Bændablaðið - 25.05.2022, Page 14

Bændablaðið - 25.05.2022, Page 14
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 202214 Flateyringurinn Siggi Björns ætlar að gleðja landann með spili og söng í nær þriggja vikna tónleikaferð um Vesturland og Vestfirði ásamt Franzisku Günther. Þau voru líka hér á ferð á síðasta ári og héldu þá tónleika víða um land. Fyrir Íslandsferðina var Siggi að spila í Norður-Þýskalandi. Siggi Björns hefur síðan 1988 lifað á spilamennsku úti um allar trissur. Hann er frá Flateyri og ólst upp þar eins og aðrir púkar fyrir tíma dagheimila, við höfnina og í beitningarskúrunum. Síðan á unglingsárunum hefur gítarinn aldrei verið langt undan þó að það hafi lengi vel ekki verið hugmyndin að lifa af gítargutli. Síðustu árin hefur hann verið í Berlín og alltaf á ferðinni. Er orðin goðsögn á dönsku eyjunni Borgundarhólmi Síðan 1990 er Siggi búinn að spila öll sumur á dönsku eyjunni Borgundar- hólmi og er enn að, enda orðin eins konar goðsögn þar. Þar hitti hann Franzisku Günther fyrst. Hún var þá unglingur sem var farin að reyna fyrir sér við að troða upp með gítarinn. Í gegnum árin héldu þau alltaf sambandi og þegar Siggi kom til að spila í Waren Müritz í Norður- Þýskalandi, þar sem Franziska bjó, var hún alltaf dregin með á sviðið. Franziska er búin að gera það gott síðustu árin á þýskum sviðum og annars staðar í Evrópu með sinni tónlist. Titillagið af síðasta geisladisk Franzisku, „Besser wenn der Kopf Nicht Hängt“ lá í sjö mánuði á topp tíu á lista yfir frásagnar- og þjóðlagatónlist í Þýskalandi. Síðustu sex ár hafa Siggi og Franziska unnið mikið saman og spilað vítt og breitt um Norður- Evrópu. Þau hafa samið þó nokkuð af efni saman og gefið út. Í maí 2021 kom sólódiskur frá Sigga og eru flest lögin skrifuð í samvinnu við Franzisku. Á tónleikum spila þau að mestu efni úr eigin smiðju og mátulega sannar sögur því til stuðnings. Íslandstúr 2022: 24.05. Reykjavík - Hús Máls og menningar 28.05. Hellissandur - Frystiklefinn 29.05. Stykkishólmur - Vatnasafnið 03.06. Flateyri - Vagninn (+Svavar Knútur) 05.06. Bíldudalur - Vegamót (+Svavar Knútur) 09.06. Bolungarvík - Einarshúsið 10.06. Hólmavík - Café Riis Þess má geta að eftir tónleikana í Bolungarvík, eða laugardaginn 11. júní, munu þau líka koma fram í skemmtiprógrammi fyrir sjóma nnadag í Félagsheimilinu í Bolungar vík. Spilar með syninum á tónleikum í Þýskalandi eftir Íslandsferðina „Eftir Íslandsferðina verðum við eina helgi í Þýskalandi, þar sem við spilum tvenna tónleika,“ sagði Siggi í samtali við Bændablaðið. „Sonur minn Magnús, sem er aðeins fjórtán ára, spilar þar með okkur á trommur. Síðan höldum við ferðinni áfram til Borgundarhólms þar sem ég verð í allt sumar. Franziska verður með mér þar í nokkrar vikur en er svo á ferðinni ein á festivölum í Þýskalandi fram á haustið,“ segir tónlistarmaðurinn Siggi Björns. /HKr. FRÉTTIR Flateyringurinn Siggi Björns og Franziska Günther eru nú á tónleikaferðalagi um Vesturland og Vestfirði. Þau hófu túrinn í Húsi Máls og menningar í gær, miðvikudaginn 24. maí, og enda þessa ferð þann 10. júní með tónleikum á Café Riis á Hólmavík. Blönduósbær og Húnaþing vestra hafa gerst aðilar að Heilsueflandi samfélagi. Alma D. Möller landlæknir var á ferðinni þar á dögunum og undirritaði samning ásamt sveitarstjórum, þeim Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur í Húnaþingi vestra og Valdimar O. Hermannssyni á Blönduósi. Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lífsháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með samningnum skuldbinda sveitarfélögin sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags í sveitarfélaginu í samræmi við samninginn. „Með undirskrift samnings um Heilsueflandi samfélag einsetja sveitarfélög sér að vinna markvisst lýðheilsustarf, í samræmi við markmið og leiðarljós Heilsueflandi samfélags með stuðningi frá Embætti landlæknis og öðrum sem að starfinu koma. Í markvissu lýðheilsustarfi er bilið á milli gagna, stefna og aðgerða brúað með því að nota lýðheilsuvísa, gátlista og önnur gögn til að meta stöðuna og forgangsraða í samræmi við þarfir hvers samfélags. Miðlægt vefkerfi, sem er í þróun, styður samfélög í að halda utan um starfið, meta framvindu þess og miðla áfram,“ segir á vef Húnaþings vestra. /MÞÞ Siggi Björns og Franziska Günther með tónleikaröð á Íslandi í maí og júní: Með eigin lög og mátulega sannar lygasögur Siggi, Franziska og Magnús að spila í miðju Covid-fári, inn á rafræna útgáfu sem flutt var á hátíðinni Stútungi sem haldin var á Flateyri á síðasta ári. Siggi og Franziska á Tónleikum í Grindavík í maí 2021. Mynd / HKr. Framkvæmdir eru hafnar við byggingu nýrrar kirkju í Grímsey, en fyrsta skóflustungan var tekin nýlega. Miðgarðakirkja í Grímsey brann til grunna ásamt öllum kirkjumunum á liðnu hausti og var mikið reiðarslag fyrir Grímseyinga. Þeir voru þó strax staðráðnir í að reisa nýja kirkju og hófu undirbúning og söfnun að byggingunni, sem rísa mun á grunni þeirrar gömlu. Nýja kirkjan verður nokkuð stærri en sú eldri, en hún mun, auk þess að þjóna helgihaldi, einnig gegna hlutverki menningarhúss. Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson, sóknarprestur Grímseyinga, flutti stutta hugvekju þegar fyrsta skóflustunga var tekin, en það var ungur Grímseyingur, Konráð Sveinn Svafarsson, sem það gerði. Að því loknu var boðið upp á veislukaffi að hætti Grímseyinga. Áætlað er að vígja nýja kirkju sumarið 2023. Enn vantar fjármagn „Bygging nýrrar kirkju er viðamikið samfélagslegt verkefni sem Grímseyingar leggja nú allt kapp á að verði að veruleika. Þegar hafa safnast nokkrir fjármunir til byggingar hinnar nýju kirkju og eru eyjarskeggjar afar þakklátir öllum þeim sem hafa lagt verkefninu lið. Grímseyingar standa þó frammi fyrir þeirri staðreynd að enn vantar nokkurt fjármagn til framkvæmdarinnar og hafa af því tilefni opnað söfnunarsíðuna grimsey.is/kirkja,“ segir í frétt vegna framkvæmdanna. /MÞÞ Ungur Grímseyingur, Konráð Sveinn Svafarsson, tók fyrstu skóflustunguna að nýrri kirkju í Grímsey. Mynd / Arna Björg Bjarnadóttir Grímsey: Skóflustunga tekin að nýrri kirkju Alma D. Möller og Valdimar O. Hermannsson undirrita samning um Heilsueflandi samfélag á Blönduósi. Mynd / Aðsend Heilsueflandi samfélög í Húnavatnssýslum Handverkshátíðin á Hrafnagili verður endurskipulögð: Engin hátíð á komandi sumri Engin Handverkshátíð verður á komandi sumri á Hrafna gili í Eyjafjarðarsveit. Ákveðið hefur verið að ráðast í endur skipu­ lagningu á hátíðinni, en félögin sem að henni hafa staðið finna fyrir breyttu landslagi eftir kórónu veirufaraldurinn. Fram kemur á vef Eyjafjarðar- sveitar að til að þróast í takt við óskir og hugmyndir sem fram hafa komið þurfi að vanda til verka, óska eftir umsögnum og hugleiðingum sýnenda, fastagesta og annarra þeirra sem þátt hafa tekið í sýningarhaldinu. „Svo vel megi ganga er því gott að hafa góðan tíma til undirbúnings en faraldurinn hefur nú þegar gefið okkur tíma til að íhuga breytingar og tækifæri til að huga að því sem vel hefur verið gert og því sem betur má fara,“ segir á vef sveitarfélagsins. Öll vinna í kringum hátíðina er sjálfboðavinna í fjáröflunarskyni fyrir þau fjölmörgu félög sem að henni standa og því mikilvægt að vanda til verka og gefa sér nægan tíma. Því hafi verið ákveðið að Handverkshátíð muni ekki fara fram í sumar, en strax næsta haust mun skipuleggjendum, sýnendum og öðrum áhugasömum verða boðið á málþing um endurskipulagningu Handverkshátíðar. /MÞÞ Þau félög sem staðið hafa fyrir Hand- verkshátíð á Hrafnagili finna fyrir breyttu landslagi eftir kórónu- veirufaraldurinn. Engin hátíð verður í sumar en ráðist verður í endur- skipulagningu hátíðarinnar. Mynd / MÞÞ Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Landbúnaðarleikföng

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.