Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 40
Niðurstaðan var því að þróa heild- stæða mannauðs- og launalausn sem saman- stendur af ýmsum kerfis- hlutum sem saman mynda eina heild. Origo setti Kjarna á markað í upphafi árs 2015. Kjarni er heildstæð mannauðs- og launalausn sem gerir fyrir- tækjum kleift að halda alger- lega utan um mannauðs- og launamálin sín, allt frá ráðningu til starfsloka. Halla Árnadóttir er forstöðumaður mannauðs- og launalausna hjá Origo. „Við ákváðum að ráðast í þetta verkefni þar sem við töldum svigrúm á markaðinum fyrir nýja lausn og fundum þörf á kerfi sem styður allt ferlið; frá ráðningu til starfsloka. Það var mikil þekking og reynsla til staðar hjá Origo á þessum málaflokki og því góður grundvöllur til að mæta þessari þörf.“ Halla segir að á þessum tíma- punkti hafi ýmsir kostir verið skoðaðir. „Það kom til álita að gera lítið og einfalt launakerfi og tengja það við erlent, þroskaðra mann- auðskerfi. Við skoðuðum nokkur slík kerfi og tókum samtal um það við hagsmunaaðila á markaðinum. Eftir þá skoðun var okkar niður- staða að við næðum með því móti ekki þeirri lausn sem við stefndum að og fannst að hið minnsta ættu grunnmannauður og laun heima í einni og sömu lausninni. Niður- staðan var því að þróa heildstæða mannauðs- og launalausn sem samanstendur af ýmsum kerfis- hlutum sem saman mynda eina heild. Við vorum svo lánsöm að fá inn flotta viðskiptavini strax í upphafi sem ákváðu að leggja traust sitt á okkur og þessa nýju lausn og það kom okkur af stað á þessari veg- ferð.“ Að sögn Höllu hafa nýir kerfis- hlutar bæst við lausnina frá árinu 2015 ásamt tengingum við hin ýmsu kerfi. Einnig hefur viðskipta- mannahópurinn stækkað jafnt og þétt og í dag starfar Origo með um 70 frábærum viðskiptavinum sem halda utan um upplýsingar 20.000 starfsmanna. Ör þróun og reglulegt samtal við viðskiptavini „Við erum á fleygiferð í áfram- haldandi þróun á Kjarna,“ segir Halla. „Við vinnum þróunina í tveggja vikna sprettum og gefum út nýjar útgáfur af Kjarna á um það bil tveggja mánaða fresti með lág- markstruflun fyrir notendur.“ Halla segir mikilvægt að eiga reglulegt samtal við viðskipta- vini og að hópurinn hjá Origo fagni öllum góðum ábendingum varðandi hluti sem bæta lausnina. Þetta samtal sé mikilvægt til að tryggja að nýjungarnar sem Origo þróar mæti örugglega þörfum við- skiptavinanna. „Viðskiptavinir senda okkur oft tillögur um nýjungar sem þeir vilja sjá í kerfinu og hafa þær tillögur áhrif á forgangsröðun í þróuninni hjá okkur. Það hefur færst í aukana að við tökum rýnifundi með við- skiptavinum okkar í tengslum við ákveðna virkni. Í þá rýni höfum við þá valið þá viðskiptavini sem hafa sýnt þessari tilteknu virkni mestan áhuga í samtali við okkur. Við erum reglulega með þjónustu- heimsóknir til viðskiptavina og þar er kjörinn vettvangur fyrir þá að koma hugmyndum sínum á framfæri.“ Halla segir Origo halda raf- ræna kynningu tvisvar á ári þar sem farið er yfir helstu nýjungar í þeim útgáfum sem gefnar hafa verið út frá síðustu kynningu. Einnig er haldin notendaráðstefna einu sinni á ári. „Þar förum við yfir ákveðnar nýjungar í Kjarna, fáum ytri fyrirlesara til að fara yfir mannauðstengd mál og kynnum vegvísinn í þróuninni fyrir næsta árið. Við bjóðum upp á mat og drykk og það er ómetanlegt að ná þarna líka þessu óformlega spjalli við viðskiptavinina.“ Vefviðmót fyrir stjórnendur og starfsfólk „Aðaláherslan í þróunarstarfinu þessa dagana er á vefviðmót í Kjarna. Í lok árs 2019 kom fyrsta útgáfan af Kjarnavefnum þar sem ráðningarhluti Kjarna og launasamþykkt var færð yfir í vefviðmót. Síðan þá hefur talsvert af virkni bæst á vefinn og geta stjórnendur nú nálgast allar helstu upplýsingar um starfsmanna- hópinn sinn á Kjarnavefnum. Þeir geta þar meðal annars séð yfirlit yfir helstu upplýsingar um teymið sitt, unnið launaáætlun, séð launa- þróun hópsins, samþykkt launin, séð yfirlit yfir orlofsstöðu hópsins og sent skjöl í rafræna undirritun, auk þess sem þeir geta unnið ráðn- ingarferlið í vefviðmótinu. Einnig eru ýmsar lykiltölur aðgengilegar á vefnum. Starfsfólk er líka með