Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 39
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 26. júní nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is, og Þórdís Sif Arnardóttir, thordis@hagvangur.is.
Bæjarstjóri Fjallabyggðar
hagvangur.is
Í Fjallabyggð búa um 2.000 íbúar og
samanstendur sveitarfélagið af byggðakjörnunum
Ólafsfirði og Siglufirði. Sveitarfélagið Fjallabyggð
rekur margs konar opinbera þjónustu,
s.s. leikskóla, grunnskóla, öldrunarheimili,
þjónustumiðstöð, slökkvistöð, félagsþjónustu, o.fl.
Í Fjallabyggð er öflugt og fjölbreytt samfélag með
litskrúðugu mannlífi og atvinnulífi. Í Fjallabyggð er
einnig mikið úrval afþreyingar fyrir íbúa og gesti.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar óskar eftir að ráða bæjarstjóra.
Leitað er að metnaðarfullum og kraftmiklum aðila til að leiða
áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins.
Helstu verkefni
• Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins og sér um
að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum
og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna
• Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana
bæjarstjórnar
• Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins
og starfsmannamálum
• Náið samstarf við bæjarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf
á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs
• Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir,
samtök, fyrirtæki og íbúa
• Gæta hagsmuna sveitarfélagsins út á við, vera talsmaður bæjarstjórnar
og vinna að framfaramálum
• Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
• Reynsla af stefnumótun, kynningar- og ímyndarmálum
• Áhugi á og reynsla af eflingu atvinnulífs til að stuðla að vexti
samfélagsins
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt þjónustulund
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð þekking á og reynsla af lögum og reglugerðum í opinberri
stjórnsýslu
• Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg
• Óflekkað mannorð
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára