Fréttablaðið - 14.05.2022, Blaðsíða 60
Laus störf við leikskólann Mánaland, Vík í Mýrdal
Leikskólinn Mánaland auglýsir lausar stöður fyrir næsta skólaár.
Leikskólinn er tveggja deilda 30 barna leikskóli fyrir börn á aldri-
num 1-6 ára. Mánaland vinnur eftir gildum heilsueflandi leikskóla.
Við leggjum áherslu á holla og góða næringu auk góðrar almen-
nrar lýðheilsu. Við vinnum með Vináttuverkefnið Blæ á báðum
deildum leikskólans. Leikskólinn okkar er í sífelldri þróun og
leitum við því að starfsfólki sem er tilbúið til að ganga í liðið okkar
og þróa starfið enn frekar. Við hugsum stórt og erum að undirbúa
byggingu nýs, þriggja deilda, 60 barna leikskóla sem við áætlum
að flytja inn í á næsta ári.
Við leitum að starfsfólki í eftirtalin störf:
• Deildarstjórar
• Leikskólakennarar
• Leikskólakennarar með stuðning
• Sérkennslustjóri/Sérkennari
• Þroskaþjálfi
• Leiðbeinendur
Við leitum að starfsmönnum sem hafa:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti.
• Reynslu af uppeldis – og kennslustörfum með ungum börnum.
• Lipurð og sveigjanleika í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegan metnað.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Við bjóðum upp á:
• Tækifæri til símenntunar.
• Þátttöku í þróun leikskólastarfsins.
• Að verða hluti af fersku, áhugasömu og faglegu vinnuumhverfi
sem er í stöðugri þróun.
• Húsnæðishlunnindi.
• Aðstoð við að útvega húsnæði.
• Flutningsstyrk.
• Umfram allt skemmtilegan vinnustað.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarféla-
ga og KÍ v/Félags leikskólakennara. Leiðbeinendur falla undir
kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga og Foss.
Starfshlutfall: Eftir samkomulagi.
Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn
leiðbeinandi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun.
Umsóknarfrestur er til 31. 5. 2022.
Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti
hafið störf ekki síðar en 10.08. 2022.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
https://manaland.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Bergný Ösp Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 487 – 1241 og tölvupósti á manaland@manaland.is.
Sérfræðingur á skrifstofu
stjórnskipunar og stjórnsýslu
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu
stjórnskipunar og stjórnsýslu. Í boði er fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar
sem reynir meðal annars á sveigjanleika, skipulagningu, frumkvæði og hæfni til
að setja fram mál í ræðu og riti.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert. Áhugasamir einstaklingar,
án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir
hæfniskröfur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur
fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um
auglýsingar lausra starfa. Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar veita
Páll Þórhallsson skrifstofustjóri pall.thorhallsson@for.is
Eydís Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri eydis.eyjolfsdottir@for.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022
Nánari upplýsingar og umsóknarferli á starfatorg.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Undirbúningur ríkisráðsafgreiðslna og
ríkisráðsfunda
• Aðstoð við og þátttaka í verkefnum
alþjóðafulltrúa ráðuneytisins
• Undirbúningur ýmissa viðburða
• Upplýsinga- og gagnaöflun og svörun
erinda
• Aðkoma að undirbúningi
ríkisstjórnafunda
• Þátttaka í umbótastarfi og teymisvinnu
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni og
afleysingar innan ráðuneytisins
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af opinberri
stjórnsýslu er æskileg
• Reynsla af starfi innan Stjórnarráðsins
er kostur
• Góð tölvufærni og þekking á helstu
Office365 forritum
• Góð íslensku- og enskukunnátta og
hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæði í
vinnubrögðum
• Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
• Sveigjanleiki og geta til að vinna undir
álagi
• Þjónustulund ásamt færni og lipurð í
mannlegum samskiptum
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.