aðgang að öllum sínum helstu upplýsingum í gegnum starfsmannavef. Þar getur það viðhaldið helstu grunnupp- lýsingum, séð orlofsstöðuna sína og launaseðla, sótt um samgöngu- og líkamsræktarstyrk, svo eitthvað sé nefnt. Hugsunin með vefviðmóti fyrir stjórnendur og starfsfólk er að gera þessa aðila sem mest sjálfbjarga með að nálgast þessar upplýsingar og létta þannig á álagi á mann- auðs- og launadeildir sem geta þá notað tímann í meira virðis- skapandi verkefni. Öflugir skýrslu- gerðarmöguleikar Kjarna, hvort sem það er í gegnum kerfið sjálft, vefviðmótið eða með tengingum við ytri skýrslugerðartól, eins og Power BI, spara tíma hjá not- endum sem þurfa þá ekki að eyða miklum tíma í að ná út upplýsing- unum. Tengingar Kjarna við hin ýmsu kerfi létta líka lífið þar sem þessar tengingar koma í veg fyrir margskráningu á upplýsingum í hin ýmsu kerfi.“ Stærstu nýjungarnar „Fyrir utan Kjarnavefinn þá hafa stærstu nýjungarnar okkar síðustu tvö árin verið kerfishlut- arnir Dagpeningar og Viðvera en með því að taka þessa kerfishluta í notkun í Kjarna geta viðskipta- vinir mögulega fækkað þeim ólíku kerfum sem þeir eru með í notkun. Einnig fórum við í vinnu við að koma Teríu, mötuneytislausninni okkar, alfarið inn í Kjarna, en hún var áður sérlausn sem var tengd við Kjarna. Halla segir reglulega bætast við tengingar við hin ýmsu kerfi og að teyminu finnist mikilvægt að viðskiptavinir geti valið um að hafa allar þessar upplýsingar í einu og sama kerfinu eða tengja Kjarna við önnur kerfi sem þeir vilja nýta fyrir hluta af mannauðs- og launa- upplýsingunum. „Við erum svo með ýmislegt skemmtilegt á teikniborðinu fyrir næsta árið. Þar má meðal annars nefna launaáætlunarskýrslur á Kjarnavefinn, samþykktar- ferli launabreytinga ásamt fleiri lykiltölum. Við erum einnig að vinna að því að þróa „onboarding/ offboarding“ virknina enn frekar, sérstaklega í tengslum við ýmis verkefni sem ýmsir aðilar þurfa að framkvæma þegar starfsmenn hefja störf eða láta af störfum.“ Innleiðingarferlið og framúr- skarandi þjónusta Að sögn Höllu er viðskiptavina- hópurinn mjög fjölbreyttur. Má þar telja sveitarfélög, stofnanir og einkafyrirtæki í ýmsum geirum. „Flækjustigið í launavinnslu er mismunandi hjá viðskiptavinum okkar en með breiðan hóp við- skiptavina hefur okkur tekist að leysa allar helstu flækjur. Inn- leiðingarferlið getur tekið stuttan tíma en reynslan hefur sýnt okkur að almennt er gott að miða við tveggja mánaða tímabil þar sem við samkeyrum laun ein mánaða- mót og greiðum svo út úr Kjarna um mánaðamótin þar á eftir. Þá hafa viðskiptavinir svigrúm til að læra og hefja ferðalagið vel í nýju kerfi. Nýlega innleiddum við t.a.m. Kjarna hjá Hafnarfjarðarbæ sem er með um 2.500 launþega að viðbættum 1.000 sumarstarfs- mönnum og með 20 mismunandi kjarasamninga. Þrátt fyrir að um talsvert umfangsmikla aðgerð sé að ræða tók innleiðingin eingöngu tvo mánuði.“ Þjónustan við kerfið og inn- leiðinguna er stór hluti þeirrar vöru sem Origo býður og leggur fyrirtækið ríka áherslu á að við- halda góðu sambandi við núver- andi og nýja viðskiptavini. Til að fylgja því eftir eru framkvæmdar reglulegar þjónustukannanir sem hafa komið mjög vel út. „Við getum stolt sagt frá því að við fengum yfir 90 prósent jákvæða niðurstöðu í síðustu könnun, þar sem spurt var um ánægju með þjónustuna, viðmót ráðgjafa, áreiðanleika þjónustunnar og hvort Kjarni væri leiðandi mannauðs- og launalausn á íslenska markaðinum. Góð þjónusta hefur ítrekað verið nefnd sem einn af ákvörðunarþátt- um nýrra viðskiptavina við val á Kjarna og hafa notendur sem færa sig á milli fyrirtækja margsinnis innleitt Kjarna á nýja staðnum. Við erum þakklát fyrir þau frábæru meðmæli,“ segir Halla Árnadóttir, forstöðumaður mannauðs- og launalausna hjá Origo. n Kjarni – alhliða mannauðs- og launalausn Halla Árnadóttir, forstöðumaður mannauðs- og launalausna hjá Origo, segir samtalið við viðskiptavini mikilvægt til að tryggja að nýjungarnar sem Origo þróar mæti örugglega þörfum við- skiptavinanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI 4 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.