Bændablaðið - 25.05.2022, Síða 57
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 2022 57
Efni:
25 grömm af skýjabandi eða sambærilegu garni úr
geitafiðu eða ull.
Sokkaprjónar nr. 3,0 og 3,5 mm.
Aðferð
Fitjið upp 36 lykkjur á sokkaprjóna nr 3,0 mm. Tengið
í hring og prjónið stroff; 2 lykkjur sléttar 1 lykkju
brugðna. Prjónið 5 umferðir þannig.
Næst er skipt yfir á prjón nr 3,5 og prjónað slétt og
aukið út um 2 Lykkjur jafnt yfir hringinn, þá eruð þið
með 38 L á prjónunum. Prjónið þrjár umferðir slétt
og síðan munstur eftir mynd. Athugið að munstrið
er prjónað ofan á handarbakinu en á lófanum er
prjónað slétt. Munstrið nær því eingöngu yfir
helminginn af lykkjunum á prjónunum.
Athugið að aukið er út fyrir þumli í 20. umferð
munsturs, þannig;
Aukið er út áður en munstrið er prjónað fyrir vinstri
hönd og eftir að munstrið er prjónað fyrir hægri
hönd. Aukið er út um 4 lykkjur (samtals 8 lykkjur)
sitt hvoru megin við fyrstu lykkju. Gott er að auka út í
4 umferðum og prjóna eina slétta umferð á milli (sjá
mynstur). Munstrið prjónast áfram í sömu slóð, en
þumallykkjurnar eru prjónaðar án munsturs.
Eftir 19 umferðir er komið að þumlinum; fyrstu 5
lykkjurnar og síðustu 5 lykkjurnar eru geymdar á
bandi eða nælu (þær mynda síðar þumalinn) og 3
nýjar lykkjur fitjaðar upp á milli í staðinn og prjónað
áfram í hring þar til munstri lýkur, þá eru prjónaðar
3 umferðir slétt og síðan 5 umferðir stroff eins og í
byrjun; 2L slétt, 1L brugðin. Fallegt er að láta stroffið
standast á í enda og í byrjun.
Fellið laust af og prjónið þumalinn.
Þumall
Takið upp lykkjurnar á nælunni. Bætið við þeim
þremur sem fitjaðar voru upp fyrir ofan þumalinn og
einni lykkju hvoru
megin við þær. Alls
15 lykkjur.
Prjónið 4 umferðir
slétt og 5 umferðir
stroff (2L slétt, 1L br).
Fellið laust af.
Prjónið hina stúkuna
og gætið þess að
þumallinn er nú á hinni
hlið stúkunnar.
Saumið inn lausa enda,
skolið í volgu vatni og
leggið til þerris.
Gangið frá endum og skolið úr stúkunum.
Prjónaútskýringar:
L lykkja(lykkjur)
slétt lykkja
o sláið upp á prjóninn
/ prjónið tvær l saman
\ takið eina lykkju óprjónaða fram af, prjónið næstu
og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
/x\ takið tvær lykkjur óprjónaðar fram af eins og þið
séuð að prjóna slétt, prjónið næstu lykkju og steypið
báðum óprjónuðu lykkjunum yfir. Lykkjan í miðjunni
lendir ofan á hinum tveimur. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 9. júní
Skýjastúkur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
7 2 3
4 3 1 7 5
8 5 6 7 2
1 2 7
6 9 1 4
3 4 8
5 3 8 6 9
6 7 9 4 2
4 6 1
Þyngst
3 8 7 4
9 6
5 8 3 9
6 1 2
7 6 4 1
9 7 4
2 3 5 8
4 2
6 1 5 3
7 8
3 8 4
5 2
4 2 7 6
9 3 1 5
8 7 5 3
5 9
1 3 6
6 2
5 1
2 5
1 6 9 3
4 9
7 8 2
4 1
9 6 1 3
3 5
7 4
Hestakona og dýralæknir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hestar og hundar eru í uppáhaldi
hjá Jóhannu Mattý, átta ára stelpu
sem býr í Borgarbyggð.
Nafn: Jóhanna Mattý Arnardóttir.
Aldur: Verður 8 ára í ágúst.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Laxeyri, Borgarbyggð.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar og hundar.
Uppáhaldsmatur: Hakk og spakk.
Uppáhaldshljómsveit: Bríet.
Uppáhaldskvikmynd: Að temja
drekann sinn.
Fyrsta minning þín? Þegar það
fæddust hvolpar heima.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi sund og er að læra
á flautu.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Hestakona og
dýralæknir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Setja hor í kaffið hans
pabba þegar hann skrapp frá (þegar
ég var lítil).
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
í sumar? Baka, fara á hestbak og í
sumarbústað.
Næst » Ég skora á Vigdísi Önnu
Eyjólfsdóttur, hina bestu vinkonu
mína, að svara næst.
Skýjaband - Geitagarn
100% íslenskt kasmírgarn.
Á Íslandi eru til u.þ.b. 1.400 geitur. Íslenska geitin
er á válista og í útrýmingarhættu en hún á vaxandi
fylgi að fagna og er nú til víða um land. Fáeinir bændur
mjólka geiturnar sínar og gera osta, ís og fleira góðgæti
úr mjólkinni og selja beint frá býli.
Íslenska geitin framleiðir kasmír og kasmír er gullið í
garninu! Ótrúlega mjúkt .
Geiturnar eru ekki margar hér á landi og hver og ein gefur
lítið af hráefninu sem kallast geitafiða og er kembd af
geitunum áður en hún er hreinsuð og unnin í garn.
Uppspuni er eina spunaverksmiðjan á landinu sem gerir
garn úr geitafiðu fyrir geitabændur og þeir selja það sjálfir.
Einnig er hægt að fá gullgarnið í takmörkuðu magni í
Uppspuna.
Upplýsingar um söluaðila á geita-kasmír-garni má fá með því að senda
póst á hulda@uppspuni.is eða í síma 846-7199
www.uppspuni.is
Reykjabúið vantar mann til starfa
í viðhald og viðgerðir.
• Umsjón með verkstæði og ýmislegu tilfallandi
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt
• Vélvirki, rafvirki eða laghentur aðili
Allt getur komið til greina.
Áhugasamir vinsamlega sendi fyrirspurnir
og upplýsingar á reykjabuid@kalkunn.is.
Atvinna
Reykjabúið ehf, 271 Mosfellsbæ