Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 8
með blóðmerahaldi nægilega vel,“
segir Dúi.
Sigríður hefur komið að leyfis
veitingu Ísteka og unnið nokkrar
vísindagreinar með Eggerti Gunn
arssyni dýralækni, starfsmanni
Ísteka og sömuleiðis upphafsmanni
blóðmerahalds. Eggert sinnir dýra
velferðareftirliti fyrir Ísteka og
skrifaði rannsókn sem bæði Ísteka
og MAST vísa í sér til stuðnings, um
að blóðtaka hafi ekki neikvæð áhrif
á heilsu blóðmera.
Rannsóknin er óritrýnd grein frá
árinu 1982 sem birtist í tímaritinu
Frey. Engin óháð rannsókn hefur
verið gefin út sem staðfestir upp
haflegu athugunina og sömuleiðis
hefur engin rannsókn verið gerð á
blóðmagni íslenska hestsins.
Sigríður talaði máli Ísteka á
fundi hjá MAST þegar umsókn um
endurnýjun leyfis til blóðtöku var
til umræðu. Í fundargerð MAST frá
25. apríl 2016 má sjá að Sigríður, eða
Systa, vísaði í nokkurra ára gömul
gögn frá Ísteka sér til stuðnings
varðandi ákvarðanatöku um aukið
eftirlit og aukna blóðtöku úr fyl
fullum hryssum.
„Umræður um að gera kröfu
um innra eftirlit Ísteka með fram
kvæmd blóðtökunnar og einn
ig mikilvægi opinbers eftirlits.
Umræður um fáar sýnatökur til að
fylgjast með blóðstatus, u.þ.b. 10
sýni á viku, en um 1.700 blóðtökur
eru framkvæmdar á ári. Systa upp
lýsti að fyrirtækið hefði lagt fram
gögn fyrir nokkrum árum sem
sýndu að lítill sem enginn munur
væri á hryssum sem væri tekið úr 7
sinnum og þeim sem tekið var úr 8
sinnum,“ segir í fundargerðinni.
Lyfjatækni-
fyrirtækið
Ísteka
rekur þrjár
starfsstöðv-
ar fyrir
blóðtöku
á fylfullum
hryssum
og 283
blóðmerar
eru í eigu
fyrirtækis-
ins.
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
Matvælastofnun byggir
ákvarðanatöku sína um
framtíð blóðmerahalds á upp
lýsingum frá fyrirtækinu sem
hagnast á starfseminni. Með
limir í starfshópi ráðherra
hafa verið gagnrýndir fyrir að
tala máli hagsmunaaðila.
Hálft ár er liðið frá því að þorri
almennings heyrði í fyrsta sinn
að blóðmerahald væri stundað
á Íslandi. Umræðan um velferð
hryssa komst í hámæli eftir að dýra
verndarsamtökin AWF/TSB birtu 20
mínútna heimildarmynd um blóð
töku á Íslandi.
Þrátt fyrir að meirihluti þjóðar
innar sé andvígur blóðmerahaldi
virðast litlar breytingar í vændum í
þessum umdeilda iðnaði og minnk
andi líkur á að blóðmerahald verði
bannað. Frumvarp Ingu Sæland
um bann við blóðtöku á fylfullum
hryssum hefur ekki notið sérstak
lega mikils stuðnings meðal þing
manna meirihlutans.
Fyrrverandi málsvari bænda
Svandís Svavarsdóttir matvæla
ráðherra skipaði starfshóp í desem
ber í fyrra til að fjalla um blóðtöku,
sem mun skila af sér skýrslu fyrir 1.
júní næstkomandi.
Í hópnum eiga sæti þau Iðunn
Guðjónsdóttir, Sigríður Björns
dóttir, yfirdýralæknir í hrossasjúk
dómum hjá Matvælastofnun, Ólafur
Páll Jónsson og Sigurður Eyþórsson,
sérfræðingur á skrifstofu landbún
aðar í matvælaráðuneytinu, sem
bættist í starfshópinn í febrúar.
Áður en Sigurður var ráðinn
til ráðuneytisins var hann mál
svari bænda, þar á meðal hrossa
bænda sem halda blóðmerar, sem
framkvæmdastjóri Bændasamtaka
Íslands.
