Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 29

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 29
FAXI 29 Elín Stefánsdóttir hefur sérhæft sig í helgi- klæðum og öðrum listmunum fyrir kirkjur í áratugi. List hennar prýðir nokkrar íslenskar kirkjur og um 115 danskar. Helgiklæðin eru ofin í damasktækni af eiginmanni Elínar, Gert Madsen, úr 16 kílómetrum af örfínum ullarþræði og um 15 kílómetrum af silkiþráð- um. Ullin kemur frá Finnlandi, gullþræðir frá Bretlandi en fóðrið er sérlitað silkifóður. Ásamt helgiklæðunum gerði Elín einnig fyrir Keflavíkurkirkju sakramentisdúka úr silki og prédikunarstólsklæði í sömu litum og helgiklæðin. Eftir að djákni tók til starfa í Keflavíkurkirkju nýverið, Heiða Björg Gúst- afsdóttir, pantaði sóknarnefndin djáknastólur hjá Elínu í sömu litum og klæðin. Litirnir og táknin í helgiklæðunum Elín gerði listaverk af helgiklæðunum og rammaði inn ásamt skýringartexta. Þau voru keypt ásamt klæðunum og komu í kirkjuna fyrr á þessu ári. Listaverk þess litar sem er ríkjandi hverju sinni yfir kirkjuárið er hengt upp í forkirkjunni. Nú hangir þar verk fjólubláu klæðanna, kirkjugestum til yndis og fróðleiks. Hin þrjú verkin prýða veggi fundarherbergis í Kirkjulundi. Fjólublái liturinn táknar iðrun og yfirbót. Þyrnikórónan er hér tákn um þjáningu Jesú Krists. Á kirkjuári er fjólublái liturinn notaður á föstutímanum og á aðventu, undirbúningi jólanna. Hvíti liturinn táknar hreinleika, gleði og fullkomleika. Hér að framan er Lúthersrós. Hjartað í rósinni vísar á að trúin gefur frið og huggun. Á kirkjuári er hvíti liturinn notaður við gleðilegar hátíðir, t.d. jól og páska. Rauði liturinn táknar eldmóð, anda og kær- leika. Kærleikur Guðs, litur Guðs. Táknið hér er dúfa á leið niður sem er tákn heilags anda. Á kirkjuári er rauði liturinn mest notaður um hvítasunnu og á merkisdögum píslavotta. Græni liturinn er litur vonar, lífs og vors. Hér er lárviðargrein sem tákn um vöxt og ódauð- leika. Einnig er hún tákn um skírnina, hið nýja líf í Kristi. Á kirkjuári notast græni liturinn aðallega sunnudaga eftir þrenningarhátíð. Um Elínu Stefánsdóttur Á vef Elínar Stefánsdóttur (elinstefansdottir. dk/) má lesa að hún hefur lengst af búið í Danmörku, þar sem hún starfrækir vinnu- stofu og gallerí ásamt eiginmanni sínu í Mols, þar sem þau njóta mikillar náttúrufegurðar. Hún segir stórkostlega náttúru Íslands, litdýrð og andstæður í landslaginu, ekki síður hafa verið mikinn innblástur fyrir sig í listsköp- uninni. Ásamt vefnaði málar Elín og vinnur glerlistaverk, m.a. steind gler í kirkjur. Sjá má sýnishorn af verkum Elínar á vefnum, ásamt nánari upplýsingum um listakonuna. Hér heldur Ívar á stólunni sem hann og bræður hans færðu Keflavíkurkirkju að gjöf til minningar um móður þeirra. Gjöfin varð kveikja að frekari vinnu með Elínu listakonu. Litur grænu helgiklæðanna var í kirkjuárinu þegar viðtalið fór fram. Hér má sjá Sr. Fritz í prédikunarstólnum sem prýddur er prédikunar- stólsklæði í sama lit. Hér er Ragnheiður Ásta með sakramentisdúk- ana fjóra sem Elín gerði í sama lit og helgi- klæðin. Sakramentisdúkarnir eru silkiofnir og notaðir við altarisgöngur. Ívar og sr. Erla með hjónunum Gert og Elínu þegar þau afhentu grænu og rauðu helgiklæðin í júní sl. Ljósm. Keflavíkurkirkja

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.