg fyrir of mikið flækjustig og tvíverknað í verklagi.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí n.k.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Símonarson, Innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar
á netfanginu hallur.simonarson@reykjavik.is eða í síma 411-4600
Menntunar- og hæfniskröfur
• Framhaldsmenntun í lögfræði
• A.m.k. fjögurra ára starfsreynsla á sviði opinberrar
stjórnsýslu.
• Þekking á stefnum, starfsháttum, reglum og lögum sem
snerta rekstur Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar.
• Umtalsverð samskiptahæfni
• Færni í að leysa úr ágreiningi t.d. með aðferðafræði
sáttamiðlunar.
• Faglegt frumkvæði, drifkraftur og umbótasinnuð hugsun
• Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og riti.
• Góð tölvufærni
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Erum við
að leita
að þér?