Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 8
Hjá þeim sem eru vímuefnasjúklingar gæti orðið erfiðara að þreyja þorrann. Helgi Gunn- laugsson, pró- fessor í afbrota- fræði við HÍ Samkvæmt afbrotafræðingi hefur stór haldlagning fíkniefna óveruleg áhrif á markaðinn. Huga þurfi að eftirspurninni. Aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir embættið geta stjórnað forgangsröðun. kristinnhaukur@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Fíkniefnamarkaður- inn er mjög stór á Íslandi og ólíklegt er að sú haldlagning sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá í vikunni hafi mikil áhrif á markað- inn. Tímabundið gæti verð á fíkni- efnum hækkað og eymd vímuefna- notenda aukist. „Þetta er það stór haldlagning að hún gæti skapað tímabundna þurrð á markaðnum. Hjá þeim sem eru vímuefnasjúklingar gæti orðið erfiðara að þreyja þorrann,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Evrópusambandið reiknar með því að Íslendingar kaupi ólögleg fíkniefni fyrir um 6 milljarða króna á ári. Lögreglan áætlar að götuverð- mæti fíkniefnanna sem haldlögð voru í vikunni séu 1,7 milljarðar. Helgi segir að blaðamannafund- urinn þar sem þetta var tilkynnt hafi verið haldinn til að senda skilaboð, bæði til undirheimanna og almennings, um að verið væri að taka þessi mál föstum tökum. Klóakmælingar, rannsóknir á net- verslun, verðkönnun SÁÁ og fleira, bendi hins vegar til að markaðurinn sé öflugur og gatið verði fyllt innan skamms. „Reynslan af stórum haldlagn- ingum erlendis er að þær hafa sára- lítil áhrif á markaðinn. Það koma nýir aðilar inn á markaðinn til að fylla skarðið. Hér á Íslandi koma oft sömu aðilar aftur inn á markaðinn þrátt fyrir þunga fangelsisdóma,“ segir hann. Almennt séu um 10 pró- sent fíkniefna haldlögð. „Það sem við sem samfélag þurfum að skoða er eftirspurnin eftir vímuefnum og hvernig hægt er að draga úr henni.“ Margeir Sveinsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir erfitt að segja til um hversu stór hluti af störfum lögreglu fari í að takast á við fíkniefnamál. Það sé þó ekki stór hluti af heildinni. Samkvæmt nýjustu ársskýrslu Ríkislögreglustjóra, frá árinu 2019, voru fíkniefnabrotin 2.160 af 14.305 sem lögreglan hafði afskipti af, um 15 prósent og næststærsti brota- flokkurinn. Þetta er þó aðeins fjöldi mála og sýnir ekki vinnustundir bak við hvert mál. Árlega gefur lög- reglan upp haldlagningartölur sem rokka mikið milli ára. Samkvæmt nýjum tölum sitja 37,4 prósent íslenskra fanga inni fyrir fíkniefnabrot, sem er næst- hæsta hlutfall í Evrópu og umtals- vert meira en í nágrannalöndunum. Refsi harkan í fíkniefnamálum er því mikil á Íslandi. „Markmiðið hlýtur alltaf að vera að berjast gegn því sem er ólöglegt hér á landi og er fólki til skaða,“ segir Margeir, um stefnu lögreglunnar í fíkniefnamálum. Hann segist þó gera sér grein fyrir að fíkniefnalaust Ísland sé óraunhæft markmið. Í viðtali Fréttablaðsins við Fjölni Sæmundsson, formann Landssam- bands lögreglumanna, í mars árið 2021, kom fram að þúsundir mála biðu rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það getur tekið marga mánuði að rannsaka nauðgun. Ekki út af slóðaskap heldur af því að það vantar mann- skap,“ sagði Fjölnir. Aðspurður segir Margeir lögreglu- embættin hafa stjórn á því hvernig málum er forgangsraðað. Til dæmis hversu mikil áhersla sé lögð á fíkni- efnamál samanborið við kynferðis- brotamál. „Lögreglustjóri leggur upp með hversu mikil áhersla er lögð á fíkniefnamál,“ segir hann. Minni mannskapur sé þó til staðar nú en fyrir tíu árum. „Við erum ekki að sinna þessu eins og áður, sem stafar af öðrum verkefnum og fjár- skorti.“ Jón Gunnarsson dómsmálaráð- herra brást við haldlagningunni á fimmtudagskvöld með stöðuupp- færslu á samfélagsmiðlum. Þar sagði hann að bregðast þyrfti við skipu- lagðri glæpastarfsemi. „Við þurfum að fjölga í lögreglunni, efla samstarf á milli embætta, bæta tækjakostinn og tryggja rannsóknarheimildir lög- reglu, sem er líklega það mikilvæg- asta í sambandi við þennan breytta veruleika,“ sagði hann. n Aðrir fylla fljótt í fíkniefnaskarðið Parket Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14. Komdu við og ræddu við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570 Um 15 prósent mála lög- reglunnar eru fíkniefnamál og refsiharkan hér er meiri en í nágrannalönd- unum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ser@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvæla- stofnunar frá í fyrrahaust um að svipta sauðfjárbónda vörslum alls fjár síns. Bóndinn kærði sviptinguna. Að því er segir á vef Matvæla- stofnunar höfðu eftirlitsmenn gert ítrekaðar athugasemdir við aðbúnað kinda á bænum. Þær lutu að brynn- ingu, fóðrun, holdafari og fleiru. Að lokum var bóndanum gert að gera úrbætur á húsum eða framvísa ella samningi um annan húsakost. Það gerði hann ekki. Bóndinn taldi reglur um meðalhóf brotnar og aðgerðir of íþyngjandi. Ævistarf hans hefði farið í súginn og hann ekki getað nýtt kærurétt áður en sviptingin fór fram. Stofnunin hefði einnig getað bætt úr aðbúnaði skepnanna á kostnað bóndans. n Bóndi sviptur kindum sínum birnadrofn@frettabladid.is VEÐUR Meðalhiti í Reykjavík í maí var 7,7°C samkvæmt Veðurstofu Íslands. Það er einni gráðu yfir með- allagi áranna 1991-2020. Á Akureyri var meðalhiti 6,3 stig, 0,1 stigi yfir meðallagi síðustu 20 ára. Maí var hægviðrasamur og frekar hlýr á sunnanverðu landinu en kaldur fyrir norðan. Á Akureyri var úrkomusamt en í Reykjavík hlýtt og sólríkt. Um helgina má búast við hæglæt- isveðri. Þó gæti rignt um sunnan- og vestanvert landið. n Hlýtt og sólríkt í borginni í maí Athugasemdir lutu meðal annars að fóðrun og holdafari. Meðalhiti í Reykjavík í maí síðast- liðnum var 7,7 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR 8 Fréttir 11. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.