Faxi - 01.12.2021, Side 13
FAXI 13
Kaupfélag Suðurnesja (KSK) hefur
ekki einungis verið einn af mátt-
arstólpum í atvinnulífinu á Suðurnesjum
heldur einnig stærstir í verslun á dag-
vörumarkaði á svæðinu. Samkaup sem er
að 51% hluta í eigu KSK rekur 65 versl-
anir um allt land undir merkjum Nettó,
Kjörbúðar, Krambúðar og Iceland. Alls
rekur Samkaup sjö verslanir á Suðurnesj-
um í þremur af fjórum sveitarfélögum,
fjórar í Reykjanesbæ, tvær í Suðurnesja-
bæ og eina í Grindavík. Starfsmenn eru
um 1.400 talsins og félagsmenn KSK voru
7.600 í upphafi árs 2021.
Kaupfélag Suðurnesja átti 75 ára afmæli í
fyrra, árið sem þjóðin lá í heimsfaraldurs-
dvala að mestu en afmælinu og sögunni
voru gerð skil á sýningu Byggðasafns
Reykjanesbæjar í Gryfjunni Duus Safna-
húsum og á Keflavíkurtúni í sumar og
haust. Sýningarstjóri var Helgi Biering sem
gaf Faxa góðfúslegt leyfi til að nýta efni úr
sýningunni sem lauk 1. desember sl.
Svanhildur Eiríksdóttir ræddi einnig við
Skúla Skúlason formann stjórnar KSK í
tilefni þessara tímamóta.
Fyrsta byggða sölubúðin úr timbri
sem kom úr skíðaskála
Tilurð Kaupfélags Suðurnesja má
rekja til upphafs Samvinnuverslunar á
Suðurnesjum. Árið 1880 var Pöntunarfé-
lag Suðurnesja stofnað en líftími þess var
stuttur. Pöntunarfélag var því ekki starfrækt
í nokkra áratugi eða þar til Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur stofnaði Pöntun-
arfélag VSFK árið 1935. Tveimur árum
seinna gekk félagið, ásamt pöntunarfélagi
í Sandgerði, inn í nýstofnað Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis (KRON) og
KRON opnaði sölubúð að Aðalgötu 10 í
Keflavík. Árið 1942 var sölubúðin flutt að
Hafnargötu 30 sem KRON lét byggja úr
timbri sem kom úr skíðaskála sem stað-
ið hafði í Hveradölum en félagið keypti.
Þremur árum seinna sleit Keflavíkurdeild
sig frá KRON og stofnaði Kaupfélag
Suðurnesja þann 13. ágúst.
Hér verður frekari vörðum úr sögu
KSK gerð skil í tímalínu, enda of
langt mál að rekja sögu kaupfélagsins í
stuttu máli.
1945 – Kaupfélag Suðurnesja stofnað. Í
fyrstu stjórn voru Guðni Magnús-
son, Ragnar Guðleifsson, Guðni
Guðleifsson, Hallgrímur Th.
Björnsson og Björn Hallgrímsson.
Björn Pétursson var fyrsti kaupfé-
lagsstjóri KSK.
1947 – KSK hóf verslunarrekstur í Grinda-
vík. Þar var einnig starfrækt slátur-
hús í áraraðir.
1949 – Gunnar Sveinsson tekur við stöðu
kaupfélagsstjóra og gegndi starfinu
til 1988 eða í rétt tæp 40 ár.
1950 – Verslunarhúsnæði að Hafnargötu
61 (Vatnsnestorg) var tekið á leigu
og þar opnuð verslun með nýlendu-
vörur og mjólkurvörur. Þar var
einnig brauðbúð.
1952 – KSK opnar bakarí að Tjarnargötu
25 og rak það um 10 ára skeið. Bak-
arameistari var Albert Þorkelsson.
1954 – Verslunarhúsnæði keypt í stórhýsinu
(stóru blokkinni) að Faxabraut 27.
1955 – Þátttaka kaupfélagsins í atvinnu-
uppbyggingu á svæðinu hefst með
kaupum á hraðfrystihúsinu Stóru-
-milljón (Hraðfrystihúsi Keflavíkur).
Rekstrinum lauk 1990.
1956 – Fyrsta kjörbúðin á Suðurnesjum
opnuð að Hringbraut 55 Keflavík.
Kaupfélag
Suðurnesja í 75 ár
Vörður í sögu KSK
Fyrsta kaupfélagsbúðin (KRON) á
Suðurnesjum var opnuð að Aðalgötu 10
Keflavík. Ljósm. Byggðasafn Reykjanes-
bæjar
Frá fyrstu árum Gunnars Sveinssonar
í starfi Kaupfélagsstjóra. Hér er hann
ásamt fyrstu stjórn félagsins. Ljósmynd
Byggðasafn Reykjanesbæjar
KSK tók á leigu verslunarhúsnæði að
Hafnargötu 61 (Vatnsnestorg) og rak þar
verslun með nýlenduvörur og mjólkurvör-
ur, ásamt brauðbúð. Ljósm. Byggðasafn
Reykjanesbæjar