Faxi - 01.12.2021, Síða 11
FAXI 11
Aðeins færri fávitar
Sólborg Guðbrandsdóttir
Sólborg Guðbrandsdóttir sló í gegn á síðasta
ári með bók sinni Fávitar og nú kemur út
önnur bók hennar, Aðeins færri fávitar sem
er byggð á samnefndu samfélagsverkefni
hennar gegn stafrænu og annars konar kyn-
ferðisofbeldi. Hér er vangaveltum unglinga
um samskipti kynjanna, kynlíf og sambönd
svarað og áhersla lögð á sterka sjálfsmynd
þeirra og sjálfsöryggi.
Hálfgerðar lygasögur með heilagan
sannleika í bland
Guðbergur Bergsson
Guðbergur hefur einstaka sýn á mannlegt eðli
og samfélag. Hér má lesa sögur úr heillandi
blöndu af fyndni og sársauka, sannleika og
uppspuna. Þegar lesandinn heldur að hann
hafi áttað sig á hvert stefnir er honum komið í
opna skjöldu með óvæntum snúningi, órum,
háði eða skyndilegri viðkvæmni – sem höf-
undurinn hefur flestum betur á valdi sínu.
Hjálp!
Fritz Már Jörgensson
Presturinn í Keflavíkurkirkju heldur áfram
að gefa út sakamálasögur og að þessu sinni
keppast Jónas og félagar hans hjá sérdeild
rannsóknarlögreglunnar við að leysa morð-
mál. Á fallegum sumardegi finnst lík af nak-
inni konu í sorpgeymslu við safnaðarheimili
Dómkirkjunnar í Reykjavík. Henni hafði
verið misþyrmt með hrottafengnum hætti.
Brátt vakna grunsemdir um að fleiri konur
kunni að vera í hættu og málið teygir anga
sína í óvæntar áttir.
Etna og Enok fara í sveitina
Sigríður Etna Marinósdóttir
Grindvíkingurinn Sigríður Etna heldur
áfram að skrifa um Etnu og Enok en að
þessu sinni fara þau í sveitina til ömmu og
afa. Þau keyra sjö fjallvegi til að komast frá
Reykjavík til Tálknafjarðar. Systkinin bralla
þar ýmislegt; fara á hestbak, tína aðalblá-
ber, reka kindur, mjólka kýrnar og njóta
náttúrunnar.
Slétt og brugðið
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Árelía Eydís hefur verið iðin við bókaút-
gáfu undanfarin ár en í sumar kom út bók
hennar Slétt og brugðið. Sex konur hafa í
fjöldamörg ár hist í saumaklúbbi. Dag einn
ákveða þær hins vegar að gera eitthvað allt
annað en vanalega þegar þær koma saman.
Þetta hrindir af stað óvæntri atburðarás sem
á eftir að hafa mikil áhrif á líf þeirra.
Með grjót í vösunum
Sveinn Torfi Þórólfsson
Bókin geymir minningar um horfinn tíma
og svipmyndir af eftirminnilegu fólki á
Skagaströnd, í Grindavík og víðar. Þetta er
mikilsverð og bráðskemmtileg heimild um
horfinn heim og harða lífsbaráttu sem lögð
var á ungar herðar um miðja síðustu öld.
Völva Suðurnesja
Gunnar M. Magnúss.
Þetta er þriðja útgáfa bókarinnar sem
upphaflega kom út árið 1969. Bókin segir
frá dulrænni reynslu og hæfileikum Unu
Guðmundsdóttur (1894–1978) í Sjólyst
í Garði. Orðrómur um hæfileika hennar
barst víða meðan hún lifði og öllum bar
saman um að til hennar hafi verið að
sækja styrk og hjálp í orði og verki. Bókin
er gefin út í samvinnu við Hollvinafélag
Unu.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
Stafrófsbækur Petrínu Mjallar hafa slegið
í gegn fyrir smæð sína og einfaldleika.
Stafróf ástarinnar og Stafróf hugrekkisins
eru nýjustu afurðirnar í ritröðinni en áður
hafa komið út Stafróf gleðinnar og Stafróf
sorgarinnar. Í ár er einnig endurútgefin
bók hennar Salt og hunang sem notið hefur
mikilla vinsælda.
Stafróf ástarinnar:
Það er alltaf dálítið kraftaverk þegar eitt hjarta
fyllist ástúð í garð annars. Líttu á það sem
lán að fá að elska og njóta ástar. Þessi bók er
skrifuð handa þeim sem vilja leggja rækt við
kærleikann og hlúa að ástinni í lífi sínu.
Stafróf hugrekkisins:
Óttinn er mikilvægt varnarkerfi sem varar
okkur við hættum og hjálpar okkur að
bregðast við. Ótti sem varir stöðugt og
nagar okkur að innan er hins vegar annars
eðlis. Þessi bók er skrifuð sem hvatning
og leiðsögn handa þeim sem vilja sigrast á
óttanum með hugrekkið að vopni.
Strand Jamestowns
Halldór Svavarsson
Strand seglskipsins Jamestowns við Hafnir
á Reykjanesi árið 1881 og eftirmálar þess
er stórmerkileg saga sem allt of fáir þekkja.
Varla er hægt að ímynda sér hvílíkur
hvalreki strand þessa 4.000 tonna skips var
fyrir Reyknesinga en það var fulllestað af
unnum eðalvið, furu, sem átti að fara undir
járnbrautarteina á Englandi.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýja árinu.
Þökkum samskiptin á liðnu ári.
Jólapennar