Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 94
Myndir
okkar eru
gjörólíkar.
Ég er með
fígúratívar
myndir,
Björn fer
meira út í
abstraktið.
Gabríela Friðriksdóttir og
Björn Roth sýna saman á
sýningunni Sporbaugur í
Listasafni Reykjanesbæjar.
Listamennirnir vinna þar
með litabækur. Vídeóverk eru
einnig á sýningunni.
Um þema sýningarinnar segir
Gabríela: „Þegar við settumst niður
á fyrsta fundinum sagði ég: Mig
hefur alltaf langað til að gera lita
bók. Þá sagði Bjössi: Frábært.“
„Þegar ég var strákur gerði pabbi
(Dieter Roth) litabók fyrir mig. Í þá
daga voru litabækur vinsælar hjá
börnum en honum leist ekki á þær
litabækur sem ég var að reyna að
verða mér úti um, þannig að hann
bjó til sérstaka litabók fyrir mig. Ég
man að hún var dálítið sérkennileg,“
segir Björn.
„Ég dýrkaði litabækur þegar ég var
lítil og hef litað í ógrynni af þeim. Ég
man eftir litabókum sem voru með
hrollvekjandi myndum, eins og af
börnum með undarlegt bros, það var
eins og það lægi eitthvað síkraum
andi þar undir,“ bætir Gabríela við.
Um myndirnar á sýningunni
segir hún: „Myndir okkar eru gjör
ólíkar. Ég er með fígúratívar myndir,
Björn fer meira út í abstraktið.“
Í móttökunni
„Það er erfitt að lýsa mínum mynd
um, það verður bara að horfa á þær.
Ég get ekki útskýrt hvað ég er að
gera, ég bara geri eitthvað. En ein
hvern veginn fúnkera myndir mínar
og Gabríelu saman. Það er nú einu
sinni svo að svipað þenkjandi fólk
lendir á sama sporbaug. Ég gerði
meira að segja eina mynd undir
áhrifum frá Gabríelu,“ segir Björn.
„Björn segir að myndirnar hans
verði bara til og það sama gerist
hjá mér. Það virðist kannski eins og
ég sé búin að ákveða mjög mikið,
en hugmyndirnar koma eins og
af sjálfu sér. Svo er ég bara í mót
tökunni,“ segir Gabríela.
Í tilefni sýningarinnar kemur út
bók sem er bæði sýningarskrá og
litabók. Í sýningarsalnum eru borð
og stólar og vitanlega litir þar sem
fólk getur litað. „Það verður hægt að
prenta út myndir fyrir gesti og svo
Á sama sporbaug
Á tónleikum í dag, laugardaginn
11. júní, leiða saman hesta sína
tónlistarhóparnir Hnúkaþeyr og
Camerarctica og leika norræn verk
eftir Berwald og Nielsen á vegum
15:15 tónleikasyrpunnar í Breið
holtskirkju.
Tónleikarnir eru um klukku
stundar langir. Flytjendur eru þau
Sigríður Hjördís Indriðadóttir á
þverflautu, Eydís Franzdóttir á óbó,
Ármann Helgason á klarinett, Krist
ín Mjöll Jakobsdóttir á fagott, Anna
Sigurbjörnsdóttir á horn, Emil Frið
finnsson á horn, Hildigunnur Hall
dórsdóttir á fiðlu, Guðrún Þórarins
dóttir á víólu,Sigurður Halldórsson
á selló og Þórir Jóhannsson á kontra
bassa. n
Norræn verk í
Breiðholtskirkju
Gabríela og
Björn sýna
saman í fyrsta
sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Myndir lista-
mannanna eru
hlið við hlið.
Gabríela gerði
stærri myndirn-
ar og þær minni
eru eftir Björn.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
er litabókin til sölu,“ segir Gabríela.
Gott andrúmsloft
Auk myndanna sýnir Gabríela
tvö vídeóverk. „Önnur myndin er
Deplar, glæný teiknimynd gerð
úr blekmyndum. Franskur vinur
minn klippti myndina. Svo er eldra
vídeóverk sem nefnist Kofahiti,
Cabin Fever, sem hefur ekki verið
sýnt á Íslandi og var gert á Korsíku
fyrir frönsku forsetakosningarnar
fyrir fjórum árum. Þar er fjallað um
ofgnótt frétta og falsfréttir. Gömul
prentvél frá Heidelberg er í aðal
hlutverki.“
Gabríela og Björn hafa þekkst
lengi en þetta er í fyrsta sinn sem
þau vinna saman að sýningu. Þau
segja samstarfið hafa verið einstak
lega skemmtilegt. Björn segir hafa
verið gott að vinna í safninu. „Maður
hefur oft lent í því að vinna í sölum
þar sem enginn vill leyfa manni að
gera það sem maður vill. Hérna er
það allt öðruvísi, andrúmsloftið er
gott og maður fær að gera það sem
maður vill.“ n
Tónlistarhópurinn Hnúkaþeyr
kemur fram á tónleikum.
Skuggakvartett saxófónleikarans
Sigurðar Flosasonar kemur fram á
útitónleikum á veitingahúsinu Jóm
frúnni við Lækjargötu í dag, laugar
daginn 11. júní.
Þórir Baldursson leikur á Hamm
ondorgel, Andrés Þór Gunnlaugs
son á gítar og Jóhann Hjörleifsson
á trommur. Þeir munu flytja grúví
og görótta tónlist á mörkum jazz og
blús. Tónleikarnir fara fram utan
dyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast
kl. 15 og standa til kl. 17. Aðgangur
er ókeypis. n
Jazz á Jómfrúnni
Skuggakvartett Sigurðar Flosasonar. MYND/AÐSEND
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
18. júní í 11 nætur
595 1000 www.heimsferdir.is
Tenerife
Los Olivos Beach Resort
124.400
Flug & hótel frá
Frábært verð!
á mann
141.900
Flug & hótel frá
Fyrir 2
á mann
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
VEL STAÐSETT HÓTEL
aaa
NÝUPPGERT
MENNING 11. júní 2022 LAUGARDAGUR