Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 38
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Ég er búin að taka Active Joints frá
Eylíf frá því það kom á markað. Ég
er gigtarsjúklingur og hef prófað
ýmis fæðubótarefni til að liðka
liðina. Þegar mér var bent á að
prófa Active Joints frá Eylíf lét ég
slag standa og sé ekki eftir því.
Ég fór mjög fljótt að finna mun á
liðleika mínum auk þess sem mér
til undrunar styrktust neglur og
hárið varð meðfærilegra og þykk-
ara. Þetta efni hefur því haft marg-
vísleg góð áhrif á líðan mína. Ég er
með spengdan hrygg og brjósklos
í hálsi og var alltaf að leita eftir
góðum lausnum fyrir mig þar sem
ég vil geta hreyft mig. Active Joints
frá Eylíf tekur smá tíma að byrja
að virka almennilega en síðan fer
maður að finna reglulega mikinn
mun. Ég kannski fann það best
þegar ég hætti að taka Active Joints
á tímabili. Þá varð líðan mín bara
öll miklu verri og ég stirðari,“ segir
Hrafnhildur. „Ég fór þá að taka það
aftur og sá að þetta gerði mér mjög
gott,“ segir hún. „Active Joints smyr
liðina og í þessu eru efni sem mig
vantaði,“ bætir hún við.
Knapi með keppnisskap
Hrafnhildur hefur alltaf verið
atorkumikil. Hún starfaði á árum
áður sem tamningamaður sem
hún segir að hafi ekki farið vel
með skrokkinn, auk þess að taka
þátt í íþróttum. Hún er líka mikil
keppnismanneskja og hefur tekið
þátt í f lestum hestamannamótum
sem fram hafa farið. Hrafnhildur
viðurkennir að hafa dottið nokkr-
um sinnum af baki sem hafi ekki
góð áhrif á skrokkinn. „Ég syndi
og hreyfi mig mikið, fer í reiðtúra
daglega og stússast í hesthúsinu.
Hreyfingin bjargar mér algjörlega,“
segir hún. „Þegar maður eldist er
enn mikilvægara að hreyfa sig og
halda sér í góðu formi líkamlega.“
Hrafnhildur segir að hesta-
mennskan og tamningar fari illa
með stoðkerfið sem komi fram
síðar. „Ég þarf að sætta mig við
það núna að glíma við stoðkerfis-
vandamál og þess vegna hef ég
tekið Active Joints frá Eylíf. Ég fór
fyrst á bak þegar ég var sjö ára,
tók síðan frí í sautján ár en fór þá
á fullt í hestamennskuna aftur,“
segir Hrafnhildur, sem á sex góða
keppnishesta og skartar mörgum
verðlaunum frá hesta- og gæðinga-
mótum. Eiginmaður hennar tekur
þátt í sportinu og er sjálfur með
tvo hesta.
Hrafnhildur segir að það skipti
hana miklu máli að Active Joints
sé íslensk vara. „Mér finnst gott
að vita um uppruna vörunnar. Ég
vel alltaf frekar íslenska vöru ef
það er mögulegt. Ég tel okkur vera
forréttindahóp að búa hér á landi.
Þótt veðrið sé ekki alltaf gott þá er
svo margt annað frábært. Ég klæði
bara veðrið af mér og kvarta aldrei
yfir því.“
Hrafnhildur hefur ekki prófað
fleiri vörur frá Eylíf en hefur áhuga
á að prófa Smoother Skin & Hair.
Hún hefur heyrt vel að því látið.
„Vilja ekki allir hafa fallegt hár?“
spyr hún. „Þótt ég finni áhrif á
hárið frá Active Joints þá væri
alveg spennandi að prófa hitt líka.
Ég tek þrjár töflur einu sinni á dag
og ég get ekki annað en mælt 100%
með Active Joints frá Eylíf fyrir þá
sem eiga við vandamál
að stríða í liðum. Þetta
gerir mér gott og gæti
hentað fleirum. Active
Joints er kalkríkt og
er því líka gott fyrir
bein og tennur,“ segir
hún.
Heilsan er dýrmæt
Vörulína Eylíf býður
upp á fimm frábærar
heilsuvörur sem
reynst hafa fólki vel.
Þær eru Active Joints,
Stronger Bones,
Smoother Skin &
Hair, Happier Guts og
nýjasta varan Stronger Liver. Vör-
urnar eru framleiddar á Íslandi úr
hreinum, íslenskum hráefnum og
engum aukefnum er bætt við. Ólöf
Rún Tryggvadóttir er stofnandi
Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig langaði
að setja saman þau frábæru hrá-
efni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Greni-
vík og þróun varanna er í sam-
starfi við sérfræðinga frá Matís.
„Við vöndum til verka, sækjum í
sjálfbærar auðlindir úr sjó og af
landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni sem
eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bætiefnin
frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau
stuðla að heilbrigði og sveigjan-
legri líkama því þá erum við færari
um að takast á við verkefnin í
dagsins önn. Við vitum öll að
heilsan er okkur dýrmætust
og því er svo mikilvægt
að gæta vel að henni og
fyrirbyggja ýmis heilsu-
farsvandamál,“ segir Ólöf
Rún. n
Eylíf vörurnar fást í
öllum apótekum, Fjarðar-
kaupum, Hagkaup, Nettó,
Heilsuhúsinu, Krónunni
og Melabúðinni. Ókeypis
heimsending ef keypt
er fyrir 7.000 krónur eða
meira á eylif.is.
Hrafnhildur á
sex gæðhesta
enda tekur hún
þátt í flest-
öllum hesta- og
gæðingamótum
landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
„Mér var bent á að prófa
Stronger LIVER frá Eylíf og
ákvað ég að slá til. Ég hef
verið í eftirliti hjá lækninum
mínum vegna heilsufarsins
og fer reglulega í tékk og
blóðprufur, segir Ragnar Þór
Alfreðsson trésmiður.
Eftir að hafa notað Stron-
ger LIVER í nokkra mánuði
kom í ljós að blóðprufan
kom óvenjulega vel út, öll
gildin fyrir lifrina voru mun
betri en áður. Þetta kom mér
skemmtilega á óvart og hef
ég verið mjög ánægður með
vöruna því að mér líður vel
af því að nota hana.
Því get ég sagt með sanni að
ég mæli með Stronger LIVER frá
Eylíf og ætla að halda áfram að
nota vöruna.“
Stronger LIVER inniheldur:
Stronger LIVER inniheldur
uppbyggjand næringarefni frá
sjálf bærum auðlindum til sjáv-
ar og sveita. Íslensku hráefnin
í Stronger LIVER frá Eylíf eru
kítósan, kalkþörungar, kísill,
ætihvannarrót en auk þess eru
kólín, mjólkurþistill, kalsíum,
C- vítamín og magnesíum.
Best er að taka tvö hylki á
dag með mat til að viðhalda
heilbrigðum meltingarvegi. n
Líður betur og er ánægður með Stronger LIVER frá Eylíf
Ragnar Þór
Alfreðsson,
trésmiður.
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
2 kynningarblað A L LT 14. maí 2022 LAUGARDAGUR