Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 8
Hjá þeim sem eru
vímuefnasjúklingar
gæti orðið erfiðara að
þreyja þorrann.
Helgi Gunn-
laugsson, pró-
fessor í afbrota-
fræði við HÍ
Samkvæmt afbrotafræðingi
hefur stór haldlagning
fíkniefna óveruleg áhrif á
markaðinn. Huga þurfi að
eftirspurninni. Aðstoðaryfir-
lögregluþjónn segir embættið
geta stjórnað forgangsröðun.
kristinnhaukur@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Fíkniefnamarkaður-
inn er mjög stór á Íslandi og ólíklegt
er að sú haldlagning sem lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu greindi frá í
vikunni hafi mikil áhrif á markað-
inn. Tímabundið gæti verð á fíkni-
efnum hækkað og eymd vímuefna-
notenda aukist.
„Þetta er það stór haldlagning
að hún gæti skapað tímabundna
þurrð á markaðnum. Hjá þeim sem
eru vímuefnasjúklingar gæti orðið
erfiðara að þreyja þorrann,“ segir
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í
afbrotafræði við Háskóla Íslands.
Evrópusambandið reiknar með
því að Íslendingar kaupi ólögleg
fíkniefni fyrir um 6 milljarða króna
á ári. Lögreglan áætlar að götuverð-
mæti fíkniefnanna sem haldlögð
voru í vikunni séu 1,7 milljarðar.
Helgi segir að blaðamannafund-
urinn þar sem þetta var tilkynnt
hafi verið haldinn til að senda
skilaboð, bæði til undirheimanna
og almennings, um að verið væri
að taka þessi mál föstum tökum.
Klóakmælingar, rannsóknir á net-
verslun, verðkönnun SÁÁ og fleira,
bendi hins vegar til að markaðurinn
sé öflugur og gatið verði fyllt innan
skamms.
„Reynslan af stórum haldlagn-
ingum erlendis er að þær hafa sára-
lítil áhrif á markaðinn. Það koma
nýir aðilar inn á markaðinn til að
fylla skarðið. Hér á Íslandi koma oft
sömu aðilar aftur inn á markaðinn
þrátt fyrir þunga fangelsisdóma,“
segir hann. Almennt séu um 10 pró-
sent fíkniefna haldlögð. „Það sem
við sem samfélag þurfum að skoða
er eftirspurnin eftir vímuefnum og
hvernig hægt er að draga úr henni.“
Margeir Sveinsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, segir erfitt
að segja til um hversu stór hluti af
störfum lögreglu fari í að takast á
við fíkniefnamál. Það sé þó ekki stór
hluti af heildinni.
Samkvæmt nýjustu ársskýrslu
Ríkislögreglustjóra, frá árinu 2019,
voru fíkniefnabrotin 2.160 af 14.305
sem lögreglan hafði afskipti af, um
15 prósent og næststærsti brota-
flokkurinn. Þetta er þó aðeins fjöldi
mála og sýnir ekki vinnustundir
bak við hvert mál. Árlega gefur lög-
reglan upp haldlagningartölur sem
rokka mikið milli ára.
Samkvæmt nýjum tölum sitja
37,4 prósent íslenskra fanga inni
fyrir fíkniefnabrot, sem er næst-
hæsta hlutfall í Evrópu og umtals-
vert meira en í nágrannalöndunum.
Refsi harkan í fíkniefnamálum er
því mikil á Íslandi.
„Markmiðið hlýtur alltaf að vera
að berjast gegn því sem er ólöglegt
hér á landi og er fólki til skaða,“ segir
Margeir, um stefnu lögreglunnar
í fíkniefnamálum. Hann segist þó
gera sér grein fyrir að fíkniefnalaust
Ísland sé óraunhæft markmið.
Í viðtali Fréttablaðsins við Fjölni
Sæmundsson, formann Landssam-
bands lögreglumanna, í mars árið
2021, kom fram að þúsundir mála
biðu rannsóknar hjá Lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. „Það getur
tekið marga mánuði að rannsaka
nauðgun. Ekki út af slóðaskap
heldur af því að það vantar mann-
skap,“ sagði Fjölnir.
Aðspurður segir Margeir lögreglu-
embættin hafa stjórn á því hvernig
málum er forgangsraðað. Til dæmis
hversu mikil áhersla sé lögð á fíkni-
efnamál samanborið við kynferðis-
brotamál. „Lögreglustjóri leggur
upp með hversu mikil áhersla er
lögð á fíkniefnamál,“ segir hann.
Minni mannskapur sé þó til staðar
nú en fyrir tíu árum. „Við erum ekki
að sinna þessu eins og áður, sem
stafar af öðrum verkefnum og fjár-
skorti.“
Jón Gunnarsson dómsmálaráð-
herra brást við haldlagningunni á
fimmtudagskvöld með stöðuupp-
færslu á samfélagsmiðlum. Þar sagði
hann að bregðast þyrfti við skipu-
lagðri glæpastarfsemi. „Við þurfum
að fjölga í lögreglunni, efla samstarf
á milli embætta, bæta tækjakostinn
og tryggja rannsóknarheimildir lög-
reglu, sem er líklega það mikilvæg-
asta í sambandi við þennan breytta
veruleika,“ sagði hann. n
Aðrir fylla fljótt í fíkniefnaskarðið
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
Um 15 prósent
mála lög-
reglunnar eru
fíkniefnamál
og refsiharkan
hér er meiri en í
nágrannalönd-
unum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
ser@frettabladid.is
LANDBÚNAÐUR Matvælaráðuneytið
hefur staðfest ákvörðun Matvæla-
stofnunar frá í fyrrahaust um að
svipta sauðfjárbónda vörslum alls
fjár síns. Bóndinn kærði sviptinguna.
Að því er segir á vef Matvæla-
stofnunar höfðu eftirlitsmenn gert
ítrekaðar athugasemdir við aðbúnað
kinda á bænum. Þær lutu að brynn-
ingu, fóðrun, holdafari og fleiru.
Að lokum var bóndanum gert að
gera úrbætur á húsum eða framvísa
ella samningi um annan húsakost.
Það gerði hann ekki.
Bóndinn taldi reglur um meðalhóf
brotnar og aðgerðir of íþyngjandi.
Ævistarf hans hefði farið í súginn og
hann ekki getað nýtt kærurétt áður
en sviptingin fór fram. Stofnunin
hefði einnig getað bætt úr aðbúnaði
skepnanna á kostnað bóndans. n
Bóndi sviptur
kindum sínum
birnadrofn@frettabladid.is
VEÐUR Meðalhiti í Reykjavík í maí
var 7,7°C samkvæmt Veðurstofu
Íslands. Það er einni gráðu yfir með-
allagi áranna 1991-2020.
Á Akureyri var meðalhiti 6,3 stig,
0,1 stigi yfir meðallagi síðustu 20 ára.
Maí var hægviðrasamur og frekar
hlýr á sunnanverðu landinu en
kaldur fyrir norðan. Á Akureyri var
úrkomusamt en í Reykjavík hlýtt og
sólríkt.
Um helgina má búast við hæglæt-
isveðri. Þó gæti rignt um sunnan- og
vestanvert landið. n
Hlýtt og sólríkt
í borginni í maí
Athugasemdir lutu
meðal annars að
fóðrun og holdafari.
Meðalhiti í Reykjavík í maí síðast-
liðnum var 7,7 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
8 Fréttir 11. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