Bændablaðið - 25.05.2022, Qupperneq 2
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 20222
FRÉTTIR
Jónatan Magnússon og Una
Lára Waage, sem hafa verið með
búrekstur á Hóli í Önundarfirði, eru
þessa dagana að ganga frá kaupum
á Stóru-Hildisey II í Landeyjum af
Jóhanni Nikulássyni og Sigrúnu
Hildi Ragnarsdóttur. Mun Jónatan
og fjölskylda í framhaldinu flytja
allar sínar mjólkurkýr suður ásamt
mjólkurkvóta.
Jónatan sagði í samtali við
Bændablaðið að svona búferla
flutningar væru alls ekki sársauka
lausir og að í svona ákvarðanatöku
fælust bæði plúsar og mínusar,
en þau hjón teldu kostina syðra þó
vega þyngra.
„Maður er búinn að vera að
skoða þessi mál í allan vetur og svo
eru sumrin fyrir vestan engu lík,
en veturnir geta hins vegar verið
alveg svakalegir.
Það hjálpar líka til að vorið
byrjaði ekki með neinum glæsibrag
fyrir vestan að þessu sinni. Þá er Una
Lára að sunnan þótt hún sé ættuð
frá Bíldudal og Patreksfirði. Það
blandast því miklar tilfinningar inn
í þetta allt saman,“ segir Jónatan.
Verður með yfir milljón lítra
kvóta og yfir 150 kýr á nýjum stað
„Ég er búinn að vera með á bilinu
80 til 90 kýr á Hóli og 465.000
lítra mjólkurkvóta. Við flutninginn
suður verðum við með samanlagt
1.011.000 lítra kvóta og um 150 til
160 kýr.
Þá var ég ekki með nema 18
hektara tún heima í Önundarfirði
og leigði tíu til tólf jarðir að auki. Í
Stóru Hildisey II eru 100 hektarar í
ræktun og möguleiki að auka ræktun
upp í 150 hektara.“
Jónatan segir að húsakostur sé
góður á nýja staðnum. Og ábúendur
í StóruHildisey II hafi byggt upp
húsakost þar sem hugsað hefur verið
til framtíðar og því sé tiltölulega
auðvelt að sameina búreksturinn
Kaupverðið á StóruHildisey er í
kringum 400 milljónir króna og fer
Hóll upp í kaupin. Jónatan segir að
forsendan fyrir því að slík kaup gangi
upp sé að hann geti flutt kýr og kvóta
með sér að vestan. „Þetta er ansi
stór biti og maður reynir að halda
niðri öllum kostnaði við breytingar.
Ég hefði vissulega getað selt kvótann
og nýtt peninginn af því, en flutningur
á kvótanum og mjólkurkúm gerir
þetta mun vænlegra.“
Frestun á afgreiðslu vegna
forkaupsréttar
Til stóð að ganga frá kaupunum
1. maí, en ákvæði í afsali Hóls, sem
þau keyptu af foreldrum Jónatans,
kvað á um forkaupsrétt ríkisins á
jörðinni sem tafið hefur málin um
nokkrar vikur. Vonaðist hann til
að hægt yrði að ljúka málinu fyrir
lok maí. Ekki stendur til að Jóhann
og Hildur verði með hefðbundinn
búskap á Hóli þótt jörðin fylgi með
í kaupum Jónatans og fjölskyldu á
StóruHildisey II.
Tók við rekstrinum 1. maí
„Þar sem ekki tókst að ganga
formlega frá kaupunum 1. maí þá
varð það að samkomulagi milli
okkar Jóhanns að ég leigði jörðina
af honum þar til hægt væri að ganga
frá kaupunum. Við erum að vonast
til að þetta klárist fyrir maílok, en
það kemur í ljós.
Ég tók því við rekstr
inum í StóruHildisey II
þann 1. maí og er búinn að
vera að mjólka þar síðan.
Þá er ég með öflugan
vinnumann, sem sinnir
búinu fyrir mig á Hóli þar
til við getum endanlega
flutt. Það er Englendingur
sem er búinn að vera hjá
mér í tvö og hálft ár.“
Gripirnir verða fluttir
í rólegheitum
Jónatan sótti um hjá MAST í síðustu
viku að fá að flytja gripina á milli
svæða og vonaðist hann til að geta
hafið þá flutninga í þessari viku.
„Ég ætla að flytja gripina í
rólegheitunum og vera með fáa gripi
á hverjum bíl, kannski 15 kýr, og
fara eina ferð á dag. Það er miklu
meira virði fyrir mig að reyna að
halda nyt í kúnum heldur en að flytja
mikinn fjölda í einu í færri ferðum.
Þá er líka breyting fyrir kýrnar að
fara úr mjaltaþjónum í mjaltabás til
að byrja með.“
Á Hóli var Jónatan með tvo
Delaval mjaltaþjóna, annan frá 2003
og hinn um þriggja ára gamlan.
Fyrir er í StóruHildisey II
lítill mjaltabás. Sagðist Jónatan
ætla að breyta mjaltaaðstöðunni á
nýja staðnum og setja þar upp þrjá
mjaltaþjóna, tvo sem voru fyrir
vestan og einn til viðbótar.
„Ég flyt inn Delaval róbot
af gömlu gerðinni frá Írlandi,
en algjörlega ónotaðan og enn í
kassanum. Það vildi enginn kaupa
hann svo ég fékk hann á mjög góðu
verði,“ sagði Jónatan.
