Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 42

Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Alvöru beikon er saltað og reykt svínakjöt. Vinnsluaðferðir beikons í dag eru mismunandi og er kjötið þurr- eða sprautusaltað eða lagt í saltpækil sem inniheldur nítrít og stundum er sykur eða síróp bætt í pækilinn. Eftir það er kjötið vanalega reykt en einnig er þekkt að það sé vindþurrkað í nokkrar vikur eða mánuði eða soðið. Þrátt fyrir að beikon sé unnið úr mismunandi hlutum svína er það algengast úr slögum, síðubitum eða hryggjum og þá kallað eðalbeikon. Algengast er að beikon í boði í verslunum hér á landi sé unnið úr slögum. Beikon úr s l ö g u m inniheldur yfirleitt yfir 50% fitu eins og sjá má í sk ip t ingu beikonsneið- anna í kjöt- og fitu- rendur og kallast amerískt beikon víða um heim. Beikon úr síðum og hrygg er kjötmeira og kallast víða kanadískt beikon. Svín, mörg þúsund ára ræktunarsaga Fornleifarannsóknir benda til að villtum svínum hafi verið smalað saman og nýtt til matar í Tígrisdalnum í austanverðu Tyrklandi og í Sýrlandi um 13.000 árum fyrir upphaf okkar tímatals. Leifar um nytjar á svínum á Kýpur eru taldar vera frá 11.400 fyrir Krist. Minjar svínanytjar frá svipuðum tíma hafa fundist á Indlandi. Í Kína hafa fundist mörg þúsund ára gömul haughús með svínaskít sem bendir til þess að hann hafi verið notaður sem áburður. Rannsóknir benda til að svínahald hafi hafist sjálfstætt um svipað leyti í Kína og Evrópu fyrir fimm til sjö þúsund árum. Uppruni beikons Einfaldasta svarið við því hver sé uppruni beikons er að segja að það komi af svínum. Elstu heimildir um kjöt sem líkist beikoni eins og við þekkjum það í dag eru frá Kína og frá því um 1500 fyrir Krist og greina frá því að svínaslög séu söltuð til að auka geymsluþol þeirra. Geymsluaðferðin barst út og vitað er að Grikkir og Rómverjar söltuðu svínaslög og neyttu þeirra skorin í sneiðar og steikt á pönnu. Í landvinningayfirferð sinni kynntu Rómverjar saltað svínakjöt og beikon fyrir þeim þjóðum sem þeir lögðu undir sig, þrátt fyrir að vinsældir þess hafi aldrei náð flugi í Gyðingalandi, enda beikon óhreinn matur samkvæmt Fimmtu Mósebók, 14:8-10, Gamla testamentisins. „Þú skalt ekki eta neitt viðbjóðslegt. Þetta eru dýrin sem þið megið eta: naut, sauðfé, geitur, hirtir, skógargeitur, dádýr, steingeitur, fjallageitur, antilópur og gemsur. Þið megið eta öll dýr sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra. En þessi dýr, sem jórtra og hafa alklofnar klaufir, megið þið ekki eta: úlfalda, héra og stökkhéra því að þau jórtra að vísu en hafa ekki klaufir. Þau skulu vera ykkur óhrein, einnig villisvínið því að það hefur klaufir en jórtrar ekki. Það skal vera ykkur óhreint. Þið megið hvorki leggja ykkur kjöt þessara dýra til munns né snerta hræ þeirra.