Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 4
4 FAXI
Leikfélag Keflavíkur var stofnað 19. sept-
ember 1961 og fagnaði því 60 ára afmæli
nýverið. Ein af þeim sem hafði frumkvæði
að stofnuninni er Erna Sigurbergsdóttir,
Erna skó, sem Svanhildur Eiríksdóttir
settist niður með fyrir skömmu til þess að
ræða aðdraganda stofnunarinnar og fyrstu
starfsárin. Leikfélagið hét reyndar Stakkur í
upphafi eftir klettinum niður af Stakksnípu,
berginu sem liggur að Helguvík að utan og
norðan, en ávallt er miðað við þessa dag-
setningu í sögu Leikfélags Keflavíkur.
Það urðu fleiri tímamót á árinu tengd sögu
leikfélagsins sem einnig verða gerð skil hér.
Hundraðasta sýning LK var í haust, Fyrsti
kossinn, sem saminn er í minningu Rúnars
heitins Júlíussonar af barnabarni hans,
Brynju Ýr Júlíusdóttur og unnusta hennar
Guðlaugi Ómari Guðmundssyni. Þá fagnaði
mamma Brynju Ýrar, Guðný Kristjánsdóttir
40 ára leikafmæli en Guðný hefur verið
aðsópsmikil í starfi félagsins, gegnt m.a. for-
mennsku og verið mikil driffjöður í starfinu
öll 40 árin.
Ólympíuhlauparinn fyrsta verk Stakks
Íþrótta- og ungmennafélag Keflavíkur
hafði haldið uppi leiklistarstarfi fyrir daga
Stakks en starfsemin hafði verið að daprast
á 6. áratugnum. Farvegur var því til staðar
og grunnur til að byggja á, auk þess sem í
Njarðvíkunum voru leikþyrstir íbúar tilbún-
ir í samstarf. Starfið var blómlegt í nokkur
ár en svo fór að Keflavíkingar breyttu
nafninu í Leikfélag Keflavíkur og Njarðvík-
ingar stofnuðu Njarðvíkurleikhúsið eftir að
Stapinn var vígður árið 1965.
Faxi fjallaði um stofnunina í blaðinu 1.
nóvember 1961 og greindi frá skipan fyrstu
stjórnar: Ingvi Þorgeirsson formaður, Erna
Sigurbergsdóttir varaformaður, Ragnheið-
ur Skúladóttir ritari, Sverrir Jóhannsson
gjaldkeri, Soffía Karlsdóttir og Þórunn
Sveinsdóttir meðstjórnendur. Eftir stíf
fundarhöld var ákveðið að fyrsta leikrit
hins nýstofnaða félags yrði skopleikurinn
Ólympíuhlauparinn eftir Denek Benfiels í
þýðingu Maríu Thorsteinsson og leikstjórn
Eyvindar Erlendssonar.
Sýningarnar nutu vinsælda
Eins og fram kemur í grein Faxa var leik-
félagið Stakkur m.a. stofnað fyrir áeggjan
Ernu Sigurbergsdóttur, sem bjó að mikilli
leikreynslu frá barnæsku. „Ég var búin að
vera að leika frá því ég var 12 ára, m.a. hjá
Haraldi Á. Sigurðssyni sem setti upp ýmis
leikrit í Ungó. Svo var ég líka að leika í leik-
ritum sem Gunnar Eyjólfsson setti upp, fékk
meira að segja aðalhlutverk,“ rifjar Erna
upp í samtali við Svanhildi.
Leiklistarstarf lá svo niðri í nokkur ár
og Erna sagði þau sem höfðu tekið þátt í
sýningum oft hafa rætt það hvað hefði verið
gaman. Hún lét ekki sitja við orðin tóm
heldur ákvað að bæta við þekkingu sína í
leiklist. „Já, ég skellti mér í leiklistarskólann
til Ævars Kvaran, þá orðin tveggja barna
Blaðstjórn Faxa 1979: Jón Tómasson, Ragnar Guðleifsson og Helgi Hólm
Leikfélag Keflavíkur 60 ára
- Máttarstólpi menningarlífs á Suðurnesjum
Erna Sigurbergsdóttir heima
á Kirkjuveginum í Keflavík.
Ljósm. Svanhildur Eiríks
Margrét Friðriksdóttir, Hanna María Karlsdóttir og Erna Sigurbergsdóttir í hlutverkum með leikfélaginu Stakki. Ljósmynd í eigu Ernu
Sigurbergsdóttur