Bændablaðið - 09.06.2022, Page 44

Bændablaðið - 09.06.2022, Page 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta Lokaverkefni í búfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands: Hagnýtur upplýsingavefur fyrir viðskipti með líflömb Sara María Ásgeirsdóttir, nemi á öðru ári í búfræði við Land- búnaðarháskóla Íslands, vann lokaverkefni sem fólst í því að búa til vef með yfirliti yfir þau sauðfjárbú sem hafa leyfi til að selja líflömb. Þar koma einnig fram ýmsar upplýsingar fyrir hvert og eitt; til dæmis sláturupplýsingar síðasta árs, gerð, fita og fallþungi – og útlitseinkenni fjárins. Vantar fleiri bú Sara segist vonast eftir að fleiri bú komi inn í verkefnið, en könnun sem hún gerði áður en hún hóf vinnu við það gaf til kynna að bændur væru áhugasamir. „Áður en ég byrjaði að vinna í þessu setti ég inn könnun inn á Facebook-hóp fyrir sauðfjárbændur til að athuga áhugann fyrir svona vef. Viðbrögðin voru þó nokkur og svöruðu þar um 30 sölubændur sem sögðust hafa áhuga á að taka þátt og rúmlega 170 kaupendur. Þrátt fyrir þennan áhuga hafa einungis 11 bændur sent mér upplýsingar og vilja taka þátt, þannig að eftir eru 126 söluaðilar sem ekki hafa haft samband.“ Tímafrekt að afla sér upplýsinga Alls hafa 137 bú í fjórum sauðfjárveikihólfum leyfi til sölu á líflömbum í dag, samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun. Að sögn Söru segir það sig sjálft að fyrir þá sem þekkja lítið til slíkra viðskipta, tekur talsverðan tíma að afla sér upplýsinga um búin með því að hafa samband við hvert og eitt – og það sé einmitt kveikjan að verkefninu. Slík var einmitt raunin með hana og mann hennar, Gest Má Þorsteinsson, þegar þau tóku við sauðfjárbúi foreldra hennar á Hóli í Lýtingsstaðahreppi árið 2018. Nýtt blóð í stofninn „Okkur langaði til að koma með nýtt blóð inn í stofninn og kynbæta eftir okkar sérvisku. Þá komst ég að því að einu upplýsingarnar sem hægt var að nálgast um sölubúin voru einungis nöfn bændanna og heimilisfang og svo ýmist símanúmer eða netfang til að hafa samband. Þá kviknaði sú hugmynd hjá mér að hafa þetta allt aðgengilegt á einni heimasíðu þar sem væri hægt að kynna sér búin og hafa svo samband við bændurna í framhaldi ef áhugi er fyrir að kaupa,“ segir Sara. Verkefnið hafi aðallega falist í því að hafa samband við alla bændurna sem eru með söluleyfi og bjóða þeim þátttöku. „Sendur var tölvupóstur á alla á listanum, sett innlegg inn á Facebook-hópa fyrir sauðfjárbændur og einnig fóru nokkrar kvöldstundir í að hringja í bændur af listanum. Það sem bændurnir þurftu að gera til að taka þátt var að senda mér þær upplýsingar í tölvupósti sem þeir vildu hafa á síðunni um sín bú og ég sá svo um að færa þær inn á heimasíðuna.“ Sláturupplýsingar og lífdómar Hjá hverju búi eru, sem fyrr segir, ýmsar hagnýtar upplýsingar við val á líflömbum, eins og sláturupplýsingar síðasta árs, gerð, fita og fallþungi. „Einnig er talsvert um að meðaltal lífdóma síðasta árs sé tilgreint, hvort stofninn sé hyrntur eða kollóttur, litafjölbreytileiki og svo eru nokkrir sem létu vel valdar myndir fylgja með sem gerir þetta enn þá skemmtilegra,“ segir Sara, sem sá sjálf um að hanna og setja vefinn upp. Vefurinn aðgengilegur öllum Vefurinn er í rauninni klár og er aðgengilegur öllum á liflomb.123. is. En ekkert mál er að bæta við búum og þurfa bændur þá einungis að setja sig í samband við mig og óska eftir því. Bæjunum sem hafa fallist á þátttöku er skipt niður á varnarhólfin sem þau eru í. „Þegar upplýsingarnar eru orðnar svona aðgengilegar og allar á sama stað, ímynda ég mér að kaupendur eigi auðveldara með að taka ákvörðun um hvar þeir vilji versla sér líflömb eftir því hvað þeir vilja kynbæta og leggja áherslur á í sínum stofni, til dæmis gerð, frjósemi, liti, hornafar og svo framvegis.“ /smh Bændur eru hvattir til þess að skrá veltu samkvæmt framtali síðasta árs hið fyrsta inni á Bændatorginu. Veltuskráning þessi er forsenda fyrir félagsaðild í samtökin skv. samþykktum á síðasta Búnaðarþingi. Bændasamtök Íslands starfa í þágu landbúnaðarins í heild ! Fulltrúar BÍ svara fyrirspurnum í síma 563-0300 á skrifstofutíma. Hægt er að senda skilaboð í gegnum Bændatorgið og á gudrunbirna@bondi.is. Það borgar sig að vera í Bændasamtökunum Snúum bökum saman og stöndum vörð um íslenskan landbúnað → → Sara María Ásgeirsdóttir. Mynd / Aðsend Hólf 3, 5, 14 og 19 eru þau hólf sem geta sótt um líflambasöluleyfi hjá MAST. Fyrir framan verslun SS á Hvolsvelli á vegum búvörudeildar SS má nú sjá 36 tilraunareiti sem sýna áhrif mismunandi áburðarskammta á korn og hafra. „Til að athuga hvort sýrustigið sé ákjósanlegt, þá var tekið jarðvegssýni úr reitunum í vor. Mikilvægt er að sýrustigið sé á bilinu pH 6-6,5 svo að upptaka næringarefna verði sem best. Æskilegt sýrustig fyrir bygg er á bilinu pH 6,0-6,5 og fyrir hafra pH 5,8-6,3,“ segir í tilkynningu frá Sláturfélagi Suðurlands. Sáð var byggi í 30 reiti en notuð voru tveggja raða yrkin Kría, Anneli og Filippa og sex raða yrkin Smyrill og Aukusti. Einnig var sáð í sex reiti af höfrum með yrkinu Niklas. „Allir reitirnir fengu 70 kg/ha af köfnunarefni en mismunandi magn af fosfór og kalí. Allur áburður sem var notaður er frá Yara,“ segir jafnframt í tilkynningunni en reitirnir eru vel merktir fyrir gesti og gangandi á svæðinu. /ghp Sýningarreitir á Hvolsvelli MENNTUN&RANNSÓKNIR Varahlu�r i VOLVO Vinnutæki

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.