Faxi - 01.12.2021, Page 8
8 FAXI
Kærustuparið Brynja Ýr Júlíusdóttir og
Guðlaugur Ómar Guðmundsson eru
höfundar 60 ára afmælissýningar LK, Fyrsti
kossinn, sem sýnd hefur verið í Frumleik-
húsinu við miklar vinsældir. Hún er
jafnframt 100. sýning LK og vegna vinsælda
verður sýningum haldið áfram eftir áramót.
Brynja Ýr er dóttir Guðnýjar og Júlla og það
verður ekki annað sagt en leiklistin sé henni
í blóð borin. Þau fetuðu að auki í sömu spor
og foreldrar hennar, kynntust hjá Leikfélagi
Keflavíkur.
Leikritið hverfist um hljómsveitina Grip,
sem skipuð er fjórum töffurum og söng-
konunni Hönnu, sem Brynja Ýr leikur, þó
hennar njóti ekki alltaf við á ferli sveitar-
innar. Söngvarinn Róbert, sem leikinn er af
Sigurði Smára Hanssyni verður ástfanginn
af Júlíu, sem leikin er af Töru Rós Svein-
björnsdóttur en Júlía er systir Adda,
trommuleikara sveitarinnar, leiknum af
Ingvari Elíassyni og honum líkar ekki alls
kostar vel samdráttur þeirra Róberts og Júl-
íu. Nöfnin, ásamt tíðum söng Júlíu ofan af
svölum, minnir óneitanlega á stef úr Rómeó
og Júlíu og Brynja og Guðlaugur staðfesta
það. „Að auki er Júlía vísun í Júlíusson og
R í Róbert vísun í Rúnar, en við vildum
alls ekki að söngvarinn héti Rúnar, því þá
myndu allir halda að þetta væri afi, sem er
alls ekki,“ leggur Brynja Ýr áherslu á. Hér sé
einungis stuðst við lög sem afi hennar kom
með einhverjum hætti að á sínum tónlist-
arferli og söguþráðurinn uppspuni.
Mikill stígandi er í sýningunni, tónlistin
verður hraðari og ólgan meiri. „Já, rokkaðri
lögin koma seinna í sýningunni því þá er
allt að verða brjálæðislegra og óreglan eykst
og ýmislegt fer úr böndunum.“
En hvaðan höfðuð þið þessa
innsýn inn í hljómsveitarlífið?
„Þetta er tilbúningur. Við vorum bara mjög
spennt fyrir því bæði að gera eitthvað öðru-
vísi, ekki vera með þetta fasta form sem er
alltaf. Þess vegna er mikið um óreglu og
óreiðu og það var bara eitthvað sem okkur
fannst spennandi að sýna,“ segir Brynja.
Guðlaugur bætir við að þar sem þau hafi
bæði verið í kringum tónlistarstúss, þá viti
þau hvernig þetta geti orðið hjá þeim sem
ætli sér að slá í gegn og lifi í ákveðnu frelsi
sem þeir kjósa. Því fylgir oft djamm og
vesen, stelpur og óregla.
Áttu að vera bara Hljómalög en sögu-
þráðurinn þá of þröngur
Bæði Guðlaugur og Brynja höfðu gengið
með þann draum í maganum að gera kefl-
vískan söngleik sem síðan varð að veruleika
þegar þau kynntust og urðu kærustupar.
En kom Rúnar heitinn Júlíusson við sögu
hjá þeim báðum? Guðlaugur grípur orðið:
„Ég er aðkomumaður, flutti hingað 21 árs
fyrir nokkrum árum og byrjaði fljótlega að
taka þátt í uppfærslum hjá leikfélaginu. Ég
heyrði þessa hugmynd einhvern tímann
innan leikfélagsins og greip hana á lofti.
Það var ekkert að gerast á þeim tíma og mér
fannst það góð hugmynd, að setja upp kefl-
vískan söngleik. En það var ekki endilega
Rúnar Júlíusson sem ég var að hugsa um,
það er svo mikil tónlistarflóra á þessu svæði
sem ég aðkomumaðurinn gerði mér ekkert
endilega grein fyrir fyrr en ég kom hingað.“
Guðlaugur fór að skoða lög til að setja í
söngleikinn en þar sem hann hafði á þeim
tímapunkti litlar tengingar við bæjarfélag-
ið gerði hann ekkert meira með það. „Svo
kynnist ég Brynju og þá á hún þann draum
að setja upp sýningu til heiðurs afa sínum
og þá small þetta.“ Þau byrjuðu að skrifa
verkið fyrir þremur árum síðan og átti það
upprunalega að fara á svið í vor. Búið var
að ráða Karl Ágúst Úlfsson sem leikstjóra
og einnig danshöfund og tónlistarstjóra.
Blessunarlega náðist að sýna á afmælisárinu
þó uppsetningin hafi tafist um hálft ár.
Brynja segir að upprunalega pælingin
hafi verið að hafa bara Hljómalög í sýn-
ingunni og fyrsta uppkastið að söngleiknum
var bara með þeim lögum. „En það var
frekar þröngt sjónarhorn og flöt atburðarás
af því að lögin fléttast inn í atburðarásina.
Þá ákváðum við að hafa bara lög sem
tengjast afa á einhvern hátt.“ Þau segjast
hafa byrjað á því að búa til sögupersónurnar
áður en þau hófust handa við atburðarásina.
„Þetta er það besta
sem maður gerir“
Hljómsveitin Grip ásamt rótara sínum, sem leikinn er af
Elmari Aroni Hannah. Fremstir f.v.
Arnór Sindri Sölvason sem Pétur, Sigurður Smári Hansson
sem Róbert og Ingvar Elíasson sem Addi. Baksvið sést rétt
glitta í Guðlaug Ómar Guðmundsson sem Bessi.
Ljósm. Eyþór Jónsson
Leikfélag Keflavíkur 60 ára: