Bændablaðið - 25.05.2022, Side 26
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 202226
LÍF&STARF
Á aðalfundi Beint frá býli á
dögunum var samþykkt aðild
að Samtökum smáframleiðenda
matvæla (SSFM). Fundurinn
ályktaði um að auka þurfi
svigrúm til heimavinnslu á fleiri
dýraafurðum og heimila þurfi
sölu á ógerilsneyddri mjólk og
mjólkurafurðum.
Hanna S. Kjartansdóttir, bóndi á
Leirulæk, verður áfram formaður, en
hún selur nautakjöt undir merkjum
Mýranauts.
Þrjú erindi um mat
Við aðildina að SSFM tekur
Oddný Anna Björnsdóttir við starfi
framkvæmdastjóra Beint frá býli
og gegnir því samhliða því að vera
framkvæmdastjóri SSFM.
Að sögn Oddnýjar voru þrjú erindi
flutt á aðalfundinum sem snerust
um mat og matvælaframleiðslu.
„Hafliði Halldórsson frá Icelandic
Lamb greindi frá árangrinum í
markaðssetningu íslenska lamba
kjötsins. Tjörvi Bjarnason sagði frá
Matarlandinu, sem er nýr vefmiðill
þar sem fjallað er um allt sem
tengist mat og matvælaframleiðslu
og er jafnframt vettvangur fyrir
sölu og miðlun á upprunamerktum
búvörum og fleira góðgæti. Unnur
V. Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri
SSNV, sagði frá þeirri þjónustu
sem landshlutasamtökin geta veitt
heimavinnsluaðilum og öðrum
smáframleiðendum matvæla.
„Það helsta úr skýrslu formanns
var að félagið hefur nú fengið þrjú
kynningarmyndbönd afhent frá
framleiðslufyrirtækinu Beit, sem
mikil ánægja er með, enda lýsa þau
vel því sem Beint frá býli stendur fyrir
og þeim gæðavörum sem félagsmenn
framleiða. Eins að ný heimasíða hafi
verið tekin í notkun og félagsmenn
hvattir til að uppfæra sín svæði eftir
þörfum. Í gegnum hana geta neytendur
sent framleiðendunum fyrirspurnir og
fengið svör og í framhaldinu pantað.
Eins var tekin törn í að sækja um
afsláttarkjör hjá ýmsum fyrirtækjum,“
bætir Oddný við.
Auka þarf svigrúm
til heimavinnslu
Á aðalfundinum var ályktað um
að ánægjuleg þróun hefði orðið í
heimavinnslu afurða með reglugerð
sem heimilar slátrun sauð og geitfjár
heima á býli. Fundurinn beinir því til
yfirvalda að heimila einnig slátrun
á alifuglum og nörturum eins og
matvælalöggjöfin geri ráð fyrir.
Er í því sambandi vitnað til
ákvæðis í matvælalöggjöfinni, þar
sem segir að hægt sé að „beina
afhendingu framleiðanda á litlu
magni kjöts af alifuglum og nörturum,
sem er slátrað á býlinu, til neytanda
eða smásölufyrirtækis á staðnum sem
afhendir slíkt kjöt beint til neytenda
sem nýtt kjöt.
Aðildarríki er heimilt, að eigin
frumkvæði og með fyrirvara um
almenn ákvæði sáttmálans, að
viðhalda eða setja landsbundnar
reglur.“ Í ályktuninni segir að
hér á landi hafi ekki verið settar
landsbundnar reglur, sem þýðir að
ekki er hægt að ala alifugla heima á
býli og selja afurðir þeirra á löglegan
hátt, þar sem sláturleyfishafar taka
þessa fugla ekki inn í sláturhúsin sín.
Þá óskar fundurinn einnig eftir því að
bann við vinnslu afurða heimaalinna
svína verði endurskoðað hið fyrsta og
fellt úr gildi.
Sala á ógerilsneyddri mjólk
Þá ályktaði fundurinn um þörfina
fyrir heimild heimavinnsluaðila til
að selja ógerilsneydda mjólk og
mjólkurafurðir beint frá býli og
setti fram formlega ósk þess efnis
á fundinum.