Ekki var tilkynnt um að Sigurður
hefði bæst í hópinn á vef Stjórnar
ráðsins en Dúi Jóhannsson, upplýs
ingafulltrúi matvælaráðuneytisins,
staðfestir þetta við Fréttablaðið.
„Ekki var um sérstaka ráðningu
að ræða þar sem Sigurður er starfs
maður ráðuneytisins og sinnir
störfum innan þess. Sem slíkur var
hann fenginn til að vinna fyrir hóp
inn líkt og venja er með starfsmenn
ráðuneyta,“ sagði Dúi.
Aðspurður hvers vegna hann hafi
bæst í hópinn segir Dúi að það hafi
verið að ósk starfshópsins.
Reiðir sig á gögn frá Ísteka
Viðvera Sigríðar, yfirlæknis hjá
MAST, í starfshópi ráðherra, hefur
verið gagnrýnd. „Það var á þeim
grundvelli að þau telja að Matvæla
stofnun hafi ekki sinnt eftirliti sínu
Líkur minnka á að blóðmerahald verði bannað
Sigríður er höfundur skýrslu
MAST um eftirlit með blóðmera
haldi sem kom út í apríl. Þar kemst
hún að þeirri niðurstöðu að áfram
megi taka 40 lítra af blóði úr hverri
hryssu.
Í skýrslunni vísar MAST í tölur
sem Ísteka og dýralæknar á launa
skrá Ísteka hafa tekið saman. Upp
lýsingarnar eru því frá aðilum sem
hagnast á áframhaldandi blóðtöku
á fylfullum hryssum.
Björn M. Sigurjónsson, lektor við
Daniaháskólann á Jótlandi, segir í
samtali við Fréttablaðið að í skýrslu
MAST sé erindi eins eftirlitsþega
rekið af miklu offorsi.
„Ekki sér maður þetta í laxeldinu.
Það er ákveðin ákefð í MAST að
ganga erinda eins fyrirtækis, í raun
stórfurðulegt. Ekki myndi þessi
stjórnsýslustofnun biðja sjávar
útvegsfélög um upplýsingar um
hversu margir fiskar séu í sjónum.“
Skýrslan var birt stuttu áður en
starfshópur átti að skila af sér vinnu.
Funduðu saman um eftirlit
Árið 2020 komst MAST að þeirri
niðurstöðu að blóðtaka úr hryssum
til lyfjaframleiðslu væri ekki leyfis
skyld starfsemi, samkvæmt túlkun
þeirra á lögum og reglugerðum.
Fulltrúar MAST og Ísteka fund
uðu í einn og hálfan tíma um þessa
túlkun 25. maí árið 2020. Meðal
þeirra sem sátu fundinn voru Sig
ríður og Arnþór Guðlaugsson, fram
kvæmdastjóri Ísteka.
Í fundargerðinni kemur fram
að allir aðilar hafi verið sammála
um túlkun MAST, um að ekki væri
um leyfisskylda starfsemi að ræða.
Þetta væri í samræmi við almenna
tilhneigingu að fækka leyfum og að
óvíst væri að málið yrði „nokkurn
tímann tekið upp af löggjafanum.“
Þá vekur athygli að MAST ræddi
við sjálfan eftirlitsþegann, Ísteka,
um hvernig eftirliti yrði háttað og
komust þau sameiginlega að niður
stöðu.
Í athugasemd um eina eftirlits
aðferð kemur fram: „Þessi leið er
frekar veik gagnvart utanaðkom
andi gagnrýni um að fyrirtækið
setji sjálfu sér reglurnar.“
„Skilningur Ísteka og MAST fellur
því vel saman,“ stendur neðst í fund
argerðinni. n
Sentímetra
þykkri nál er
stungið í bláæð
í hálsi blóð-
mera svo hægt
sé að safna
blóði úr þeim
sem er notað
til framleiðslu
frjósemislyfja
sem auka afköst
í svína- og kúa-
búum.
Viðvera Sigríðar
Björnsdóttur
í starfshópi
ráðherra hefur
verið gagnrýnd.
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
Björn M. Sigur-
jónsson segir
mikla ákefð í
MAST að ganga
erinda eins
fyrirtækis.
Inga Sæland
hefur lagt fram
frumvarp um
bann á blóð-
merahaldi
FRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 21. maí 2022 LAUGARDAGUR