Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 82
Kristín Edwald, hæstaréttar­ lögmaður hjá LEX, sem er þekkt sem eldhúsdrottning­ in og annálaður sælkeri er líka mikil áhugamanneskja um laxveiði. Hún stundar laxveiði reglulega og getur ekki beðið eftir því að veiðin hefjist á sumrin. sjofn@frettabladid.is Kristín er í veiðiklúbb sem ein- göngu er skipaður konum og ber heitið Strekktar línur. Veiðiklúbb- urinn hefur vakið athygli fyrir stíl sinn og pikknikk-veislurnar sem töfraðar eru fram á metnaðar- fullan hátt í hverri veiðiferð enda ekkert venjulegar kræsingar. Veiðiklúbburinn Strekktar línur var stofnaður fyrir fjórum árum. „Í honum eru tíu forfallnar veiði- konur. Þær eru Charlotta Björk, Halldóra, Hulda, Margrét, Sandra, Sólveig Unnur, Unnur Valborg, Þóra Matthildur, Þórunn og ég. Ég tel mig vera ofurheppna að hafa fengið boð í hópinn og að eignast þessar frábæru vinkonur. Þótt við höfum ekki þekkst allar áður þá hefur dýnamíkin í hópnum verið frábær frá fyrsta kvöldi. Árlega förum við í eina skipulagða veiði saman og bröllum ýmislegt inn á milli. Gleðin er alltaf ríkjandi þegar við hittumst og veiðiferð- irnar eru hreint ólýsanlegar enda fátt jafn gefandi og að vera í góðum hópi við fallega íslenska veiðiá,“ segir Kristín. Næst er það Þverá Kristín segir að þær séu búnar að stunda sömu ána frá því að klúbburinn var stofnaður. „Fyrstu þrjú árin fórum við í Hauku í Dölunum en nú erum við á leið í Þverá í Borgarfirði. Þverá er uppá- haldsáin mín og tilhlökkunin að fara með Strekktum línum þangað er í hæstu hæðum.“ Strekktar línur undirbúa veiði- ferðirnar vel og fara vel klyfjaðar í hverja ferð. „Við höfum gaman af því að koma hver annarri á óvart til að mynda með litlum gjafapokum, sérmerktum nytjahlutum fyrir veiðiferðina og fleira og það er sko nostrað við hlutina. Þrátt fyrir að vera brjálaðar veiðikonur sem eru ávallt mættar á bakkann á réttum tíma, „því þetta veiðir sig nú ekki sjálft“, þá höfum við líka lagt mikið upp úr samverustundum á árbakkanum. Þær sem eru að veiða saman á stöng í ferðinni sjá um eina hamingjustund. Hvort- tveggja áhuginn á að gleðja hópinn og metnaðurinn í veitingunum er mikill. Við þurftum því eftir fyrstu veiðiferðina að endurhugsa fram- kvæmdina því það eru nú takmörk fyrir hversu mörgum smáréttum konur geta torgað jafnvel þótt allar séu svangar eftir útiveru og æsta baráttu við laxa í íslenskri nátt- úru.“ Hittust til að fagna sumri Stelpurnar styrkja böndin enn frekar með því að hittast á milli túra. „Við hittumst einnig utan veiðitímabilsins og höfum alltaf gert eitthvað saman á vorin eða í byrjun sumars til að ræða komandi veiðisumar, njóta samverunnar og spenningsins fyrir veiðiferð ársins. Stundum höfum við farið í kast- kennslu til að fínstilla köstin en núna í ár fannst okkur tilvalið að hittast í kampavíni og smáréttum og fagna fyrsta degi sumars.“ Í þættinum Matur og heimili á dögunum buðu Strekktar línur áhorfendum að skyggnast inn í sumarboð sitt, sem haldið var heima hjá Kristínu sem var búin að dekka alvöru pikknikk-borð innandyra. Kristín bauð upp á glæsilegt hlaðborð sælkerasmá- rétta og deilir hér með lesendum nokkrum uppskriftum að synd- samlega góðum smáréttum. „Hér eru uppskriftir að ostakúlum, laxakremi og hugmynd að sælkera- spjótum. Allt réttir sem einfalt og fljótlegt er að útbúa og hægt er að töfra fram með stuttum fyrirvara.“ Laxakrem 500 g reyktur lax 150 g rjómaostur Safi úr hálfri sítrónu 1 msk. piparrót eða eftir smekk Basilíka eða aðrar ferskar krydd- jurtir eftir smekk Salt og pipar Allt sett í blandara og maukað. Kælt í um klukkustund. Laxakrem- inu er sprautað á gott kex eða ofur- þunnar ristaðar brauðsneiðar og skreytt með þynnum af reyktum laxi og ferskum kryddjurtum. Ostakúlur 1 dós gamli rjómaosturinn frá MS eða annar rjómaostur af stífari gerðinni 2 bollar rifinn cheddar-ostur ½ bolli rifinn parmesan-ostur 1 tsk . Worcestershire-sósa Salt og pipar eftir smekk Stökkir beikonbitar, ferskar krydd- jurtir, beyglukrydd „Everything bagel“ eða annað sem hugurinn girnist til að velta kúlunum upp úr Hafið rjómaostinn við stofuhita. Mikilvægt er að nota rjómaost af stífari gerðinni annars er erfitt að