Í ályktuninni segir að bændur
finni vel fyrir eftirspurninni eftir
slíkum vörum „og telur félagið
því að leyfa eigi slíka framleiðslu
og sölu með ströngum skilyrðum
sem matvælalöggjöfin opnar á
í gegnum landsbundnar reglur.
Verði hún áfram bönnuð verði
hægt að sækja um undanþágu að
uppfylltum tilteknum skilyrðum. Í
dag er heimilt að flytja inn og selja
ógerilsneydda osta, en óheimilt séu
þeir innlendir, sem er að sjálfsögðu
ótækt með öllu,“ segir í ályktuninni.
/smh
Vörur Beint frá býli.
Hanna S. Kjartansdóttir, bóndi á
Leirulæk, verður áfram formaður.
*Afborganir miðast við Lykillán fyrir 75% af kaupverði til 60 mánaða frá Lykli fjármögnun. Vextir
miðast við 6,8% breytilega vexti og eru tengdir við eins mánaða reibor vexti. Lánaskilmála má finna
á www.lykill.is. Árleg hlutfalltala kostnaðar – ÁHK er ** 8,88% - Verð innifelur virðisaukaskatt.
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | S: 540 4900 | www.yamaha.is
Verð: 2.560.000 kr.
700cc fjórgengis-4WD-H/L drif - driflæsing -
spil - rafmagnsstýri - dráttarkúla - götuskráð
- hvít númer - 307kg eigin þyngd.
GRIZZLY
39.438 kr.*
afborgun á mánuði **
10
Á
BYRGÐ Á DRIFREIM
ULTRAMATIC
ÁBYRGÐ
LÁNSHLUTFALL
ALLT AÐ
75%
Í ALLT AÐ 60 MÁNUÐI
Aðalfundur Beint frá býli ályktaði um
þörf á meira svigrúmi til heimavinnslu
Uppbygging leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð:
Byrjað á íbúðum í Neskaupstað
og Breiðdalsvík í sumar
Fyrir skömmu var skrifað undir
vilja yfirlýsingu milli Fjarða
byggð ar, Bríetar, Húsnæðis og
mannvirkjastofnunar, og verk
taka fyrirtækisins Búðinga um
uppbyggingu og styrkingu leigu
íbúðamarkaðarins í Fjarðabyggð.
Í henni felst að nú í júní verður
hafist handa við byggingu á
fjórum íbúðum í Neskaupstað fyrir
Leigufélagið Bríeti, og áætlað að
þær verði afhentar í febrúar 2023.
Þá verði einnig hafist handa við
byggingu á tveimur eignum á
Breiðdalsvík seinnipart sumars
og áætlað að vinnu við þær
verði lokið haustið 2023. Það er
verktakafyrirtækið Búðingar ehf.
á Fáskrúðsfirði sem mun annast
framkvæmdir á báðum stöðum.
Þá var einnig skrifað undir
samkomulag þess efnis að Bríet
kaupi tvær íbúðir, sem nú er verið að
klára við Stekkholt á Fáskrúðsfirði,
sem Búðingar hafa unnið við að
undanförnu. Þetta kemur fram á
vefsíðu Fjarðabyggðar.
Með þessu eru stigin fyrstu
skref í samstarfi Fjarðabyggðar
við Leigufélagið Bríet eftir
að sveitarfélagið lagði þar inn
íbúðir sem það átti. Með því varð
Fjarðabyggð hluthafi í Bríet ásamt
ríkinu. Samstarfið hefur gefist vel
og telja aðilar samkomulagsins
eðlilegt að næsta skref sé að
leggja í enn frekari uppbyggingu
leiguíbúðamarkaðarins í Fjarða
byggð og með samkomulaginu eru
skref stigin í þá átt.
Þá verður næsta verkefni að hefja
undirbúning að byggingu leiguíbúða
á Eskifirði og Stöðvarfirði.
Sú vinna hófst nú í maí og
stefnt að samkomulagi þess efnis á
sumri komanda. /MÞÞ
Skrifað undir viljayfirlýsingu í Múlanum í Neskaupstað. Frá vinstri: Róbert
Sigurvaldason, f.h. Búðinga ehf., Drífa Valdimarsdóttir, f.h. Leigufélagsins
Bríetar, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Jón Björn Hákonarson,
bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Hermann Jónasson, forstjóri HMS.