Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 69
Þó að skip- in okkar séu traust og góð eru þau að verða tæknilega úrelt. Þau er flest mjög ganghæg og við erum bara að reyna að færa okkur inn í nútímann. Örn Smárason Slysavarnafélagið Lands- björg vinnur fjölbreytt starf um allt land, en undir hatti félagsins starfar Slysavarna- skóli sjómanna og allar björgunarsveitir landsins. Slysavarnaskólinn sinnir mikilvægri og fjölbreyttri fræðslu en björgunarsveit- irnar þurfa að endurnýja úreltan skipaflota. „Slysavarnafélagið Landsbjörg er að verða 23 ára, en það kemur úr sameiningu Slysavarnafélags Íslands og Landsbjargar. Þar sam- einuðust allar björgunarsveitir undir einn hatt og við vinnum á rosalega breiðu sviði,“ segir Örn Smárason, verkefnastjóri sjó- björgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. „Við erum með Slysa- varnaskóla sjómanna, sem sinnir allri öryggisfræðslu fyrir sjómenn og síðan er allt björgunarsveita- starfið, sem eru 92 björgunar- sveitir og 37 slysavarnadeildir um allt land. Þessar einingar stýra því í rauninni hvað félagið gerir. Á Sjávarútvegssýningunni höfum við annars vegar verið að kynna starfsemi Slysavarnaskól- ans, öll námskeiðin sem er boðið upp á og dagskrána í haust og hins vegar stöðuna á endurnýjun stóru björgunarskipanna sem eru í eigu félagsins,“ segir Örn. „Við erum að segja frá stöðunni í útboðinu á þessum þremur skipum sem við erum búin að panta og skipinu sem við erum að fá til Vestmanna- eyja núna í ágúst. Svo erum við líka að minna á að við eigum tíu önnur skip eftir sem við eigum eftir að endurnýja. Við erum að safna fyrir því og leita að stuðningi til þess.“ Þurfa ný skip til að aðstoða sjó- menn betur „Endurnýjunin á björgunarskip- unum er einfaldlega í gangi vegna þess að meðalaldur björgunarskip- anna sem við rekum núna er rúm 35 ár. Þó að skipin okkar séu traust og góð eru þau að verða tækni- lega úrelt,“ segir Örn. „Þau eru flest mjög ganghæg og við erum bara að reyna að færa okkur inn Heimsklassa öryggismál sem þarf að nútímavæða Örn Smárason, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, segir að það sé þörf á að færa björgunarskip félagsins inn í nútímann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK í nútímann. Fá meiri ganghraða svo við getum sinnt stærra svæði á styttri tíma, skipin nái fyrr saman og við getum aðstoðað sjómenn- ina, þegar þeir lenda í vandræðum, mikið betur. Við erum mjög ánægð með þessi þrjú skip sem við erum búin að panta en það eru tíu eftir. Það þurfa allir að leggjast á eitt, því það eru lítil samfélög undir sem geta ekki safnað miklum fjármunum. Til dæmis Raufarhöfn og aðrir, sem hafa ekki sömu getu til að safna fjármunum eins og til dæmis Eyja- menn,“ segir Örn. „Þannig að við erum að reyna að hvetja fólk til að koma með okkur í þessa vegferð. Nú er það orðið svoleiðis í breyttu útgerðarmynstri að jafnvel smá- bátarnir fara á öll mið og út um allt land.“ Stöðug og fjölbreytt fræðsla í Slysavarnaskólanum „Allir sjómenn þurfa að sækja fræðslu til Slysavarnaskóla sjó- manna, það stendur í íslenskum lögum að það sé óheimilt að ráða mann til starfa á íslensku skipi nema hann hafi hlotið öryggis- fræðslu og Slysavarnaskólinn sinnir þessu á sem víðustum grundvelli,“ segir Örn. „En svo er náttúrulega fjöldinn allur af öðrum námskeiðum fyrir utan grunnnámskeiðin. Það er til dæmis verið að kenna notkun léttabáta, eldvarnir um borð í skipum, skyndihjálp sjómanna, lyfjakistunámskeið, hóp- og neyðarstjórnun fyrir farþegaskip og ferjur, mannauðsstjórnun og síðan er sífelld endurmenntun. Sjómenn eru skyldugir til þess að endurmennta sig í þeim réttindum sem þeir hafa, með öryggisfræðslu á fimm ára fresti. Öryggismál skipta alltaf máli hjá sjómönnum og árangur íslenskra sjómanna í þeim er á heimsmæli- kvarða. Skólinn á náttúrulega sinn þátt í því og Hilmar skipstjóri Snorrason, sem leiðir það starf, á mikið hrós og þakkir skildar fyrir hvað hefur gengið vel í þessu,“ segir Örn. „En án sjómannanna værum við ekki að ná þessum árangri og á sýningunni höfum við bara verið að minna á okkur, þakka fyrir samstarfið til þessa og viðhalda tengslunum við útgerðina.“ Nýtt æfingasvæði fyrir reyk- köfun og slökkvistörf „Það er ein nýjung í Slysavarna- skólanum sem fer væntanlega að komast í gagnið. Það er nýtt æfingasvæði í reykköfun og slökkvistörfum sem verið er að koma upp við slökkvistöðina í Hafnarfirði. Þetta nýja æfinga- svæði hefur verið sett upp á Covid-tímanum,“ segir Örn. „Sú breyting er að verða að hingað til hefur verið kynt með timbri og óhreinni efnum til að fólk geti æft inni í reyk og hita og slökkt eld, en nú er verið að fara í mjög þróað þjálfunarkerfi frá Finnlandi sem er kynt með gasi. Það gerir það mögulegt að hafa miklu meiri stjórn á aðstæðum, svo það sé auðveldara að þjálfa,“ útskýrir Örn. „Þetta gerir það líka að verkum að það er hægt að bjóða upp á fjölbreyttari aðstæður en áður.“ Þakklát bakvörðunum „Við viljum, eins og alltaf, grípa tækifærið til að þakka almenningi, sérstaklega bakvörðum, en það eru yfir 31 þúsund bakverðir sem styðja félagið. Við erum rígmontin með hvað við fáum að skipta miklu máli í þjóðarsálinni,“ segir Örn að lokum. n Meðalaldur björgunarskipa Slysavarna- félagsins Lands- bjargar er 35 ár svo þau eru að verða tæknilega úrelt. Myndin sýnir björgunar- skipið Ásgrím S. Björnsson á æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR kynningarblað 11LAUGARDAGUR 11. júní 2022 SJÓMANNADAGURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.