Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 15

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 15
FAXI 15 Samtalið við Skúla Skúlason formann stjórnar KSK hefst á því að ræða hápunktana í sögu kaupfélagsins en Skúli hefur starfað fyrir félagið frá árinu 1985 og þekkir því söguna vel. Við stöldrum fyrst við stofnun félagsins en að henni komu frumkvöðlar sem störfuðu ríku- lega við uppbyggingu samfélagsins, voru í bæjarstjórn, störfuðu í leikfélaginu og málfundafélaginu Faxa, svo dæmi sé tekið. „Mér finnst einn af hápunktum félagsins vera þegar ráðist var í kaup Hraðfrystihúss Keflavíkur og farið í útgerð. Það var stór áfangi og félagið gerði út nokkra smærri báta og síðan togarana Aðalvík og Bergvík. Svo vil ég nefna tímann eftir 1998 þegar Samkaup hf. var stofnað. Þá var hvert skrefið á fætur öðru tekið í stækkun og eflingu félagsins. Það var leitað til okkar um að taka við rekstri verslana víða um land, má þar nefna á Ísafirði, í Hafnarfirði, á Höfn í Hornafirði og á Austfjörðum. Á öllum þessum stöðum fylgdu kjarabætur fyrir neytendur í kjölfarið. Einnig bættist verslunarrekstur KEA við hjá okkur ásamt kaupmannsverslunum hér og þar.“ segir Skúli í samtali við Svanhildi. Tryggð haldið við upprunann Á síðastliðnum áratug hefur starfsemi KSK farið í gegnum mikið umbreytingarskeið sem hófst með verslunarrekstri Sam- kaupa um allt land. Áður hafði reksturinn verið staðbundinn á Suðurnesjum. Skúli leggur áherslu á að þó starfsemin sé ekki staðbundin lengur sé haldin tryggð við upprunann með því að stýra félaginu héðan en aðalskrifstofa kaupfélagsins er við Krossmóa í Reykjanesbæ. „Það hefur einnig verið mikil umbreyting í stafrænni þróun og innleiðingu stafrænna lausna. Þar hefur ekki síður skipt sköpum mikil þróun í mannauðsmálun en til liðs við kaupfé- lagið á undanförnum árum hefur komið mikið af ungu, vel menntuðu fólki. Fyrir vikið er orðið eftirsóknarvert að starfa hjá kaupfélaginu.“ Við leiðumst í umræður um erfiðar að- stæður starfsfólks í kórónuveirufaraldri og hversu hratt Samkaup brást við innleiðingu vefverslunar. „Við vorum farin af stað með vefverslun sem lið í stefnumótun félagsins, að vera forystuafl í stafrænni þróun og þróun verslunarhátta á Íslandi. Það gerði okkur auðveldar fyrir að bregðast hratt við þegar faraldurinn brast á, öll umgjörðin var til. En við fórum gætilega af stað, byrjuðum í einni verslun, Nettó í Mjódd, og tínt var úr hillum. Neytendur gátu svo ýmist sótt vörurnar í verslunina eða fengið sent heim. En svo smátt og smátt, eftir því sem verslun jókst á netinu þá sprengdi það utan af sér og ekki var hægt að leggja meira á þá verslun. Þá var farið í næstu verslun og svo koll af kolli. Við byrjuðum því á því að nýta innviðina vel áður en farið var að nota sérstakt vöruhús undir vefverslunina. Nágrannar okkar í Skandinavíu og ráðgjaf- ar höfðu sagt við okkur að það tæki nokkra mánuði að undirbúa þetta en það var gert á tveimur vikum. Hér skipti sköpum samstaðan sem ætíð hefur ríkt í félaginu, starfsfólk allsstaðar af landinu kom og hjálpaði til.“ Vefverslunin fór lóðbeint upp en hefur á undanförnum mánuðum leitað Stofnun KSK á sínum tíma var mikið happaskref fyrir Suðurnes Skúli Skúlason formaður stjórnar KSK segir stafræna vegferð kaupfélagsins vera að hefjast. Vefverslun og smáforrit er liður í þeirri vegferð. Ljósm. Svanhildur Eiríks

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.