Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
LÍF&STARF
Með þessum fyrsta vísnaþætti
júnímánaðar fylgja mínar
kærustu þakkir til Harðar
Kristjánssonar, fráfarandi ritstjóra
Bændablaðsins. Samstarf okkar Harðar
hefur verið fádæma farsælt og ánægjulegt.
Um leið fagna ég ráðningu Guðrúnar Huldu
Pálsdóttur í ritstjórastarfið og ber þá von
í brjósti að geta átt með henni samstarf,
svo lengi sem ég endist og umburðarlyndi
hennar gagnvart mér varir. Ég hef dregist
á það að duga eitthvað lengur, en öllu er
þó markaður tími. En meðan efni berst
mér frá velunnurum þáttarins og enn
tírir á skarinu er mér engin vorkunn
að halda eitthvað áfram vísnaverkum.
Fyrstu vísur þáttarins eru eftir Björn
Schram:
Skulda fara að skerðast bönd,
skatnar hjara betur,
seldi bara hendi hönd
hver einn þar, sem getur.
Undrun jók það öllum hér,
að svo mikið snemma dvíni:
Sauðárkrókur kortur er
af kaffi, sykri og brennivíni.
Finnst mér hentugt, faldabrík
fá þig spennta í náðum,
eg hef kennt, að eru lík
element í báðum.
Benedikt Gíslason, Hofteigi kveður:
Margur hló og hafði ró,
hvar sem bjó og fór hann,
átti þó sinn auðnuskó
ekki nógu stóran.
Indriði á Fjalli orti:
Og þótt harðni heljartök,
höfum við í draumi
einhvers staðar auða vök
ofan að lífsins straumi.
Eitt sinn gekk Jón í Garðsvík til hárskera.
Allur varð hann uppnuminn því kona
klippti hann þetta sinnið:
Luktur faðmi fram sinn veg
fann ég skærin klifa.
Bak við hnakkann heyrði ég
hjartans klukkur tifa.
Við útför einstæðings orti Ólína
Jónasdóttir:
Það er ekki þys né ys,
þröng né fjölmennt erfi,
þó að lítið, fölnað fis
fjúki burt og hverfi.
Í svipaðan máta orti Heiðar Geirdal:
Röltir fólk með ríkra ná,
raunir þjaka sinni.
Þegar snauður fellur frá
fylgdin verður minni.
Heimildir svo greina, að Gestur
Kristinsson í Ytra-Dalsgerði hafi keypt
heilt hey af Kristni Jakobssyni á Espihóli.
Gestur var þá í þingum við konuefni sitt,
Jakobínu Sigurvinsdóttur á Völlum. Þá
kvað Jóhannes Þórðarson frá Miðhúsum,
tengdafaðir Kristins:
Gestur Kristins Gerðum frá
gleypti stóra heyið,
vaskur síðan vatt sér á
Valla-stelpu greyið.
Orð lék á, að Stefán Jónsson fréttamaður
hefði komið of nærri móður Ragnars
Arnalds, en þeir tveir, Stefán og Ragnar
voru í framboði í Norðurlandskjördæmunum
árið 1971. Um höfund næstu vísu er ekki
getið – en Stefán sjálfur þó stundum
nefndur:
Til Akureyrar skrapp ég fyrir skömmu
og skaust á fundi eins og vera ber,
og blessunin, sem barnaði hana mömmu
er bráðum kominn inn á þing með mér.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
299MÆLT AF
MUNNI FRAMAlþjóðlegi mjólkurdagurinn:
Kúabændur slógu í gegn á
samfélagsmiðlum
Alþjóðlegi mjólkurdagurinn var haldinn
hátíðlegur í 21. skipti um víða veröld þann
1. júní síðastliðinn.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna (FAO) stóð að stofnun
dagsins og var tilgangur framtaksins að vekja
athygli á og viðurkenna mikilvægi mjólkur,
næringarlegan, félagslegan og efnahagslegan
ávinning mjólkur og mjólkurafurða í
heiminum, en mjólkurframleiðsla styður
við lífsafkomu eins milljarðs manna um
veröld alla.
Ákveðið þema er tekið fyrir hverju
sinni og í ár var dagurinn tileinkaður
þeim fjölmörgu verkefnum sem eru í
gangi í mjólkurframleiðslunni til að hraða
loftslagsaðgerðum og draga úr áhrifum
loftslagsbreytinga.
Í tilefni af deginum hvöttu Bændasamtökin
íslenska kúabændur til að leyfa landsmönnum
að skyggnast inn í dagleg störf þeirra með
því að vera virkir á samfélagsmiðlum ásamt
því að segja frá þeim aðgerðum sem bændur
hafa stigið í átt að loftslagsvænni landbúnaði.
Á Instagram-síðu Bændasamtakanna
(@baendasamtokin) var, og er enn, hægt að
skoða myndirnar og hlusta á myndskeiðin sem
þangað rötuðu í tilefni af deginum.
Uppátækið var afar vel heppnað, bændur
tóku þátt og landsmenn höfðu gaman af því
að fylgjast með kúabændum landsins. /GBE
Kvígan Svandís fæddist nýlega á Egilsstaðabúinu. Hún er nefnd eftir matvælaráðherra. Svandís
varð fyrst til þess að fá DNA sýnatökumerki en Herdís Magna Gunnarsdóttir, kúabóndi og eigandi
Svandísar, sýndi áhorfendum hvernig farið er að við slíka merkingu. Mynd / HMG
Spes frá Daufá var forvitin. Mynd / GBE
Milli mjalta og messu í Hátúni, Skagafirði.
Mynd / Helga Sjöfn Helgadóttir
Úti í sólarlaginu í Skagafirði.
Mynd / Helga Sjöfn Helgadóttir
Birnir Sigbjörnsson á Egilsstöðum heilsar upp
á vinkonu sína. Mynd / Herdís Magna
Mjallhvít frá Ytri-Hofdölum lætur sig dreyma
um sól og sumar. Myndin er tekin í vetur.
Mynd / Þórdís Halldórsdóttir
Nýtt lausagöngufjós með mjaltaþjóni var tekið í notkun árið 2019 á Daufá. Með bættum aðbúnaði
eykst framleiðsla og vellíðan kúnna. Mynd / Guðrún Björg Egilsdóttir