Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 4
2014 hélt kjörsóknin
áfram að minnka og þá
var ekkert Eurovision,
þannig að kannski
voru áhrifin 2010 ekki
Eurovision-áhrif.
Ólafur Þ. Harðaron,
prófessor emeritus
Fjórir flokkar mælast
með einn borgarfull-
trúa í báðum könn-
unum.
Kosningavökur og
Eurovision-partí verða
heimsótt til að taka
púlsinn á stemning-
unni
Síðasti sénsinn
Það neistaði af og til milli oddvita í kappræðum Ríkisútvarpsins í gær enda einn síðasti sénsinn til að láta ljós sitt skína fyrir kosningarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Stjórnmálafræðingurinn
Ólafur Þ. Harðarson telur
ekki endilega víst að skörun
Eurovision-keppninnar við
kosningarnar í dag muni hafa
áhrif á kjörsókn. Hitt er hins
vegar víst að hann mun, sem
önnur kjölfestan í kosninga-
sjónvarpi RÚV, missa af
keppninni þetta árið.
odduraevar@frettabladid.is
KOSNINGAR „Við vonum að við
vinnum í Eurovision og að það verði
90 prósenta kjörsókn,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson, prófessor emeritus,
þegar kenningar um að hætt sé við
því að söngvakeppnin muni draga úr
kjörsókn í borgar- og sveitarstjórnar-
kosningum dagsins eru viðraðar.
„En þetta er skemmtileg tilgáta og
skemmtileg pæling. Auðvitað getur
það gerst að fólk er bara einfald-
lega með hugann við annað, en sem
betur fer er það nú þannig að það eru
ennþá til Íslendingar sem geta bæði
gengið og tuggið tyggigúmmí á sama
tíma.“
En ætlar þú að horfa á Eurovision?
„Ég á mjög erfitt með það því við
verðum uppi í stúdíói með svona
rennsli og æfingar á Eurovision-
tímanum en annars horfi ég alltaf á
Eurovision,“ segir Ólafur sem verður
sem fyrr kjölfestan í kosningasjón-
varpi RÚV ásamt Boga Ágústssyni.
„Ég horfði á stelpurnar komast
áfram og hafði nú verið hallur
undir hitt lagið, með Reykjavíkur-
dætrum, en þetta er lag sem venst
vel og sumum finnst þetta öðruvísi
og halda að þetta eigi séns. Það er
vonandi, því það er svo breytilegt í
Eurovision hvers konar lög eru í tísku
þetta og þetta árið.“
Lítil Eurovision-áhrif
Kjörsóknin virðist síðan sveif last
eftir svipuðum lögmálum milli ára,
óháð tískusveiflum í söngvakeppn-
inni. „Í síðustu tvennum sveitar-
stjórnarkosningum hefur hún verið
lægri en í áratugi, eða í kringum tvo
þriðju,“ segir Ólafur þegar hann er
spurður hvort hafa þurfi áhyggjur
af dræmri kjörsókn í dag.
„Hún hafði lengi verið í kringum
80 prósent í sveitarstjórnarkosn-
ingum en hefur lækkað síðan. Hún
var lengi um í kringum 90 prósent í
alþingiskosningum en hefur undan-
farið verið í kringum 80.
Þessi kjörsókn hefur farið minnk-
andi á Íslandi, bæði í þingkosning-
um og í sveitarstjórnarkosningum
en hún er miklu lægri víðast annars
staðar.“
Hefði verið betra ef Eurovision
væri ekki í dag?
„Það er hugsanlegt en þetta hefur
nú ekki breytt mjög miklu. Það var
Eurovision á kjördag í alþingiskosn-
ingum 2007 og þá fór kjörsóknin
örlítið niður, um 1 til 2 prósent,
en svo fór hún aftur upp í næstu
kosningum. Þannig að ef það voru
einhver Eurovision-áhrif þá voru
þau lítil.
Í sveitarstjórnarkosningunum
2010 var kjörsóknin síðan mun
minni en hún hafði verið 2006 og
þá sögðu sumir: „Heyrðu þetta eru
bara Eurovision-áhrif.“ En svo í
kosningunum 2014 hélt kjörsóknin
áfram að minnka og þá var ekkert
Eurovision, þannig að kannski voru
áhrifin 2010 ekki Eurovision-áhrif
heldur bara almenn tilhneiging
kjörsóknar í sveitarstjórnarkosn-
ingum til að fara minnkandi.“ ■
Kosningasjónvarpið hefur
Eurovision af Ólafi Harðar
Ólafur Þ. Harðarson er í klemmu milli Eurovision og sveitarstjórnarkosning-
anna en hefur litlar áhyggjur af Eurovision-áhrifum á kjörsóknina í dag.
SKJÁSKOT/RÚV
BETRI ÞJÓNUSTA
EINFALDARI BORG
lovisa@frettabladid.is
KOSNINGAR Á vef Fréttablaðsins
verða alla helgina f luttar fréttir af
sveitarstjórnarkosningum sem fara
fram í dag.
Fjallað verður um kjörsókn og
kosningabaráttu flokkanna allt til
enda, auk þess sem allar helstu tölur
verða birtar um leið og þær berast.
Rætt verður við frambjóðendur
meðan kosning fer fram og eftir að
henni lýkur. Og viðbrögð fengin
eftir því sem talningu vindur fram.
Rætt verður við sérfræðinga
og frambjóðendur um allt land á
meðan beðið er eftir síðustu tölum.
Kosningavökur og Eurovision-partí
verða heimsótt til að taka púlsinn á
stemningunni.
Hægt er að senda inn ábendingar
á ritstjorn@frettabladid.is um efni
sem gæti nýst kosningavaktinni. ■
Kosningavakt á
vef Fréttablaðsins
um helgina
kristinnhaukur@frettabladid.is
KOSNINGAR Útlit er fyrir spennandi
borgarstjórnarkosningar miðað
við tvær kannanir sem birtar voru í
gær. Annars vegar könnun Maskínu
sem sýnir meirihlutann halda með
einum manni og hins vegar könnun
Gallup sem sýnir hann fallinn með
einum.
Samfylkingin er stærst í báðum
könnunum, fær 22,8 prósent hjá
Maskínu en 24 hjá Gallup. Það
myndi þýða 6 borgarfulltrúa. Þá
kemur Sjálfstæðisflokkurinn með
20,5 hjá Maskínu og 21,5 hjá Gallup,
sem sagt 5 eða 6 fulltrúa.
Framsóknarf lokkurinn mælist
með 4 borgarfulltrúa inni í báðum
könnunum. Hjá Gallup fær hann 17,5
prósent. Skammt undan eru Píratar
sem mælast með 3 til 4 fulltrúa.
Fjórir listar, Viðreisn, Vinstri
græn, Flokkur fólksins og Sósíalista-
flokkurinn, mælast með 1 borgar-
fulltrúa í báðum könnunum. Mest
fylgi fær Sósíalistaflokkurinn, á sjö-
unda prósent í báðum könnunum.
En minnst Vinstri græn, sem hafa
rúmlega 4 prósent.
Miðflokkurinn mælist með innan
við 4 prósent sem myndi ekki duga
til að halda sínum borgarfulltrúa.
Ábyrg framtíð og Reykjavík, besta
borgin eru enn lengra frá því að ná
inn manni. ■
Meirihlutinn hangir á bláþræði
2 Fréttir 14. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