Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Streymi heildverslun ehf.
Goðanesi 4
603 Akureyri
S
N
V
588 2544
streymi@streymi.is
www.streymi.is
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Landbúnaðartæki, björgunartæki og búnaður.
Svansson ehf
Sími : 697-4900 ● sala@svansson.is ● www.svansson.is
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Nú er vorið liðið og næsta árstíð
tekin við. Fræ komið í jörð þar
sem það á að fara og biðinni eftir
fyrstu blöðunum víða lokið.
Áhyggjur af því hvernig veðrið
muni leika þetta græna ekki liðnar
hjá, og gera það sennilega aldrei,
taka sér kannski hvíld annað slagið
en koma svo fílefldar til baka. En
það er með þetta sem maður getur
ekki breytt, veðrið og allt það. En
svo er það hitt sem maður getur
breytt og það er ansi margt.
Jarðrækt er margslungin, enda
spila þar saman fjöldamargir þættir
og það þarf að huga að lifandi og
dauðum hlutum, sýnilegum sem
ósýnilegum og svo þessu sem maður
ekki stjórnar. Allt þarf svo að setja
í samhengi við tímann, hvað var og
hvað verður.
Mikilvægi jarðvegs og með
höndlunar hans er stór þáttur í
allri jarðrækt. Kannski er okkur
tamara að hugsa um það sem
við handleikum og sjáum svo
sem fræ, áburð og uppskeruna
en ekki má vanmeta mikilvægi
jarðvegsins. Það er efniviðurinn
sem stjórnar aðgengi næringarefna,
miðlun vatns, rótarfestu og vexti
plantna svo eitthvað sé nefnt. Því
er mjög mikilvægt að gleyma
ekki, eða vanmeta, það lífríki
sem er neðan svarðar. Vitum við
sýrustig (pH) jarðvegsins, gætum
við að jarðvegsþjöppun, hvernig
er framræsla, pössum við upp á
næringarefni og lífræn efni sem eru í
jarðvegi, stundum við sáðskipti? Allt
skiptir þetta miklu máli þegar kemur
að því að viðhalda frjósemi jarðvegs
sem er lykilatriði í allri ræktun.
Jarðvegurinn sem höfuðþáttur
Jarðvegurinn er jafn mikilvægur,
og lifandi, eins og skepnurnar sem
við venjulega flokkum búgreinarnar
eftir. Þannig þurfum við að horfa á
hann og huga að allri meðhöndlun
hans með sambærilegum hætti og
við höfum tamið okkur varðandi
aðrar búgreinar í landbúnaði. Það
er jafn mikilvægt að næra og hlúa
að jarðvegi eins og skepnunum
sjálfum og til að geta gert það þarf
að vita um ástandið og gera áætlanir
hvernig á að breyta og bæta, þegar
og ef þess þarf með. Hvað er
sýrustigið, hvað er æskilegt að það
sé og hvað þarf að gera til að laga
það? Er sjáanleg jarðvegþjöppun,
hvað er hægt að gera í því og hvernig
má fyrirbyggja hana eða minnka?
Er framræslu ábótavant, hverjar geta
verið afleiðingar af því og hvernig
má bæta hana? Eru næringarefni og/
eða lífrænt efni að tapast, hvernig
komum við í veg fyrir hugsanlegt
tap? Er þörf á að hvíla land, hver er
ávinningur af sáðskiptum?
En það er sama hvort verið er að
vinna land, sá í það, bera á lífrænan
eða tilbúinn áburð eða hvað annað
sem gert er við ræktun landsins, við
þurfum að muna að það er besta
mjólkurkýrin okkar.
Vitum, greinum, gerum
En hvar á að byrja? Jú, við þurfum
alltaf að byrja á því að vita hver
staðan er, svo tökum við meðvitaðar
ákvarðanir um framhaldið í þá átt
sem við viljum fara. Það eru ekki
allir á sömu leið og því er ekkert eitt
svar rétt fyrir alla. Ræktunarsagan
er dýrmæt og með vönduðum
skráningum höldum við utan um
hana, ekki má vanmeta þann þátt.
Sprotinn er almenn jarð
ræktarráðgjöf í boði hjá RML. Hægt
er að aðlaga ráðgjöfina að þörfum
hvers og eins og áhersluatriði geta
verið breytileg. Nánari upplýsingar
má finna á heimsíðu RML eða hjá
undirritaðri.
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Að sveifla haka
Þórey Gylfadóttir
jarðræktarráðunautur RML
thorey@rml.is