móta kúlurnar, ef blandan verður of mjúk má bæta við rifnum cheddar-osti. Hnoðið saman rjómaosti, chedd- ar-osti, parmesan-osti og Worces- tershire-sósu. Kryddið með salti og pipar eftir smekk en hafið í huga hverju kúlunum er velt upp úr svo þær verði ekki of saltar. Best er að kæla blönduna í 1–2 klukkustundir á þessu stigi. Búið til litlar kúlur úr blöndunni og hafið í huga að kúlurnar verða aðeins stærri þegar þeim hefur verið velt til dæmis upp úr beikonbitum eða beyglukryddi. Veltið kúlunum því næst til dæmis upp úr söxuðum ferskum krydd- jurtum, beikonbitum eða beyglu- kryddi. Mér finnst beyglukryddið best þessa dagana. Kælið kúlurnar þar til þær eru bornar fram. Vel er hægt að gera kúlurnar sjálfar daginn áður og velta þeim svo upp úr kryddinu áður en þær eru bornar fram. Sólar-hamingjuspjót af ítölskum uppruna. Litlar mozzarella­kúlur Steinlausar ólífur Niðurskorin þistilhjörtu Chorizo eða hráskinka Sólþurrkaðir tómatar Grillaðar paprikur í olíu Tréspjót Þessi spjót eru afar einföld en litrík og góð. Uppskriftin er einföld, raðið saman á spjótin hráefnunum sem þið eruð í stuði fyrir þann daginn. Raðið spjótunum á fat eða stingið þeim til dæmis í hálfa litla melónu þannig að úr verði kúla af spjótum. Passið bara upp á að þerra vel hráefni sem lagt hefur verið í olíu eins og sólþurrkaða tómata eða grillaðar paprikur áður en það er sett á spjótin. n Konur sem kunna að njóta í veiðiferðum Þetta var sko ekkert síðasta veiðiferðin hjá þessum skvísum. Ekkert smá girnileg spjót í veiðiferð. Sæbjúgnahylkin +D3 frá Arctic Star hafa breytt miklu fyrir Erling Guðmundsson sem stundar aflraunir í garðinum heima á Akureyi. Hann æfir af meiri krafti en áður og liðirnir eru sterkari auk þess sem auðveldara er að halda liðleika. Erlingur Guðmundsson frá Akur- eyri er mikill áhugamaður um alls kyns hreyfingu og þá helst af l- raunir. Hann gengur undir nafn- inu Icelandic Viking Erlingur á samfélagsmiðlum en hann heldur úti síðum á Facebook, Instagram og á TikTok. „Ég hef stundað alls kyns íþróttir og hreyfingu allt mitt líf. Þessa stundina eiga afl- raunir hug minn allan og ég hef útbúið sérstaka æfingaaðstöðu hér í garðinum heima hjá mér þar sem ég stunda æfingar allan ársins hring.“ Kynni hans af Arctic Star sæbjúgnahylkjunum +D3 hófust þegar hann sá umfjöllun um þau á Facebook. „Mér fannst þau mjög sniðug og skoðaði málið betur til að athuga hvort þau gætu gert mér gott. Ég las mér til um einstök innihaldsefni og því meira sem ég las, því meira langaði mig að prófa. Loks lét ég verða af því og sé svo sannarlega ekki eftir því.“ Finnur mikinn mun á sér Hann segist finna mikinn mun á sér eftir að hann hóf að taka inn Arctic Star sæbjúgnahylkin +D3. „Hylkin hafa hjálpað mér mikið með liðina sem eru sterkari auk þess sem það er auðveldara að halda liðleika. Svo get ég æft af meiri krafti en áður vegna þess að nú verða liðirnir ekki aumir. Um leið finn ég að ég er að fá betri endurheimt en áður og hvílist mun betur.“ Erlingur segist svo sannarlega geta mælt með þessari fæðubót fyrir sem flest fólk. „Sæbjúgna- hylkin eru til dæmis góð fyrir yngra fólk sem vill fyrirbyggja liðavandamál. Svo eru þau góður kostur fyrir fólk sem hefur liða- vandamál og geta þannig bætt liðina og viðhaldið liðunum eins góðum og hugsast getur. Ekki má svo gleyma því að hylkin henta ekki síst íþróttafólki til að ná lengra í sinni íþrótt. Ég hef að minnsta kosti sjálfur hugsað mér að nota þessa vöru áfram því þetta er langbesta varan sem ég hef prufað til þess að bæta liðheilsu og hef ég prufað mjög margt í þeim efnum.“ Lesendur geta fylgst með Erlingi á Facebook (@Icelandic Viking Erlingur Guðmundsson) og á Instagram (@icelandic viking- erlingur) n Nánari upplýsingar á arcticstar.is. Æfir af meiri krafti en áður Sæbjúgnahylkin +D3 frá Arctic Star gera kraftaverk fyrir liðina. Erlingur Guð- mundsson stundar afl- raunir í garð- inum heima á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ AUÐUNN Hylkin hafa hjálp- að mér mikið með liðina sem eru sterkari auk þess sem það er auðveldara að halda liðleika. Erlingur Guðmundsson 6 kynningarblað A L LT 14. maí 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.