“ Samkvæmt íslam eru svín óhreinar skepnur og því ekki rétt breytni að neyta svínakjöts eða beikons og sumir múslimar telja að ekki megi snerta svínakjöt. Kaþólski ábótinn Antóníus er dýrlingur svína og slátrara og verndardýrlingur beikons. Engilsaxar á Bretlandseyjum og aðrir Evrópubúar ólu svín við heimili sín og var svínafita mest notaða fitan til matargerðar á miðöldum og allt fram að heimsstyrjöldinni fyrri og finnast enn leifar af þeirra hefð í breskri matargerð í dag. Frá 1660 hafa bændur á Bretlandi ræktað svín sem aðallega voru ætluð í beikonafurðir. Gyltur gutu yfir að vori og voru grís oft alin yfir sumarið á eikarakörnum og slátrað að hausti. Sagt er að hvert heimili hafi haft sína eigin aðferð til að reykja og og nudda kjötið með salti og sitt sérstaka beikonbragð sem tengdist vinnsluaðferð og því fóðri sem svínin voru alin á. Heimaslátrun og vinnsla á kjöti er því langt frá því að vera eitthvert nýtt fyrirbæri. Á ensku er til orðatiltæki sem segir „bring home the bacon“ og vísar til þess að draga björg í bú. Uppruni orðatiltækisins mun verða sá að á tólftu öld lofuðu kirkjuyfirvöld í Dunmow-sókn á Bretlandseyjum því fjórða hvert ár að hver sá eiginmaður sem gæti svarið við altarið, í viðurvist sóknarmeðlima, að hann hefði ekki rifist við eiginkonu sína í heilt ár og einn dag væri fyrirmyndar borgari sem sýndi ómælda sjálfstjórn og fengi í verðlaun heila svínasíðu. Vinsældir beikons eru alþjóð- legar, ekki síst vegna þess að svín eru nánast sjálfala í eldi og saltað og reykt svínakjöt geymist vel og var einn helsti sjókostur í siglingum fyrri alda. Útbreiðsla svína Lifandi svín voru hluti af áhöfn allra skipa á tíma landafundanna á 15. til 17. aldar og var þeim sleppt í land víðast þar sem akkeri var kastað og þannig breiddust þau hratt út um heiminn. Ísabella drottning af Portúgal sendi átta svín með Kristófer Kólumbusi, í einni af seinni ferðum hans vestur yfir Atlantshafsála, til Kúbu. Spánverjinn Hernando de Sota flutti aftur á móti með sér þrettán svín til Norður-Ameríku árið 1539 og þremur árum síðar taldi svínahjörð hans 700 dýr. Breski landkönnuðurinn Sir Walter Ragleigh átti einnig þátt í því að svín námu land í Norður-Ameríku þar sem hann flutti með sér nokkrar gyltur og gölt til landnemabyggðarinnar í Jamestownn árið 1607. Innfæddir og aðfluttir í Norður- og Suður-Ameríku tóku svínakjöti opnum örmum. Alisvín sem sluppu ráfuðu um villt og ekki var óalgengt að rekast á afkomendur þeirra sem ráfuðu villt í New York langt fram á nítjándu öld. Beikon er í dag vinsælasti morgunmaturinn í Bandaríkjum Norður-Ameríku og víðar um heim. Bresk i slátr arinn og beikonáhuga- maðurinn John Harris, í Caine í Wiltskíri, skammt frá borginni Swindon, var fyrstur manna til að hantera svínasíður sérstaklega með því að skera þær í sneiðar og selja sem beikon árið 1770. Léttsaltað beikon sem söluvara varð fljótlega svo vinsælt að Harris keypti lifandi svín víða að og flutti þau meðal annars frá Írlandi til að anna eftirspurn. Beikon úr síðum frá Harris kölluðust lengi Wiltskíris-slög. Um miðja átjándu öld var fjöldi sláturhúsa í Norður-Ameríku sem sérhæfðu sig í vinnslu á svínakjöti og beikoni og borgin Cincinnati í Ohio-ríki kölluð Porkopolis. Það var svo ekki fyrr en árið 1920 að fyrirtækið Oscar Meyer fór að framleiða beikon í sneiðum. Fyrirtækið, sem er starfandi enn í dag, var lengi með einkarétt á að framleiða niðurskorið beikon og selja í neytendaumbúðum. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is SAGA MATAR&DRYKKJA Einfaldasta svarið við því hver sé uppruni beikons er að segja að það komi af svínum. Kjóll með líflegu beikonmynstri gerir alltaf lukku á djamminu. Eðalbeikon unnið að hrygg. Reykt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.