„Ég fann þennan um páskana á
síðu Delaval eigenda úti í löndum
og sendi umsvifalaust tölvupóst.
Fyrri róbótinn sem ég var með fyrir
vestan var keyptur með svipuðum
hætti. Hann var búinn að standa í
gámi norður á Akureyri í tvö ár þar
sem enginn vildi kaupa hann af því
að það vor kom nýrri og fullkomnari
gerð. Ég fékk hann því með góðum
afslætti. Svo fæ ég annan notaðan
róbót til viðbótar úr Eyjafirði.
Ef ég hefði keypt nýju týpuna,
sem er 10% afkastameiri, og verið
bara með tvo mjaltaþjóna, þá hefði
það kostað 4050 milljónir króna,“
segir Jónatan Magnússon.
/HKr.
Jónatan Magnússon og Una Lára Waage, bændur á Hóli í Firði í Tungudal
í Önundarfirði, tóku við rekstrinum í Stóru-HIldisey II í Landeyjum þann 1.
maí síðastliðinn. Til að byrja með leigja þau reksturinn á meðan unnið er
að frágangi á kaupum. Jónatan sér mikla möguleika í flutningnum á nýjan
stað þar sem hann verður með mun meiri mjólkurkvóta og 150 til 160 kýr.
Mynd / Viktor Steinar Þorvaldsson
Stóra-Hildisey II í Landeyjum. Íbúðarhús og útihús hægra megin á myndinni tilheyra Stóru-Hildisey I sem hefur líka verið til sölu. Mynd HKr.
Jóhann Nikulásson, bóndi í
Stóru-Hildisey II, nýtur nú sólar
á Kanaríeyjum ásamt konu sinni,
Sigrúnu Hildi Ragnarsdóttur.
Þangað fóru þau eftir að hafa
aðstoðað Jónatan Magnússon
við nauðsynleg vorverk þegar
ljóst var að báðir voru ákveðnir
í að láta samninga um kaup og
jarðaskipti ganga upp.
Að því loknu pöntuðu þau
hjónin í fyrsta skipti á ævinni
farmiða aðra leiðina á vit nýrra
ævintýra.
„Ætli við eigum það bara ekki
skilið eftir rúmlega þriggja áratuga
feril í búskapnum þar sem lítið
hefur verið um frí,“ sagði Jóhann
og telur þau vera lánsöm að ungt og
áhugasamt fólk taki við jörðinni.
Ekki einfalt mál
að selja svona kúabú
„Það er búið að tryggja fjármögnun
sem og öll tilskilin leyfi varðandi
flutninga á gripum og kvóta
og ekkert eftir nema frágangur
á pappírum.
Það er hins vegar alls ekki
einfalt mál að selja kúabú með
rúmlega hálfri milljón lítra í kvóta
og vandfundnir aðilar sem ráða við
slíka fjárfestingu.“
Jóhann segir að hjá þeim hafi
þetta verið tveggja ára ferli, en
konan hefði þó viljað selja fyrr
vegna ofnæmis sem hún fékk fyrir
kúm fyrir 25 árum sem leiddi til
þess að fyrir sex árum keyptu þau
einbýlishús á Selfossi þar sem
Hildur hefur að mestu dvalið síðan.
„Það tók mig samt tvö ár að
sannfærast um að þetta væri rétt
ákvörðun. Hún var svo endanlega
tekin í samráði við börnin okkar
fjögur.
Ég hef alltaf sagt við krakkana
mína að það ætti enginn að taka
við búskap nema hann hafi fyrir
því brennandi áhuga. Það eru allt
of margir sem hafa tekið við búum
af því að það var ætlast til þess
af þeim. Þá er fólk ekki að gera
þetta af heilum huga heldur af
skyldurækni við aðra.
Niðurstaða okkar fjölskyld
unnar var því sú að setja jörðina
okkar á sölu.
Okkur hefur liðið vel í sveitinni
og það eru viss forréttindi að ala
börnin sín upp á svona stað. En
við erum svo heppin að við tekur
ungt og áhugasamt fólk sem
kemur með ung börn í sveitina
og stækkar búið hér í Hildisey
um það bil um helming. Það er
eiginlega ekki hægt að biðja um
neitt meira.“
Sér virkjunarmöguleika
á Hóli í Önundarfirði
Hluti af samningunum felst í því að
Jóhann og Hildur taka við jörðinni
Hóli í Firði í Önundarfirði. Þau
hafa samt ekki í hyggju að hefja
þar kúabúskap.
„Nei, nei, það stendur ekki
til en þetta er vel uppbyggð
jörð og á gríðarlega fallegum
stað sem býður upp á allt annars
konar möguleika. Í því sjáum við
ákveðin tækifæri. Það eru þarna
m.a.virkjanamöguleikar sem við
höfum áhuga á að kanna nánar,“
segir Jóhann. /HKr.
Horfir til virkjunarmöguleika á Hóli
Jóhann Nikulásson.
Jónatan Magnússon, bóndi á Hóli í Önundarfirði, og fjölskylda flytja í Landeyjarnar:
Kaupa Stóru-Hildisey II og flytja kýr og kvóta suður
Jónatan Magnússon er mjög sáttur við allan aðbúnað í fjósinu í Stóru-Hildisey II.
Þar er nú mjaltagryfja, en hann hyggst setja þar upp þrjá mjaltaþjóna.
Mynd / HKr.