Faxi

Volume

Faxi - 01.12.2021, Page 16

Faxi - 01.12.2021, Page 16
16 FAXI jafnvægis. Skúli nefnir að vefverslunin sé komin til að vera og yngri kynslóðir séu fljótari að nýta sér stafrænni lausnir. Metnaðarfull menntastefna Skúli segir að eftir því hafi verið tekið hvernig Samkaup tók á málum starfsmanna sinna við þessar erfiðu aðstæður. „Við buðum starfsfólki velferðarpakka, þar sem m.a. var búið að safna saman tilboðum í gistirými, afþreyingu og aðgang að við- burðum og svo aukagreiðslur. Starfsfólk var undir miklu álagi og gat lítið komist í burtu þannig að við vildum búa til glaðning fyrir það. Það var mikil ánægja með þetta.“ Það hefur ekki síður verið ánægja með menntastefnu kaupfélagsins en félagið hefur haft forystu um menntun verslunarfólks. Í því skyni hefur verið komið á samstarfi við ýmsar menntastofnanir, m.a. Verslun- arskóla Íslands og Háskólann á Bifröst við að þróa frekar verslunarnám og tengja nám verslunarmannsins við önnur skólastig. „Þú strandar hvergi sem nemandi, heldur getur haldið áfram upp í háskólagráðu og meistaragráðu þótt þú byrjir að vinna í verslun. Það er búið að tryggja framvindu í námi.“ Skúli segir marga starfsmenn nýta sér þessi menntunarúrræði samhliða störf- um hjá Samkaupum. Ýmis tækifæri í framíðinni Að sögn Skúla hefur Kaupfélag Suðurnesja mjög skýra sýn á hlutverk sitt og fram- tíðarhorfur. „Við höfum tekið stefnuna í fimm ára þrepum og erum nú að vinna í áætlun tímabilsins 2020 – 2025. Fókusinn er alltaf á ákveðin grunnatriði og það er varfærni í fjármálum og að fjárhagslegur grunnur sé sterkur. Aðeins þannig getur kaupfélagið verið sterkur bakhjarl sinna dótturfélaga, sem eru KSK eignir ehf. og Samkaup hf.“ Áhersluþættirnir í stefnunni eru sýnileiki, virk samskipti og þátttaka félagsmanna. Skúli er spurður hvað felist í þessu? „Við áttuðum okkur á því að tímanir hafa breyst. Þegar kaupfélagið var stofnað, var talsverð neyð víða og mikilvægt að bæta kjör fólks, samfélagið var mjög ólíkt því sem það er í dag. Velmegun er orðin meiri á margan hátt, en hlutverk samvinnu er jafn mikilvægt og áður, en við þurfum að skerpa á samvinnunni. Hluti af því er að nútímavæða félagið, að höfða til yngra fólks í þeirri von að það sjái hag í því að taka þátt í samvinnustarfi. Það felst m.a. í því að vera sýnileg á samfélagsmiðlum. Samtalið er líka mjög mikilvægt og í þessari nútímaþróun tel ég lykilatriði að vera í nánara samtali við félagsmenn, leita álits þeirra og skoðana á áskorunum samtímans, umhverfismálum, sjálfbærni, nýsköpun o.s.frv.“ Er nýja Samkaups-smáforritið liður í þessari þróun og kannski afmælisgjöf til félagsmanna? „Já það er liðir í þeirri stafrænu vegferð og nútímavæðingu félagsins. Við óskuðum eftir því við Samkaup, sem er neytendahlið félagsins, að við uppfærðum félagskerfið og þjónustuna við félagmenn. Smáforritið kemur úr smiðja Co-op í Danmörku, sem við erum í miklu samstarfi við á ýmsum sviðum og forritið er margverðlaunað þar. Við höfum innleitt þrjá hluta af því sem búið að er að smíða inn í það, tilboðin, upp- söfnun inneigna og kvittanir koma beint í símann. Félagsmenn fá mánaðarlega send sértilboð í forrið og um jólin verða verulega djúp tilboð fyrir félagsmenn.“ Við ljúkum spjallinu á því að líta fram á veginn og Skúli er spurður um bæði tækifæri og áskoranir í rekstri kaupfélagsins á næstu árum. „Við munum áfram vinna að því að tryggja félagsmönnum aðgang að betri kjörum í daglegum viðskiptum. Þá viljum við þróa vettvang þar sem félags- mönnum gefst tækifæri til að hafa meiri áhrif á starfsemi og stefnumótun félags- ins. Við sjáum tækifæri í því að styðja við nýsköpun, sjálfbærni og lýðheilsu með þátt- töku félagsmanna, styðja við góð málefni á svæðinu og vera hreyfiafl framfara“ segir Skúli að lokum.

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.