Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 42
Mannauðsdagurinn er
nú haldinn í tíunda sinn
og fögnum við því 10 ára
afmæli ráðstefnunnar, sem
hefur vaxið hratt og dafnað
með hverju árinu og er nú
stærsti viðburður stjórnunar
og mannauðsmála hér á
landi í dag.
Sigrún Kjartansdóttir, fram
kvæmdastjóri Mannauðs, félags
mannauðsfólks á Íslandi, segir að
á Mannauðsdeginum 2022 verði
fjallað um mörg af mikilvægustu
viðfangsefnum mannauðsfólks og
stjórnenda fyrirtækja. Með gríðar
miklum og hröðum breytingum
sem heimsfaraldurinn ýtti úr vör
eða hraðaði, eru nú komin ýmis
ný verkefni og breytt verklag
sem mikilvægt er að ná tökum á
sem fyrst. Með töluvert breyttu
landslagi í stjórnun, auknum
kröfum starfsfólks, fjölbreytileika
á vinnumarkaði, jafnréttismálum,
fjarvinnustefnu og húsnæðis
breytingum, stendur mannauðs
fólk og stjórnendur fyrirtækja
frammi fyrir nýjum og spennandi
áskorunum sem fela í sér fjölmörg
tækifæri.
Í ár höfum við fengið til liðs við
okkur úrvalslið fyrirlesara, bæði
erlendra og innlendra, sem munu
Mannauðsdagurinn 2022
Sigrún
Kjartansdóttir
framkvæmda-
stjóri Mann-
auðs, félags
mannauðsfólks
á Íslandi
Birgir Jónsson,
eigandi Play
flugfélagsins,
heldur hér
fyrirlestur á
Mannauðsdegi
2021.
Mannauðsfólk
og stjórn-
endur fyrirtækja
standa frammi
fyrir nýjum
og spennandi
áskorunum sem
fela í sér fjöl-
mörg tækifæri.
Á Mannauðsdeginum, sem haldinn verður í október, verður úrvalslið fyrirlesara, bæði erlendra og innlendra, sem
munu miðla af reynslu sinni og þekkingu og gefa gestum ferska sýn og nýjar hugmyndir.
miðla af reynslu sinni og þekkingu
og gefa okkur ferska sýn og nýjar
hugmyndir.
Fyrirlestur Camillu Kring PhD.,
frá Super Navigators ApS, heitir
„How do we create new sustain
able rhythms in working life
that support a diversity of family
rhythms, work rhythms and
circadian rhythms?“ og sker hún
upp herör gegn gamaldags nálgun
á hefðbundnum vinnutíma og
hvetur til þess að fundinn sé nýr
„taktur“ í vinnunni, sem styður við
fjölbreytt nútímasamfélag.
Tim Munden, fyrrverandi Chief
Learning Officer hjá Unilever,
mun ræða um þær helstu áskor
anir sem fyrirtæki og leiðtogar
þeirra standa frammi fyrir að hans
mati. Starfsfólk vill störf sem hafa
tilgang og vinnustaðurinn þarf
að vera heilbrigður og mann
legur. Stjórnendur og leiðtogar
vilja sveigjanlegt fyrirtæki sem
getur „lært“, eða breyst og þróast
á skömmum tíma og samfélagið
vill að fyrirtæki sýni samfélags
lega ábyrgð. Erindið hans heitir:
„People, purpose & performance –
Getting fit for the 21st Century“.
Tolulope Oke, sem starfar sem
Global D&I Customer Engage
ment Leader hjá Amazon, er
reynslumikil þegar kemur að jafn
réttismálum og mun deila hag
nýtum leiðum til að taka jafnrétti
og fjölbreytileika á næsta stig.
Erindið hennar heitir: „Taking
Diversity & Inclusion to the next
level: exploring opportunities to
go further“.
Jeff Schwartz, fyrrverandi ráð
gjafi hjá Deloitte Consulting LLP
og höfundur bókarinnar „Work
Disrupted“, mun tala um nauðsyn
nýrrar hugsunar þegar kemur að
fyrirkomulagi starfa og starfs
frama á 21. öldinni. Erindið heitir:
„Reframing work and Careers for
2030: A time for bold and empathic
HR and Business leadership“.
Auk erlendu fyrirlesaranna mun
Jón Björnsson, forstjóri Origo,
segja frá jafnréttisvegferð fyrir
tækisins í erindinu „Að ná árangri
í jafnréttismálum er ákvörðun“.
Erindi Sigríðar Elínar Guðlaugs
dóttur, framkvæmdastjóra mann
auðs hjá Alvotech, heitir „Hvað er
ég búin að koma mér í núna? – að
smíða flugvél á meðan við erum að
fljúga henni“ og Thor Ólafs, CEO
hjá Strategic Leadership Group,
talar um „Hvernig EGÓfrítt leið
togastarf eykur helgun í starfi,
sköpunargleði og framleiðni“.
Samhliða ráðstefnunni verður
glæsileg sýning í Norðurljósasal
Hörpu. Rúmlega 40 fyrirtæki
kynna fjölbreytta þjónustu sína
og vörur, allar tengdar stjórnun og
mannauðsmálum.
Mannauðsdagurinn 2022 verður
haldinn hátíðlegur í Hörpu föstu
daginn 7. október.
Mannauðsdagurinn er vett
vangur fyrir alla þá sem láta sig
nútímastjórnun varða.■
Miðasala er hafin á www.mann-
audsdagurinn.is – tryggðu þér
miða því í fyrra varð fljótt uppselt.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?
Betri yfirsýn fjarveru
og meiri sjálfvirkni!
Tímon veitir frábæra innsýn í mannauðsmálin.
Með mælaborðinu færðu yfirsýn yfir orlof,
fjarveru og yfirvinnu, ásamt Bradford-stöðu
starfsfólks.
Gefðu þér tíma með Tímon tímaskráningu
www.timon.is
Öryggi | Samvinna | Framsækni
Vilt þú ganga til liðs við öflugan hóp lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri?
Sjúkrahúsið á Akureyri
• Er framsækinn og eftirsóknarverður vinnustaður
• Veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu með áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir
• Er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum
• Er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum
• Leggur áherslu á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga
• Er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu
• Er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun
• Er með jafnlaunavottun skv. IST-85 frá árinu 2019
Sjúkrahúsið býður upp á krefjandi og áhugaverð störf í fjölbreyttu og spennandi starfsumhverfi með góðri handleiðslu
og býður upp á tækifæri til starfsþróunar með markvissri þjálfun og fræðslu.
Ef þú hefur áhuga á að koma og vinna á lifandi og fjölbreyttum vinnustað þá er Sjúkrahúsið á Akureyri góður kostur.
Við tökum vel á móti þér.
Sjúkrahúsið á Akureyri
• Er framsækinn og eftirsóknarverður vinnustaður
• Veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu með áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir
• Er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum
• Er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum
• Leggur áherslu á að ráða til starfa og halda í hæfileika íka einstaklinga
• Er miðstö læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu
• Er með alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni og er fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta slíka vottun
• Er með jafnlaunavottun skv. IST-85 frá árinu 2019
Sjúkrahúsið býður upp á krefjandi og áhugaverð störf í fjölbreyttu og spennandi starfsumhverfi með góðri handleiðslu
og býður upp á tækifæri til starfsþróunar með markvissri þjálfun og fræðslu.
Ef þú hefur áhuga á að koma og vinna á lifandi og fjölbreyttum vinnustað þá er Sjúkrahúsið á Akureyri góður kostur.
Við tökum vel á móti þér.
6 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál