Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 104

Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 104
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun Torg ehf. dReifing Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Tobbu Marinós n Bakþankar Undanfarið hafa ýmis sjúk sam- skipti fengið að líta dagsins ljós. Fyrir vikið er auðveldara en áður að spegla sig í þeirri andlegu ofbeldissýru sem fólki finnst í lagi að bjóða upp á. Fólki sem á að vera svo gott, vel gert og vel gefið. Fólki sem með nafni sínu einu minnkar flesta í kringum sig og lendir því ekki oft í því að fá spurningarmerki við sturlaða hegðun sína. Mikilmennskan er ótútreiknan- leg en mynstrið er í raun ótrúlega einfalt og áhrifaríkt. Með því að minnka við fyrsta tækifæri flesta í kringum þig er hægt að koma af stað djúpri viðurkenningarþörf hjá jafnvel grjóthörðustu týpum. Svo spyrst þetta út – að hinn sýrði og sjálfumglaði kalli nú ekki allt ömmu sína og sé mjög erfiður viðureignar. Það þurfi sko að passa sig. Viðkomandi geti jafnvel misst stjórn á sér við fólk án nokkurrar ástæðu. Hvað gerist næst? Þú verður óörugg í fyrstu sam- skiptum við siðlausa sýrutrippið. Það er búið að mála mynd. Þú ert honum ekki samboðin. Þú þarft að vinna þig upp. Gera betur. Gera betur en hvað og hvers vegna er grátt? Í framhaldinu ertu alltaf tekin aðeins niður sem þýðir að án þess að þú áttir þig á því snúast flest samskipti um að þú réttlætir þig við einhvern sem á ekkert inni hjá þér og er í raun ekkert annað en ofbeldisseggur. En athugið að þessi týpa er eld- klár og kann að dansa á línunni og sáldra gullhömrum þegar henni finnst mikilvægt að stytta í taumnum. Og svo rétt í því sem sjálfsmynd þín tekur á sig mynd er taumnum smeygt blíðlega um hálsinn á þér – og þrengt að. Og taumarnir liggja víða. n Sjúk samskipti 20% afsláttur af öllum American Tourister vörum til 13. júní © Inter IKEA System s B.V. 2022 Sigraðu grillveisluna!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.