Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 11.06.2022, Blaðsíða 92
Við sjáum það á öllum golfvöllum að kon- urnar eru heldur betur mættar til leiks. Kylfingar 50 ára og eldri eru stærsti einstaki hópurinn í golfi á Íslandi. Öflugt starf er unnið innan LEK og fjölmargir vel sóttir við- burðir fara fram á hverju ári á vegum samtakanna. kylfingur.is Annað mótið á Icewear-móta- röðinni fór fram á Hvaleyrarvelli Golf klúbbsins Keilis sl. sunnu- dag. Gauti segir vel hafa tekist til og mikil almenn ánægja verið meðal þátttakenda. Næsta mót á mótaröðinni, Opna 66°Norður, fer fram á Þorláksvelli Golfklúbbs Þorlákshafnar á morgun. „Við hjá LEK erum einkar lánsöm með sam- starfsaðila en átta samstarfsaðilar koma að mótunum. Icewear eigum við auðvitað mikið að þakka sem aðal samstarfsaðila mótaraðar- innar. Það hefur gengið mjög vel að fá aðila til samstarfs og fyrir það erum við þakklát. Við höfum gert samning við Icewear til tveggja ára sem gerir okkur meðal ann- ars kleift að auglýsa mótin okkar betur. Þá getum við veitt verðlaun í öllum f lokkum ásamt nándar- verðlaunum. Mig langar að nota tækifærið og þakka einnig þeim fyrirtækjum sem hafa og munu útvega verðlaun í sumar. Þau eru 66° Norður, Ping, Örninn, Kaffi- tár, Nespresso og Bláa Lónið og þá útvegar fyrirtækið Sóley organics verðlaun á par 3 holur í sjö mótum sumarsins. Við viljum þakka þess- um fyrirtækjum fyrir stuðninginn – án þeirra væri starfið erfiðara,“ segir Gauti Grétarsson, formaður LEK – Landssamtaka eldri kylfinga. Ganga með tilgangi eflir andann „Við í stjórninni f innum fyrir auknum áhuga á golfi eldri kylf- inga. Við leggjum áherslu á það við stjórnvöld að það að iðka golf sé öflug forvörn fyrir sjúkdóma og kvilla síðar á lífsleiðinni og hægi á öldrunareinkennum. Rannsóknir sýna að þeir sem stunda golf eru í betra formi en þeir sem gera það ekki. Spila þar margir þættir inn í, bæði líkamlegir, andlegir og félags- legir. Það að ganga 9 eða 18 holur nokkrum sinnum í viku með til- gangi í góðum félagsskap, hefur áhrif á eflingu andans og lýðheilsu- áhrifin eru mikil.“ Síðasta sumar var liðakeppni í öldungamótaröðinni sett á lagg- irnar þar sem einstaklingar gátu skráð sig í lið og keppt þannig samhliða einstaklingskeppninni. „Liðakeppni er ný upplifun fyrir suma kylfinga sem eru oft meira uppteknir af eigin frammistöðu en frammistöðu einhverra annarra. Í fyrra byrjuðum við með liðakeppni karla 65 ára og eldri og í sumar ætlum við að gera sama með konur 65 ára og eldri. Það er ánægjulegt að áhugi íslenskra kvenna á golfi er að aukast. Við sjáum það á öllum golfvöllum að konurnar eru heldur betur mættar til leiks. Það finnst mér mikilvægt þar sem kvenna- golf er á uppleið í heiminum og samhliða auknum áhuga kvenna fjölgar stelpum í golfi sem er mjög mikilvægt,“ segir Gauti. Eldri landslið á ferð og flugi „Við erum að senda landslið til keppni erlendis. Kvennalandsliðið keppir á Marisa Sgaravatti Trophy í júlí og karlalandslið 65 ára og eldri keppir á Ítalíu. Að lokum keppir 55 ára landslið karla í París í byrjun ágúst. Mig langar að nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sjálf boða- liðum sem lagt hafa okkur lið og þeim sem almennt gefa vinnu sína í þágu golfíþróttarinnar á Íslandi. Það krefst mikils utanumhalds að halda 8 mót á einu sumri og margar hendur þarf til. Sjálf boðaliðar eru dýrmætur fjársjóður í íslenskum íþróttum og án öf lugra bakhjarla væri erfitt að halda samtökum eins og LEK gangandi.“ n Golf er öflug forvörn fyrir sjúkdóma og kvilla kylfingur.is Haraldur Franklín Magnús úr GR var grátlega nálægt því að komast inn á Opna bandaríska meistara- mótið í gegnum lokastig úrtöku- móts í New York sem fram fór á mánudaginn var. Haraldur Frank- lín segist hafa skráð sig í mótið þar sem hann gat farið beint á loka- stigið vegna stöðu sinnar á heims- listanum. Úrtökumótin fyrir Opna bandaríska meistaramótið eru leikin á tveimur stigum en 500 efstu kylfingarnir á heimslistanum komast beint á lokastigið. „Ég hugsa að það taki fátt meira á taugarnar en að týja boltann upp á 1. teig á US Open þar sem völlurinn er settur upp eins erfiður og kostur er og allir þeir bestu í heiminum taka þátt. Ég vil spila í akkúrat svo- leiðis aðstæðum – á risamótum,“ segir Haraldur Franklín. Lokaðir klúbbar „Leiknir voru tveir hringir á tveimur völlum á annars vegar Old Oaks Country Club og hins vegar Cent- ury Country Club á sama deginum. Um er að ræða mjög lokaða klúbba og sem dæmi mátti eingöngu æfa í 15 mínútur á æfingasvæðinu, ekki spila æfingahring daginn fyrir mót og að sjálfsögðu var stranglega bannað að fara inn í klúbbhúsið. Ég náði því ekki góðri æfingu fyrir mótið en það fylgir þessu stundum. Vellirnir voru báðir settir upp krefj- andi, flatirnar voru hraðar og mikill halli á þeim – það var bannað að skilja eftir pútt niður í móti. Dagur- inn fór frekar brösuglega af stað og eftir fimm holur var ég kominn 2 högg yfir par Old Oaks vallarins. Ég vann mig þó til baka á hringnum og endaði á 1 höggi undir pari. Century völlurinn var aðeins þægi- legri og þar var auðveldara að setja upp leikskipulag. Mér gekk mjög vel að spila hann og ég var heilt yfir ánægðastur með þolinmæðina og hugarfarið. Niðurstaðan var 2 högg undir par og við tók löng bið.“ Átta manna umspil um þátttöku Haraldur f lakkaði fram og til baka, yfir og undir niðurskurðarlínuna en þegar allir kylfingar höfðu skil- að sér í hús var ljóst að grípa þurfti til bráðabana milli átta kylfinga um þrjú sæti á þessu þriðja risa- móti ársins. „Myndaðir voru tveir ráshópar. Ég dró töluna 8 úr hatti og sló síðastur úr seinni ráshópn- um. Fyrsta hola bráðabanans var 1. braut á Old Oaks vellinum. Brautin liggur í hundslöpp til hægri og vindurinn blés frá hægri til vinstri. Ég fór aðeins of langt út í hunds- löppina og endaði í karganum. Þar lá köngull upp við boltann. Ég var með dómara með mér og var að velta fyrir mér að færa köngulinn. Dómarinn var f ljótur að tjá mér að ef boltinn hreyfðist fengi ég tvö högg í víti. Ég var of skjálfhentur í svoleiðis Míkadó-leik svo ég ákvað að reyna að slá lágt og rúlla bolt- anum inn á f löt. Það gekk nokkuð vel eftir en köngullinn reif í og ég dró ekki inn á f lötina. Ég átti svo gott högg inn á f löt og setti þriggja metra pútt í. Boltinn tók reyndar heilhring á holubarminum en hann endaði í. Við fengum allir par á holuna. Næst fórum við á 18. braut vallarins, sem er löng par 5 hola og liggur upp í móti. Við heyrðum einhver fagnaðarlæti á f lötinni í hollinu á undan okkur. Ég átti u.þ.b. fjögurra til fimm metra pútt eftir fyrir fugli og ætlaði að negla það niður. Ég vildi alls ekki vera of stuttur. Ég missti púttið rétt hægra megin og boltinn staðnæmdist tvo metra fram fyrir holu. Þarna voru þrír kylfingar búnir að fá fugl svo því miður gekk þetta ekki upp að þessu sinni.“ „Ég verð bara með seinna“ „Það verður erfitt að horfa á US Open í næstu viku og hugsa um eitt högg hér og eitt högg þar – högg sem hefðu getað komið mér á The Country Club meðal þeirra allra bestu, en ég má ekki pirra mig á þessu. Ég get tekið margt jákvætt með mér frá New York. Það var hell- ingur af frábærum kylfingum með í mótinu og Ross Davis, félagi minn úr bandaríska háskólagolfinu, kom frá Boston og var kylfuberi. Það var frábært að hafa gamlan vin á pok- anum en við Ross hittumst ekki oft. Þetta var skemmtilegur dagur. Hann var erfiður og stressandi en frábær áskorun og sem betur fer er US Open árlegur viðburður – ég verð bara með seinna.“n Haraldur Franklín grátlega nálægt US Open kylfingur.is Þeir Sigurbjörn Þorgeirsson úr GFB og Halldór Birgisson úr GHH leika á Evrópumóti eldri kylfinga í Eist- landi dagana 9.-11. júní. Mótið fer fram á strandvellinum á Pärnu Bay. Sigurbjörn og Halldór keppa í flokki 50 ára og eldri en einnig er keppt í f lokki 60 ára og eldri. Keppendur eru 105 talsins frá 25 þjóðríkjum. Á mótinu eru leiknir þrír 18 holu hringir á jafn mörgum keppnis- dögum. Þeir félagar léku á Opna spænska meistaramótinu í febrúar á þessu ári og náðu góðum árangri. Nánari umfjöllun um Evrópumótið er að finna á kylfingur.is. n Tveir fulltrúar frá Íslandi á EM eldri kylfinga Gauti Grétars- son, formaður LEK. MYND/GSÍ SIGURÐUR ELVAR ÞÓRÓLFSSON Ross Davis, félagi Haralds Franklíns úr háskólagolfinu, var kylfusveinn hans. MYND/AÐSEND Halldór Birgisson og Sigurbjörn Þor- geirsson á Opna spænska meistara- mótinu í febrúar. MYND/AÐSEND GOLF kylfingur.is FRÉTTABLAÐIÐ 11. júní 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.